Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 45
Sigríður Ólína Haraldsdóttir sigrohar@landspitali. is Höfundur er lyf- og lungnalæknir starfandi á Landspítala Fossvogi. Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Sigurður E. Sigurðsson, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Elínborg Bárðardóttir Kristján G. Guðmundsson Ragnar Freyr Ingvarsson Sigurður Böðvarsson Þórarinn Guðnason í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoöanir en ekki félagsins. ú R UMRÆÐUR O G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Landspítalinn Við sem störfum á Landspítala höfum beðið eftir fréttum af byggingu nýs spítala. Við höfum heyrt af vinnu ráðgjafahópa og arkitekta en einnig hafa fréttir borist af því að „símapeningarnir" verði notaðir í annað og bygging nýs spítala látin bíða. Á dögunum var boðað til fundar með starfsmönn- um þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndar um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana, kynntu áform um nýjan Landspítala. Þau tóku af öll tvímæli, spítali mun rísa við Hringbraut í náinni framtíð. Mikil ánægja er meðal starfsmanna vegna þessara frétta. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður skrif- aði grein í 24 stundir nýlega um Landspítalann og kallaði hann móðurskip heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er alveg rétt hjá honum. Á Landspítala fer menntun flestra heilbrigðisstarfsmanna fram, þar fæðast nær allir Islendingar og þar er reynt að leysa vandamál sem oft geta verið mjög flókin. Landspítali vísar engum frá sem leitar til hans. Þar er alltaf opið og ætíð er fagfólk við störf sem hefur kunnáttu til að taka á nánast öllum þeim heilsu- farsvandamálum sem upp geta komið. Oftar en ekki er leitað á bráðamóttöku Landspítala vegna félagslegra vandamála. Fyrir kemur að taka þarf á móti einstaklingi sem er orðinn ósjálfbjarga heima. Hann er ekki veikur í þeim skilningi að hann þurfi bráða læknisþjónustu, en eitthvað veldur því að hann getur ekki verið einn. Þá kemur hinn ósjálfbjarga á Landspítalami og fær öruggt skjól. En eins og ég hef áður skrifað í pistli sem þessum er langt í frá að bráðadeildir séu ákjósanlegur staður fyrir þessa einstaklinga og kostnaður við dvöl þeirra mikill. Mér finnst að það þurfi að hafa þetta í huga þegar talað er um samkeppni í heil- brigðisþjónustu. Landspítalinn getur ekki keppt við einkarekstur. Á honum er tekið við öllum á hvaða tíma sólarhringsins sem er en við ráðum ekki að fullu hvenær við útskrifum þá sem ekki þurfa lengur á okkur að halda. Sumir eru í þeirri aðstöðu að komast ekki heim heldur þurfa að komast á endurhæfingarstofnanir eða elliheim- ili. Þessar stofnanir ráða innflæðinu til sín og þar ræður mannafli og pláss. Landspítali verður alltaf að taka við sjúklingum, óháð mannafla og pláss- um. Fólk er lagt inn á ganga og starfsfólk þarf oft að taka ábyrgð á fleiri sjúklingum en æskilegt er. Landspítalinn á að spara og skera niður. Hvernig er það hægt þegar hvorki er hægt að stjórna inn- eða útflæði sjúklinga? Landspítalinn getur ekki keppt við einkaaðila um laun. Þau eru ákveðin í kjarasamningum og þar sem sparnaðarkrafan hefur sífellt verið uppi er ekki möguleiki á sveigjanleika í launamálum. Við sem vinnum á Landspítala skynjum mikla þreytu hjá þeim starfsstéttum þar sem mannekla hefur verið mikil og lengi. Það er í lagi að taka aukavakt- ir í skamman tíma, en þegar það er orðið daglegt brauð og starfsfólk kemst ekki heim af vakt vegna þess að það er enginn til að taka við, missir það móðinn. Á tímabili komu leigumiðlanir hjúkrunar- fræðinga að mönnun á Landspítalanum en vegna sparnaðar var því hætt. Meðan þessi háttur var hafður á leysti það vandann að hluta en reyndar þótti mörgum einkennilegt að vinna við hlið ein- hvers sem fékk betur borgað fyrir sama starf. Þá væri eðlilegra að borga fastráðnum hjúkrunar- fræðingum betur og reyna þannig að laða fleiri að. Af og til koma fram hugmyndir um að breyta eigi sj ú kra húsþjónustu n n i þannig að um fleiri og minni sjúkrahús sé að ræða. Þá skapist samkeppni sem muni bæta gæði þjónustunnar og auðvelda mönnun. Einnig hefur verið bent á að erfitt sé t.d. fyrir lækna að hafa aðeins einn valkost um vinnustað. Mér finnst að það væri skref aftur á bak að hafa fleiri, minni sjúkrahús. Nú á dögum er meðferð sjúkdóma flókin og þarf oftast aðkomu fleiri en eins sérfræðings. Vegna smæðar landsins er ekki hægt að halda uppi fyrsta flokks þjónustu á fleiri en einum stað, ákveðinn fjölda aðgerða og meðferða þarf til að halda sérþekkingu við. Það þarf að standa vörð um Landspítalann, fjár- veitingar eiga að vera í takt við þá starfsemi sem þar fer fram. Hlúa þarf betur að starfsfólki og gera þarf átak til að laða að þær starfsstéttir sem mestur skortur er á. Þar vegur þungt að mínu mati mögu- leiki til samvinnu við Háskóla Islands, starfsfólkið fái tækifæri til að mennta sig frekar í samstarfi spít- alans og Háskólans. Landspítalinn getur ekki verið í samkeppni við einkareknar stofnanir eða læknastofur, til þess eru engar forsendur. Hins vegar má færa verk út frá Landspítalanum til aðila sem heilbrigðisyfirvöld treysta til að veita þá þjónustu sem krafa er gerð um. Þá verður að gæta þess að öllum sé tryggður aðgangur að þjónustunni og að enn gildi sú meg- inregla að á íslandi eigi allir rétt á bestu heilbrigð- isþjónustu sem völ er á hverju sinni, óháð stöðu og efnahag. Á dögunum skrifaði annar ritstjóri Fréttablaðsins í leiðara að Landspítalinn væri versti vinnustaður landsins. Þetta er algjör fjarstæða. Á Landspítala er að finna hóp sérmenntaðs fólks í teymisvinnu við að koma þeim sem til þeirra leita til betri heilsu. Þetta er bæði gefandi og göfugt starf og mjög skemmtilegt þegar vel gengur. LÆKNAblaðíð 2008/94 313
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.