Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 47
Steinn Jónsson framhalds-
menntunarstjóri
lyflækninga á Landspítala.
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
FRAMHALDSNÁM LÆKNA
Rætt við Stein
Jónsson
um framhaldsnám
í lyflækningum
íslensk læknisfræði er sérstök blanda
Á Læknadögum í janúar var haldin sérstök málstofa þar sem fram-
haldsnám í sérgreinum hérlendis var kynnt sérstaklega. í boði er nú
fyrrihluti sérnáms í lyflækningum, heimilislækningum, geðlækn-
ingum og kvensjúkdómafræðum.
í framhaldsnámi í lyflækningum eru 26 stöður námslækna við
Landspítala og námið hefur tekið verulegum breytingum eftir sam-
einingu spítalanna þriggja í Reykjavík 2002.
Steinn Jónsson lyflæknir stýrir framhaldsmenntun í lyflækn-
ingum á Landspítala.
„Saga framhaldsmenntunar í læknisfræði á Islandi
byrjaði fyrir nokkrum áratugum síðan en þá réð-
ust einstaka unglæknar lengur en nam kandídats-
árinu á deildum. Fyrsti unglæknirinn sem þannig
hóf nám í lyflækningum hérlendis var Helgi
Valdimarsson fyrrverandi prófessor í ónæm-
isfræði en síðan fylgdu fleiri í kjölfarið," segir
Steinn í upphafi samtals okkar og rifjar upp helstu
sögulegu atriði námsins.
„Á þeim tíma voru þrír spítalar í Reykjavík
og þetta þróaðist með nokkuð svipuðum hætti á
Landspítala, Borgarspítala og Landakotsspítala.
Hávar Það var boðið upp á eitt ár ofan á kandídatsárið
Sigurjónsson og síðan fóru menn í framhaldsnám til útlanda.
Það hefur verið okkar styrkur í íslenskri lækn-
isfræði að við höfum sótt framhaldsmenntun til
ólíkra landa og komið til baka með þá þekkingu til
íslands. Úr því hefur orðið sérstök blanda, íslensk
læknisfræði sem á upptök sín bæði vestan hafs og
austan. Þetta er mjög sérstakt því flestir evrópskir
sérfræðingar nema sérgreinina í heimalandi sínu.
Þannig er það á Norðurlöndunum og við erum sér
á báti að þessu leyti."
Breytingar 1990
„Þegar ég kom heim úr framhaldsnámi 1985 var
framhaldsnámið í lyflækningum í þessum skorð-
um. Þá voru 1-2 stöður námslækna á stóru deild-
um spítalanna þriggja en í kringum 1990 hófst
þróun blokkarkerfis þar sem spítalarnir buðu upp
á lengra framhaldsnám en eitt ár og skipulögðu
námsvist á þeim deildum sem hver spítali hafði
að bjóða. Þetta var næsta skref í þessu og stærsta
skrefið er síðan stigið í kjölfar sameiningar spít-
alanna þegar við gátum boðið þriggja ára sérnám
í almennum lyflækningum. Þetta nám er skýrt
afmarkað og skilgreint sem fyrrihluti sérnáms í
lyflækningum og fylgir þeim viðmiðunum sem
gerðar eru um slíkt nám í Bandaríkjunum og víða
í Evrópu. Að fyrrihlutanum, grunnnáminu, loknu
LÆKNAblaðið 2008/94 31 5