Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 61
Dreifibréf Landlæknisembættisins
U M R Æ Ð U R
F R Á
0 G FRÉTTIR
LANDLÆKNI
Leiðir til lækkunar lyfjakostnaðar
Mikill ávinningur hefur náðst í þá veru að lækka
lyfjaverð á íslandi. Gildir það ekki síst um frumlyf,
en enn er verð samheitalyfja hærra hér á landi en
í mörgum nálægum löndum og markaðshlutdeild
þeirra minni.
Ein grein af þessum meiði lýtur að afsláttum
lyfjainnflytjenda og lyfjafyrirtækja á lyfjaverði til
sjúkrahúsa og stofnana í útboðum. Þeir afslættir
gilda síðan ekki um sölu sömu lyfja í apótek-
um. Sem dæmi má nefna verð blóðfitulækkandi
lyfja, en þar veita lyfjafyrirtæki 20% afslátt til
Landspítala á simvastatin (Sivacor), 90% afslátt
á atorvastatin (Sarator) og 95% af rosuvastatin
(Crestor). Kostnaður við innkaup þessara lyfja til
spítalans er á þennan hátt áþekkur, en verðmunur
úr apóteki eftir útskrift sjúklings er hins vegar
verulegur, annars vegar tæplega fimmfaldur og
hins vegar tæplega tífaldur.
Almennt er vinnulag á sjúkrahúsum þannig að
sjúklingar eru útskrifaðir á þeim lyfjum sem þeim
hefur verið ávísað á sjúkrahúsinu. Minna verður
á að sú ákvörðun sjúkrahússins að kaupa ódýr-
ustu lyf samkvæmt útboði er eðlileg og reyndar
lögbundin. Hins vegar er einnig rétt að minna
á að kostnaðarvitund er hluti af siðgæðisvitund
lækna.
Með þessu bréfi er því mælst til þess að
sjúklingar séu útskrifaðir á ódýrasta lyfi úr
hverjum lyfjaflokki, án tillits til þess hvaða lyf
þeir hafa fengið á sjúkrahúsinu, ef engar sérstakar
klínískar ástæður mæla gegn því. Jafnframt er
því beint til lækna sem sjá um framhaldsmeðferð
að huga að ofangreindu og breyta lyfjum m.t.t.
kostnaðar ef mögulegt er. Með þessu móti getum
við lagt lóð okkar á vogarskálar þess að draga úr
lyfjakostnaði í landinu.
Landlæknir
Established in 2005 Dignus Medical works with renowned hospitals throughout Norway and Sweden, both in the private and state sector.
We pair up qualified medical specialists with available positions throughout our extensive network of hospitals.
Interested in new working opportunities in Norway?
We are seeking medical specialists to permanent and temporary positions in Norway within the following specialities:
• Radiology
• Psychiatry
• Child- and adolescent psychiatry
Qualifications:
• Applicants need to hold a specialist approval by the Norwegian Medical Association
(NMA/ Den norske legeforeningen).
• Be in command of a Scandinavian language.
If necessary, Dignus Medical will assist you regarding language training and in applying for specialist approval.
Please contact us for more information:
CEO Richard Raae: Phone: +47 91 39 09 10, E-mail: richard@dignusmedical.no
ResearcherAnne Didriksen: Phone: +47 22 87 10 50, E-mail: anne@dignusmedical.no
www.dignusmedical.no
LÆKNAblaðið 2008/94 857