Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 59
U M R Æ Ð U R 0 G FRÉTTIR FAGMENNSKA Þegar vísindin þrýtur Erik Eriksson erikbse@gmail.com Á kandídatsárinu kynntist ég mjög eftirminnileg- um sjúklingi og maka hennar, Huldu og Pétri. Hulda var á sextugsaldri með hratt versnandi alvarleg einkenni sem ekki fundust haldbærar skýringar á. Einkennin skertu verulega líkamlega færni og um tíma var óttast um líf hennar. Á þrem- ur mánuðum voru kallaðir til sérfræðingar úr fimm undirgreinum lyflækninga. Skoðanir þeirra og rannsóknir gáfu ekki afgerandi niðurstöður og óvissan var mikil og þrúgandi fyrir Huldu og hennar nánustu. Fyrsta vika mín á teyminu einkenndist af mikilli óvissu og leit. Á meðan ekki var vitað hvað hrjáði Huldu reyndu læknar að setja upp meðferðaráætl- un eftir bestu getu. Það er jú það sem læknar gera. Greina vandamál og setja af stað meðferð. Á sarna tíma kölluðu Hulda og Pétur eiginmaður hennar eftir áætlun og einhverjum svörum. Öll samskipti voru viðkvæm og krefjandi, sérstaklega við Pétur. Aldrei mættumst við á ganginum án orðaskipta. Oftast var hann að minna mig á að athuga nið- urstöður nýlegrar rannsóknar eða spyrja eftir nýrri áætlun. Sífellt með nýjar spurningar eða end- urtók gamlar. Auk þess var á stofugangi dag hvern farið yfir stöðu mála. Yfirleitt hafði fátt nýtt komið í ljós. Planið var það sama og daginn áður. Fór ég því að leggja það í vana minn að líta inn til þeirra síðdegis. Endurtók ég þá oftast það sem sagt hafði verið áður, ásamt fréttum dagsins sem ekki alltaf voru miklar. Mánuði áður en ég kom á deildina hafði borið á mikilli reiði hjá Pétri í garð læknanna. Viðmótið sem ég mætti var hins vegar allt annað og ekki það sem ég bjóst við. Ég fann lítið fyrir þeirri gremju eða reiði sem kollegar mínir höfðu lýst, heldur frekar ríkri þörf fyrir spumingar og svör. Hulda var hins vegar á þessum tíma tilfinn- ingalega frekar flöt og óvirk. Hún lá í rúminu nær allan daginn, þrátt fyrir að geta farið allra sinna ferða í hjólastól. Hún tók lítinn sem engan þátt í að þrífa sig og lét til dæmis sjúkraliða oftast um að þurrka sér í framan. Þegar hún var hvött til að gera æfingar með eða án sjúkraþjálfara virtist það aldrei henta. Hulda sýndi heldur engan áhuga á að fara út af spítalanum. Stöðugt stærri hluti af vinnudegi mínum fór í samskipti við eiginmann hennar. Verandi eini unglæknirinn á teyminu og mikið álag á deildinni fóru þessi samskipti að reyna mjög á þolinmæði mína. Mér fannst Pétur trufla mig við að sinna vinnunni á deildinni. Beiðnir, dagnótur og símtöl til ráðgefandi sérfræð- inga sátu á hakanum. Ákvað ég því eitt kvöldið að setjast niður og setja vangaveltur mínar á blað. Sá ég þá fljótlega að þau hjón áttu meiri skilning af minni hálfu skilið. Hálfu ári áður hafði sjúkling- urinn verið fullfrísk kona sem sinnti skyldum sínum gagnvart fjölskyldu og í starfi. Þau höfðu þurft að umturna sínu lífi, endurskoða allar fyrri áætlanir og höfðu ekki hugmynd um hvað olli sjúkdómnum né hver framvindan yrði. Viðbrögð þeirra minntu mig á skrif svissneska geðlæknisins Elisabeth Kúbler-Ross um dauðann og deyjandi sjúklinga. Samkvæmt hennar kenn- ingum ganga deyjandi sjúklingar og aðstand- endur þeirra í gegnum fimm sorgarstig og ávallt í sömu röð. Það eru afneitun, reiði, samningar, dep- urð eða uppgjöf og að lokum sátt. Hægt er að yf- irfæra ferlið á annan persónulegan skaða en andlát nákominna, til dæmis uppsögn vinnu, endalok ástarsambands, missi á útlim og svo framvegis. Upplifun mín var sú að bæði Hulda og Pétur væru farin að syrgja það líf sem þau höfðu átt, en hvor- ugt þeirra sá fram á bata. Pétur í depurð en Hulda í samningaumleitunum. í heilbrigðisgeiranum og víðar í samfélagimu eru kröfur um afköst og hraða stöðugt að aukast. Við slíkar aðstæður þurfa menn að forgangs- raða. Áhrif þessa í starfi lækna hafa verið að tími fyrir hvern sjúkling er minni en áður. Samskiptin verða að vera hröð og markviss. Læknislistin má sín því stundum lítils á bráðadeild. I veru minni á þeirri deild komst ég fljótt að því að innlit mitt seinnipart dags til þeirra hjóna sparaði mér umtalsverðan tíma. Þar gafst þeim rúm til að kasta fram spurningum í meira næði en á stofugangi, fá ítarlegri skýringar og viðra skoðanir sínar á með- ferðinni. „Truflunin" sem ég hafði áður upplifað yfir daginn minnkaði mikið og starf mitt varð ánægjulegra. Minn helsti lærdómur þennan mán- uðinn var ef til vill mikilvægi læknislistarinnar í dagsins önn. LÆKNAblaðið 2008/94 855
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.