Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 48
U M R Æ Ð U R FRAMHALD OG FRÉTTIR SNÁM LÆKNA velja flestir námslæknar sér undirsérgrein innan lyflækninga og fara þá utan til að nema hana. Það nám tekur að jafnaði 3-4 ár í viðbót." Er þaðframtíðarmarkmið að bjóðafullt sérnám hér- lendis? „Framhaldsmenntunamefnd í lyflækningum hefur tekið skýra afstöðu í því að við eigum að halda því einkenni íslenskrar læknisfræði að menn sæki hluta sérfræðimenntunar sinnar erlendis. Við ætlum okkur að bjóða upp á grunnnámið og undirbúa okkar ungu lækna eins vel og kostur er fyrir framhaldsnám erlendis. Það er nokkur munur á hvort unglæknar sækja til Bandaríkjanna eða Evrópu. Vandinn við námið í Bandaríkjunum er að þeir viðurkenna ekki gmnnnám í öðrum löndum og þeir sem fara þangað þurfa að byrja á fyrsta ári. Reyndar hefur færst í vöxt að menn taki grunnnámið á tveimur árum í stað þriggja en lengra komumst við ekki með Bandaríkjamenn. í Evrópu, einkum á Norðurlöndum, viðurkenna há- skólasjúkrahúsin hins vegar grunnnámið íslenska að fullu. Námið hér er í rauninni sniðið eftir þeim kröfum sem gerðar eru bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Námslæknar taka til að mynda stöðupróf sem er hið sama og bandarískir náms- læknar taka og útkoman úr því hefur verið góð. Meirihluti okkar sem höfum stýrt þessu námi höfum stundað framhaldsnám í lyflækningum í Bandaríkjunum og þar er námið mjög skipulega byggt upp. Okkar sémám ber talsverðan keim af því skipulagi. Evrópulöndin hafa verið að færast nær þessu skipulagi en Evrópusamtök lyflækna hafa gefið út viðmiðanir og reglur sem svipar mjög til þeirra sem við byggjum okkar nám á. Við erum því í góðum félagsskap hvað þetta snertir." Góð klínísk vinnubrögð „Við höfum 26 stöður deildarlækna í framhalds- náminu og þær skiptast á námsárin þrjú, " segir Steinn. „Fyrir utan þetta eru 18 kandídatar á lyflækningadeildum sem starfa með deildarlækn- unum. Þetta er starfsnám og unglæknar geta sótt um þetta eftir að hafa lokið kandídatsárinu. Flestir okkar sérnámslækna hafa lært læknisfræði á Islandi, en það hafa verið nokkrir útlending- ar hjá okkur sem hafa staðið sig mjög vel. Við gerum kröfu um að þeir séu talandi á íslensku. Námstíminn er þrjú ár og deildarlæknamir starfa á öllum deildum spítalans; lyflækningadeildum, göngudeildum og bráðadeildum. Þetta nám snýst fyrst og fremst um að kenna góð klínísk vinnu- brögð við að annast sjúklinga. Um leið taka þeir þátt fræðsluprógrammi þar sem eru nánast dag- legir fræðslufundir, suma þeirra flytja þeir sjálfir. Það er gert ráð fyrir að þeir vinni að minnsta kosti eitt rannsóknarverkefni sjálfir og kynni niðurstöð- ur þess á fyrirlestri eða ráðstefnu. Nokkrir hafa innritast í meistaranám og lokið meistaragráðu í læknavísindum samhliða námi sínu hér. Starfsemin skiptist í teymi sem skipað er sér- fræðilækni, deildarlækni, kandídat og læknastúd- ent sem annast allt að 14 sjúklinga á tiltekinni leg- udeild og sér um þá sjúklinga frá því að þeir koma inn á spítalann og þar til þeir útskrifast. Teymið gengur stofugang, setur upp rannsóknar- og með- ferðaráætlun fyrir sjúklinginn meðan hann er hér. Þá eru vaktir ríkur þáttur í framhaldsnáminu og liður í að þróa sjálfstæð vinnubrögð. Fyrir utan þetta falla mörg viðfangsefni til á göngudeildum og við höfum lagt áherslu á að deildarlæknarnir hafi sína eigin göngudeild sem þeir geta vísað sjúklingum á eftir útskrift. Allt er þetta unnið undir handleiðslu sérfræðilækna." Hvernig metiðþið svo árangurinn? „Við metum árangur og framgang námslækn- anna eftir ákveðnu matskerfi þar sem bæði deild- arlæknirinn metur deildina og sérfræðilækninn sem hann vinnur með og sérfræðingurinn metur deildarlækninn og kandídatinn útfrá tilteknum spurningum sem taldar eru mikilvægar. Síðan gangast deildarlæknarnir undir stöðupróf sem við fáum frá Bandaríkjunum, Internal Medicine In-training Examination, en það er staðlað próf sem lagt er fyrir framhaldsnámslækna í lyflækn- ingum um öll Bandaríkin og mörg þúsund læknar þreyta árlega. Þar fáum við gott viðmið bæði á stöðu hvers einstaklings og námsins í heild. Þetta gerir okkur kleift að sjá skýrt hvað er að ganga vel og hvar gera má betur. Deildarlæknarnir fá með þessu mjög mikilvægar upplýsingar um hvar þeir standa í námi sínu, hvar styrkur þeirra liggur og veikleikar." Er ekki reglugerð urn veitingu sérfræðileyfa orðin nokkuð gamaldags miðað við þær kröfur sem gerðar eru í sérnáminu? „Ef borið er saman hversu miklar kröfur eru gerðar í dag í sérfræðinámi í læknisfræði og hversu markvisst er fylgst með framgangi náms- læknanna er ekki hægt að segja annað en að reglugerðin sem stuðst er við varðandi útgáfu sér- fræðileyfa sé úrelt. Þar eru einungis gerðar kröfur um að læknirinn hafi starfað samtals í fjögur og hálft ár á sérdeildum en engar kröfur eru gerðar um innihald tímans og ekki gert ráð fyrir prófum eða skipulegu mati á árangri. Þessi mælikvarði er einfaldlega úreltur í dag. Við höfum í mörg ár knúið á um að sérfræði- reglugerðin verði endurskoðuð og sú vinna hefur verið sett í gang en gengið afskaplega hægt. Við sem höfum haldið utan um námið á Landspítala 31 6 LÆKNAblaðið 2007/93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.