Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 51
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
FRAMHALDSNÁM LÆKNA
starfi við skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar
hér á spítalanum þar sem Kristján Erlendsson og
Ólafur Baldursson halda um taumana. Þórður
Harðarson prófessor og forstöðumaður fræða-
sviðs situr einnig í nefndinni en hann mun láta af
störfum í mars vegna aldurs. Þórður hefur unnið
óhemju merkilegt starf í framhaldsmenntunarmál-
um í gegnum árin frá því hann tók við sem pró-
fessor og verið brautryðjandi í rannsóknarvinnu
ungra lækna. Einnig sitja í nefndinni umsjón-
ardeildarlæknar á hverjum tíma. Námslæknarnir
sinna mjög mikilvægu starfi hér á spítalanum og
mynda framvarðasveit lækna sem taka á móti
sjúklingunum og sjá um að þeir séu greindir fljótt
og vel og fái viðeigandi meðferð."
Teljið pið námið vera komið í varanlegar skorður?
„Þetta er langhlaup og eilífðarverkefni að vinna
að framþróun náms af þessu tagi. Það hefur tals-
vert breyst frá því ég stundaði mitt framhaldsnám
á síðari hluta 8. áratugarins og fyrri hluta þess 9.
Við erum ánægð með þann árangur sem hefur
náðst en það er alltaf hægt að gera betur og við
erum stöðugt að leita leiða til að bæta starfsem-
ina og auka gæði námsins og um leið þjónustu
Landspítala.
Hingað til hafa sérfræðingar í lyflækningum
fengið störf við hæfi en þetta er alltaf spuming
sem ungum læknum er ofarlega í huga þegar þeir
standa frammi fyrir því að velja sérgrein. í mínum
huga er skynsamlegast að fylgja sinni köllun og
gera það sem hugurinn stendur til og gera það vel.
Tíminn sem ungt fólk er að afla sér sérmenntunar
er mjög dýrmætur og það er mikilvægt að vanda
sig við valið og nota síðan tímann vel."
Göngur FÍFL í vor
- Hvannadalshnjúkur
og Eyjafjallajökull
Eins og kom fram í síðasta tölublaði Læknablaðsins er fyrirhuguð
hópganga lækna á hæsta tind l'slands, Hvannadalshnjúk (2110 m),
dagana 8.-10. maí næstkomandi. Félag íslenskra fjallalækna (FÍFL)
stendur fyrir göngunni en öllum læknum og mökum þeirra er velkomið
að taka þátt. Viðtökur hafa verið framar vonum og aðeins örfá sæti laus
í gönguna, en takmarka verður fjölda þátttakenda við 40 manns. Nánari
upplýsingar um dagskrá og skráningu má nálgast í síðasta tölublaði
Læknablaðsins eða á netinu www.laeknabladid.is
Aðalleiðsögumaður í ferðinni verður enginn annar en sjálfur Há-
tindahöfðinginn Þorvaldur Þórsson. Hann er á meðal reyndustu
fjallaleiðsögumanna hér á landi og hefur margsinnis gengið á
Hvannadalshnjúk. Á síðasta ári náði hann þeim merka áfanga að
verða fyrstur allra til að stíga fæti á alla 100 hæstu tinda á íslandi og
það á innan við ári! Þvi er Ijóst að FÍFLarar og aðrir göngumenn verða
í öruggum höndum um hvítasunnuhelgina þegar lagt verður til atlögu
við hnjúkinn.
Samkvæmt venju mun FÍFL einnig bjóða upp á árlega göngu á
Eyjafjallajökul (1660 m) á sumardaginn fyrsta 23. apríl. Gengið verð-
ur á jökulinn frá Seljavöllum og má gera ráð fyrir að gangan taki um
9-10 klst. Fararstjóri verður Gunnar Guðmundsson lungnalæknir og
formaður FÍFL og honum til aðstoðar nokkrir aðrir meðlimir FÍFL.
Þátttaka takmarkast við 20 manns en þetta er upplögð æfingaferð fyrir
Hvannadalshnjúk. Því eru þeir sem þegar hafa skráð sig í þá göngu
hvattir til að taka einnig þátt í þessari. Best er að skrá sig með því að
senda tölvupóst á annaðhvort ggudmund@landspitali.is eða tom-
asgud@landspitali. is
Hvannadalshnjúkur (2110) úr suðvestri. Skaftafellsheiði og Hafrafell i forgrunni.
Ljósmynd: Guðbjartur Kristófersson.
Eyjafjallajökull (1660) úr suðri. FÍFL ráðgerir göngu á jökulinn á sumardaginn
fyrsta. Ljósmynd: Tómas Guðbjartsson.
LÆKNAblaðið 2008/94 319