Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 29
FRÆÐIGREINAR
LUNGNAKRABBAMEIN
Tómas
Guðbjartsson1’6
brjóstholsskurðlæknir
Agnes
Smáradóttir2
krabbameinslæknir
Halla
Skúladóttir2
krabbameinslæknir
Hlynur N.
Grímsson2
krabbameinslæknir
Hrönn
Harðardóttir3
lungnalæknir
Jóhannes
Björnsson4’6
meinafræðingur
Pétur
Hannesson56
röntgenlæknir
Sigríður Ólína
Haraldsdóttir3
lungnalæknir
Steinn
Jónsson36
lungnalæknir
Lykilorð: lungnakrabbamein, far-
aldsfræði, erfðafræði, einkenni,
greining, myndgreining, skimun,
vefjafræði, skurðmeðferð, mið-
mætisspeglun, krabbameinslyfja-
meðferð, geislameðferð, viðbót-
armeðferð, yfirlitsgrein.
’Hjarta- og
lungnaskurðdeild,
2krabbameinslækninga-
deild, 3lungnadeild,
4rannsóknarstofa í
meinafræði, 5röntgendeild
Landspítala, 6læknadeild HÍ.
Bréfaskipti:
Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala,
101 Reykjavík
tomasgud@landspitali. is
Lungnakrabbamein -
Yfirlitsgrein
Ágrip
Lungnakrabbamein er annað algengasta krabba-
meinið á íslandi og það krabbamein sem dregur
flesta íslendinga til dauða. Orsökina má yfirleitt
rekja beint til reykinga en erfðaþættir koma einnig
við sögu. Einkenni lungnakrabbameins eru oft
almenns eðlis. Sjúklingar greinast því oft seint
og um 70% þeirra eru með meinvörp við grein-
ingu. Skurðaðgerð í læknandi tilgangi kemur
aðeins til greina í um þriðjungi tilfella en annars
er beitt krabbameinslyfjum og/eða geislameð-
ferð. Á síðustu árum hafa orðið framfarir í grein-
ingu og meðferð lungnakrabbameins. Nýjungar
í myndgreiningu auðvelda rannsóknir og stigun
æxlanna og meðferð hefur því orðið markvissari.
Margt bendir til þess að skimun með lágskammta
tölvusneiðmyndum geti bætt horfur og lækkað
dánartíðni. Nýjar tegundir krabbameinslyfja hafa
bætt líðan og lengt líf sumra sjúklinga með útbreitt
lungnakrabbamein. Þá er í vaxandi mæli farið
að gefa krabbameinslyfjameðferð í tengslum við
skurðaðgerðir, aðallega til að minnka líkur á því að
krabbameinið nái að dreifa sér. Loks hafa nýjung-
ar í skurðlækningum gert kleift að fjarlægja æxli
sem áður voru talin óskurðtæk. I þessari yfirlits-
grein eru helstu nýjungar í greiningu og meðferð
iungnakrabbameins reifaðar. Byggt er á nýjustu
þekkingu og heimildum en greinin er skrifuð með
lækna úr sem flestum sérgreinum í huga.
Faraldsfræði
Lungnakrabbamein er annað algengsta krabba-
mein hjá báðum kynjum á Islandi, á eftir
blöðruhálskirtilkrabbameinum hjá körlum og
brjóstakrabbameinum hjá konum. Hér á landi
greinast um það bil 125 manns á ári samkvæmt
Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands (1).
Alls létust 123 einstaklingar árið 2006 vegna
krabbameina í lungum en það eru fleiri en
samanlagður fjöldi þeirra sem létust úr brjósta-
krabbameini, blöðruhálskirtilkrabbameini og rist-
ilkrabbameini það árið (2).
Hér á landi hefur tíðni lungnakrabbameins auk-
ist hratt meðal karla allt frá frá upphafi skráningar
árið 1955, þangað til í kringum 1980 en þá dró úr
aukningunni (mynd 1). Aldursstaðlað nýgengi (al-
þjóðlegur staðall) hækkaði úr 10,9 og fór hæst upp
í í 36,6/100.000 íbúa á tímabilinu 1990-1994, en
eftir það hefur nýgengi lækkað og er nú 31,3 fyrir
hverja 100.000 íbúa (3). Tilsvarandi aldursstaðl-
að nýgengi meðal kvenna hefur hækkað frá því
að skráning hófst úr 5,4 í 33/100.000 íbúa þegar
ENGLISH SUMMARY
Guðbjartsson T, Smáradóttir A, Skúladóttir H, Grímsson HN, Harðardóttir H,
Björnsson J, Hannesson P, Haraldsdóttir SÓ, Jónsson S
Lung cancer - review
Lung cancer is the second most common cancer in
lceland and the most frequent cause of cancer related
deaths. Smoking is by far the most important cause but
familial factors also contribute. The symptoms of lung
cancer are often subtle and the diagnosis, in about 70%
of cases, is made when metastases have occurred.
Curative surgical treatment is therefore only possible
in about a third of the cases whereas other patients
receive chemotherapy and/or radiation therapy. In recent
years some important advances have been made in the
diagnostic and therapeutic approaches to lung cancer.
New imaging techniques have improved diagnosis and
staging practices and consequently also treatment. Recent
evidence suggests that screening with low dose CT may
improve survival. New approaches to chemotherapy have
been shown to improve survival and well being of patients
with advanced disease. Chemotherapeutic agents are
now being used in conjunction with surgery to reduce the ■
risk of tumour spread. Furthermore, advances in surgical
techniques have made resections possible in cases
deemed inoperable in the past. In this review we present
important advances in the diagnosis and treatment of lung
cancer as reflected by recent literature that should be of
interest to a wide variety of specialists.
Key words: Lungcancer, epidemiology, genetics, symptoms,
diagnosis, imaging, screening, staging, histology, surgery,
mediastinoscopy, chemotherapy, radiotherapy, adjuvant therapy,
neoadjuvant therapy, review.
Correspondence: tomasgud@iandspitaii.is
LÆKNAblaðið 2008/94 297