Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 63

Læknablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 63
U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR F R Á SIÐANEFND | Úrskurður siðanefndar LÍ Úrskurðurinn er birtur í Læknablaðinu skv. tilmælum siðanefndar Ár 2008, miðvikudaginn 12. mars, kom Siðanefnd Læknafélags íslands saman á skrifstofu formanns í Dómhúsinu við Lækjartorg. Nefndina skipa Allan V. Magnússon, formaður, Ingvar Kristjánsson læknir og Stefán B. Matthíasson læknir. Fyrir var tekin kæra Kára Stefánssonar læknis frá 20. október 2005 á hendur Vilhjálmi Rafnssyni lækni og kveðinn upp svo- hljóðandi. Úrskurður Með bréfi dagsettu 20. október 2005 kærði lögmaður Kára Stefánssonar læknis Vilhjálm Rafnsson lækni til Siðanefndar Læknafélags íslands. Hinni kærðu háttsemi lýsir lögmaðurinn svo að kærði hafi, sem ritnefndar- og ábyrgðarmaður Læknablaðsins, veitt atbeina sinn og samþykki sem ábyrgðarmaður Læknablaðsins, fyrir birtingu ærumeiðandi ummæla um Kára Stefánsson lækni í grein undir fyrirsögninni „Nýi sloppur keisarans" í 9. tblv 91 árg. Læknablaðsins 2005. Telur hann háttsemi þess varða við 28. gr. Codex Ethicus Læknafélags íslands („LÍ"), og 2. gr. laga LÍ. Þess er krafist 1. Að Siðanefnd LÍ úrskurði, að i) kærði hafi með háttsemi sinni brotið gegn Codex Ethicus LI og að ii) siðanefnd finni að hátt- semi kærða og honum verði veitt áminning skv. 16. gr. við- auka við Lög Læknafélags íslands. 2. Að forsendur og úrskurðarorð úrskurðar verði birt í Læknablaðinu skv. 21. gr. viðauka við lög LÍ án nafnleyndar. Af hálfu kærða er þess krafist að öllum kröfum kæranda á hendur honum verði hafnað. í 9. tbl. 91. árg. Læknablaðsins 2005 og í vefútgáfu blaðsins birtist grein eftir Jóhann Tómasson lækni undir fyrirsögninni „Nýi sloppur keisarans". Kveður kærandi hana hafa verið birta með vitund og vilja Vilhjálms Rafnssonar, ábyrgðarmanns blaðsins. í umræddri grein hafi höfundur veist að kæranda og starfsheiðri hans sem lækni, m.a. í tengslum við störf hans sem sérfræðings í taugalækningum á taugalækningadeild LSH sum- arið 2005. Einnig haldi höfundur því fram í greininni að lækn- ingaleyfi kæranda séu ógild. Hafi kærandi margoft þurft að þola svipuð tilskrif af hendi greinarhöfundar á opinberum vettvangi á síðustu árum, en hér sé þó, á síðum Læknablaðsins, málgagns lækna, gengið mun lengra en nokkru sinni fyrr. Það geti ekki dulist neinum sem til þekkir, allra síst lækni og ábyrgðarmanni prent- og vefmiðils, að fullyrðingar í grein Jóhanns Tómassonar brjóti gróflega gegn 28. gr. Codex Ethicus, auk þess að ábyrgðarmanninum hefði átt að vera ljóst að einnig sé brotið gegn XXV. kafla almennra hegningarlaga um meiðyrði, með því að hann hafi borið ábyrgð á og veitt atbeina sinn til, að breiða út óhróður um kæranda, sem auk þess var fallinn til að skerða atvinnuöryggi hans sem læknis. Þrátt fyrir þetta hafi umrædd grein verið birt með vitund og vilja kærða Vilhjálms Rafnssonar ábyrgðarmanns blaðsins og sé hann aðalmaður í broti á 28. gr. Codex Ethicus ásamt Jóhanni Tómassyni skv. verknaðarlýsingu greinarinnar. Einnig telur kærandi að birting greinarinnar brjóti gegn ís- lenskri meiðyrðalöggjöf, sérstaklega 234. gr. almennra hegning- arlaga. Þá sé það ekki síður grafalvarlegt að ásakanir sem settar séu fram í umræddri grein í málgagni lækna og samtaka þeirra, Læknablaðinu, þess efnis, að kærandi hafi starfað sem læknir og sérfræðilæknir án tilskilinna leyfa, fælu í sér ef sannar væru, refsivert brot á læknalögum nr. 53/1988. Hlutdeild í ósönnum aðdróttunum um refsiverða háttsemi geti varðað við ákvæði 148. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga 19/1940 eins og kærandi telur að hér eigi við. Þótt siðanefndin sé ekki ætlað að dæma um brot á þeim almennu lögum sem hér hafa verið rakin sé þó rétt að hafa þau til hliðsjónar að því leyti, að ef það liggi fyrir eins og hér blasir við, að læknir hafi framið réttarbrot gagnvart öðrum lækni sem einnig er brot á almennum lögum, hljóti það að leiða til þeirrar niðurstöðu að jafnframt hafi verið brotið gegn tilvitnuðu ákvæði 28. gr. Codex Ethicus. Það sé einnig sérlega ámælisvert að kærði Vilhjálmur hafi ekki gripið til neinna þeirra ráðstafana sem honum hafi verið tiltækar til að draga úr tjóni vegna fyrrgreindar birtingar, t.d. með því draga umrædda grein til baka, afmá hana úr vef- útgáfu Læknablaðsins, gangast fyrir því að blaðið bæði kær- anda afsökunar á birtingunni og harma hana. Þá sýnir það hve kærði Vilhjálmur sé forhertur í viðvarandi brotastarfsemi sinni að hann hafi aftekið að takmarka tjón af birtingu greinarinnar með því að neita að afmá hana úr vefútgáfu Læknablaðsins þegar tillaga um það var borin upp á ritstjórnarfundi blaðsins 20. september 2005 og sé greinina ennþá að finna í vefútgáfunni þegar þetta er ritað. Tjón kæranda af vefútgáfunni hafi aukist síðan enn við það að hún hafi orðið tilefni fréttar í aðalfréttatíma Ríkissjónvarpsins. Sú umfjöllun hafi orðið til þess að aðstoð- arlandlæknir hafi þurft að lýsa því yfir að kærandi hefði starfað í skjóli gilds lækningaleyfis, en annars hefðu störf hans falið í sér lögbrot sem varðað geta refsiábyrgð. Læknablaðið njóti mikillar virðingar sem ritrýnt (e. Peer- reviewed) vísindatímarit þar sem gerðar séu strangar kröfur til efnis og efnistaka þeirra greina sem þar birtast. Greinar sem birt- ist í slíkum tímaritum þyki því mun áreiðanlegri og síður hafnar yfir gagnrýni en þær sem birtist annars staðar, t.d. í dagblöðum sem oft séu ekki vönd að virðingu sinni. Jafnvel sé litið svo á að efni sem birtist í ritrýndum tímaritum endurspegli að nokkru leyti skoðanir útgefenda slíkra blaða. Því sé það mjög alvarlegt mál þegar ritrýnt tímarit sem jafnframt er málgagn íslensku LÆKNAblaðið 2008/94 331
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.