Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 29

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 29
FRÆÐIGREINAR LUNGNAKRABBAMEIN Tómas Guðbjartsson1’6 brjóstholsskurðlæknir Agnes Smáradóttir2 krabbameinslæknir Halla Skúladóttir2 krabbameinslæknir Hlynur N. Grímsson2 krabbameinslæknir Hrönn Harðardóttir3 lungnalæknir Jóhannes Björnsson4’6 meinafræðingur Pétur Hannesson56 röntgenlæknir Sigríður Ólína Haraldsdóttir3 lungnalæknir Steinn Jónsson36 lungnalæknir Lykilorð: lungnakrabbamein, far- aldsfræði, erfðafræði, einkenni, greining, myndgreining, skimun, vefjafræði, skurðmeðferð, mið- mætisspeglun, krabbameinslyfja- meðferð, geislameðferð, viðbót- armeðferð, yfirlitsgrein. ’Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2krabbameinslækninga- deild, 3lungnadeild, 4rannsóknarstofa í meinafræði, 5röntgendeild Landspítala, 6læknadeild HÍ. Bréfaskipti: Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 101 Reykjavík tomasgud@landspitali. is Lungnakrabbamein - Yfirlitsgrein Ágrip Lungnakrabbamein er annað algengasta krabba- meinið á íslandi og það krabbamein sem dregur flesta íslendinga til dauða. Orsökina má yfirleitt rekja beint til reykinga en erfðaþættir koma einnig við sögu. Einkenni lungnakrabbameins eru oft almenns eðlis. Sjúklingar greinast því oft seint og um 70% þeirra eru með meinvörp við grein- ingu. Skurðaðgerð í læknandi tilgangi kemur aðeins til greina í um þriðjungi tilfella en annars er beitt krabbameinslyfjum og/eða geislameð- ferð. Á síðustu árum hafa orðið framfarir í grein- ingu og meðferð lungnakrabbameins. Nýjungar í myndgreiningu auðvelda rannsóknir og stigun æxlanna og meðferð hefur því orðið markvissari. Margt bendir til þess að skimun með lágskammta tölvusneiðmyndum geti bætt horfur og lækkað dánartíðni. Nýjar tegundir krabbameinslyfja hafa bætt líðan og lengt líf sumra sjúklinga með útbreitt lungnakrabbamein. Þá er í vaxandi mæli farið að gefa krabbameinslyfjameðferð í tengslum við skurðaðgerðir, aðallega til að minnka líkur á því að krabbameinið nái að dreifa sér. Loks hafa nýjung- ar í skurðlækningum gert kleift að fjarlægja æxli sem áður voru talin óskurðtæk. I þessari yfirlits- grein eru helstu nýjungar í greiningu og meðferð iungnakrabbameins reifaðar. Byggt er á nýjustu þekkingu og heimildum en greinin er skrifuð með lækna úr sem flestum sérgreinum í huga. Faraldsfræði Lungnakrabbamein er annað algengsta krabba- mein hjá báðum kynjum á Islandi, á eftir blöðruhálskirtilkrabbameinum hjá körlum og brjóstakrabbameinum hjá konum. Hér á landi greinast um það bil 125 manns á ári samkvæmt Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands (1). Alls létust 123 einstaklingar árið 2006 vegna krabbameina í lungum en það eru fleiri en samanlagður fjöldi þeirra sem létust úr brjósta- krabbameini, blöðruhálskirtilkrabbameini og rist- ilkrabbameini það árið (2). Hér á landi hefur tíðni lungnakrabbameins auk- ist hratt meðal karla allt frá frá upphafi skráningar árið 1955, þangað til í kringum 1980 en þá dró úr aukningunni (mynd 1). Aldursstaðlað nýgengi (al- þjóðlegur staðall) hækkaði úr 10,9 og fór hæst upp í í 36,6/100.000 íbúa á tímabilinu 1990-1994, en eftir það hefur nýgengi lækkað og er nú 31,3 fyrir hverja 100.000 íbúa (3). Tilsvarandi aldursstaðl- að nýgengi meðal kvenna hefur hækkað frá því að skráning hófst úr 5,4 í 33/100.000 íbúa þegar ENGLISH SUMMARY Guðbjartsson T, Smáradóttir A, Skúladóttir H, Grímsson HN, Harðardóttir H, Björnsson J, Hannesson P, Haraldsdóttir SÓ, Jónsson S Lung cancer - review Lung cancer is the second most common cancer in lceland and the most frequent cause of cancer related deaths. Smoking is by far the most important cause but familial factors also contribute. The symptoms of lung cancer are often subtle and the diagnosis, in about 70% of cases, is made when metastases have occurred. Curative surgical treatment is therefore only possible in about a third of the cases whereas other patients receive chemotherapy and/or radiation therapy. In recent years some important advances have been made in the diagnostic and therapeutic approaches to lung cancer. New imaging techniques have improved diagnosis and staging practices and consequently also treatment. Recent evidence suggests that screening with low dose CT may improve survival. New approaches to chemotherapy have been shown to improve survival and well being of patients with advanced disease. Chemotherapeutic agents are now being used in conjunction with surgery to reduce the ■ risk of tumour spread. Furthermore, advances in surgical techniques have made resections possible in cases deemed inoperable in the past. In this review we present important advances in the diagnosis and treatment of lung cancer as reflected by recent literature that should be of interest to a wide variety of specialists. Key words: Lungcancer, epidemiology, genetics, symptoms, diagnosis, imaging, screening, staging, histology, surgery, mediastinoscopy, chemotherapy, radiotherapy, adjuvant therapy, neoadjuvant therapy, review. Correspondence: tomasgud@iandspitaii.is LÆKNAblaðið 2008/94 297
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.