Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 71
AUGLÝSINGAR
HEILSUGÆSLAN
Staða aðstoðarlæknis
á Miðstöð sóttvarna
Laus er til umsóknar staöa aðstoöarlaeknis á Miöstöö sóttvarna
frá 1. maí nk. Um er að ræða 75-100% starf eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir á
Miðstöö sóttvarna í síma 585 1390 eöa á netfangi: thorsteinn.
blondal@lob.hg.is
Umsóknir ásamt staðfestum upplýsingum um læknismenntun,
læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf sendist til
starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem
þar fást, fyrir 25. apríl 2008.
Hægt er að sækja um starfið á vef Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, www.heilsugaeslan.is
Reykjavík 25. mars, 2008
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16
109 Reykjavík
Almanna- og heilsumálaráðið
Heimilislækna
vantar í Færeyjum
Auglýst er eftir 7 heimilislæknum til Færeyja. Heimilislæknastöður í Norðoya-,
Runavíkar- Skála-, Fuglafjarða-, Suðurstreymoyar-, og Suðuroyar Norðara
Læknadömi eru auglýstar lausar. Auglýst er í fagtímaritum á Norðurlöndum
og á heimasíðu Almanna- og heilsumálaráðsins, www. ahr.fo
Umsóknarfrestur ertil 7. apríl 2008, kl. 12.00.
Nánari upplýsingar um stöðurnar eru
á heimasíðu Læknablaðsins, www.
laeknabladid.is
Eirargarður 2 • 100 Tórshavn
Telefon 30 40 50 • Telefax 35 40 45
• E-mail: ahs@ahs.fo
fea
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Yfirlæknir við rannsóknadeild
Sjúkrahússins á Akureyri
Staða yfirlæknis við rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100%. Staðan veitist frá 1. ágúst 2008 eða eftir
samkomulagi.
Leitað er að sérfræðilækni með viðurkenningu í að minnsta kosti einni af eftirtöldum undirgreinum meinafræði: klínískri lífefnafræði, blóðmeinafræði
eða meinefnafræði. Einnig kemur til greina að ráða sérfræðing í sýklafræði eða ónæmisfræði.
Reynsla af rekstri rannsóknastofa og stjórnun er æskileg.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt með upplýs-
ingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf.
Nánari upplýsingar gefa Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga, sími 463 0100, thi@fsa.is og Vigfús Þorsteinsson, yfirlæknir rann-
sóknadeildar í síma 463 0100, vigfus@fsa.is
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2008.
Umsóknir, á þartilgerðum eyðublöðum sem fást hjá landlæknisembættinu, ásamt fylgiskjölum skulu að berast í tvíriti til starfsmannaþjónustu FSA, Eyrarlandsvegi, 600
Akureyri. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf við FSA er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA
er reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaðið 2008/94 339