Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREI
N A R
Heilbrigðiskerfi á tímum
kreppu og atvinnuleysis
Matthías
Halldórsson
settur landlæknir
mattha@Landlaeknir. is
The health care system
during national crises
and unemployment
Matthias Halldorsson MD,
DPH, DSc
Medical Director of Health
Ditectorate of Health in
lceland
Við lifum á viðsjárverðum tímum. Leiði kreppan til
atvinnumissis og fátæktar í langan tíma má búast
við auknu heilsuleysi og álagi á heilbrigðiskerfið.
Sterk tengsl eru milli atvinnuleysis og heilsuleys-
is. Þau tengsl virka í báðar áttir: Heilbrigði fólks
getur skaðast við langvinnt atvinnuleysi og
atvinnuleysingjum, sem komnir eru í erfiða stöðu
vegna einangrunar og heilsutjóns, gengur illa að
fá vinnu á ný. Mikilvægt er að lenda ekki í slíkri
hringrás. Eftir að fólk hefur misst vinnuna er því
nauðsynlegt að hafa eitthvað það fyrir stafni sem
gefur lífinu gildi og hindrar einangrun þess í sam-
félaginu.
Þekkt er að fyrst eftir atvinnumissi finna sumir
til viss léttis, einkum ef vinnan hefur verið erfið
eða leiðigjöm, en síðan fer gjarnan að halla undan
fæti. Kvíði, svefnleysi, skömm og þunglyndi
kemur fram og getur birst í líkamlegum kvill-
um. Sjálfsvíg eru algengari meðal atvinnulausra,
en einnig umframdauðsföll af öðrum orsökum.
Öflugt félags- og heilbrigðiskerfi kerfi og atvinnu-
leysistryggingar hafa mikla þýðingu við að draga
úr skaðanum.
Fyrsta skref heilbrigðisþjónustunnar er að vera
á verði, gera sér grein fyrir umfangi vandans og
hvernig rétt sé að bregðast við honum. I kjölfar
breytinga á sóttvarnarlögum árið 2007 er það hlut-
verk sóttvamarlæknis að greina heilsufarsógnanir
af hvaða tagi sem er. Hann gerir það í náinni sam-
vinnu við landlækni. Einn liður í því er að fylgjast
reglulega með eftirspurn eftir ákveðnum þátt-
um heilbrigðisþjónustunnar og hvort þar verði
einhver breyting á. Eins og fram hefur komið í
Farsóttafréttum virðist lítil sem engin aukning vera
á aðsókn að heilbrigðisþjónustunni vikurnar eftir
að fregnir bárust af bágum horfum í efnahag þjóð-
arinnar, að undanskilinni skammvinnri aukningu
á komufjölda á bráðamóttöku Landspítala við
Hringbraut. Aðsókn að Læknavaktinni hefur verið
minni en áður ef eitthvað er.
Fyrstu viðbrögð heilbrigðisráðherra við kreppu-
vandanum voru að koma á sérstakri sálfræði-
móttöku á vegum geðsviðs Landspítalans á gömlu
heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Enn sem
komið er hafa fáir sótt þangað, en viðbúnaðurinn
er til staðar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
tók jafnframt upp sérstakar merkingar á þeim
komum á heilsugæslustöðvar sem þeir telja að
megi rekja til kreppunnar og er það lofsvert fram-
tak.
Best er að halda sig við staðreyndir og trúa
ekki flökkusögum sem oft blómstra á tímum sem
þessum. Þannig er ekkert enn sem komið er sem
bendir til þess að sjálfvígum hafi fjölgað. Ekki
hefur heldur orðið vart aukningar á notkun svefn-
lyfja og róandi lyfja þótt ýjað hafi verið að því að
notkun þeirra hafi tvöfaldast.
Eins og kunnugt er hafa daprar efnahagshorfur
almennt orðið til þess að almenningur sparar við
sig hvers konar útgjöld. Líklega er það ástæðan
fyrir því að sókn að heilbrigðisþjónustunni minnk-
ar tímabundið. Þungi kreppunnar er enn ekki far-
inn að segja til sín. Margir eru önnum kafnir við að
bjarga ýmsum málum og hugurinn bundinn við
það. Rannsóknir hafa sýnt að atvinnulausir leita
meira til heilbrigðisþjónustunnar en aðrir, en þær
sýna jafnframt að algengt er að atvinnulausir hafi
heilbrigðisvanda sem ekki kemur til kasta heil-
brigðisþjónustunnar fyrr en seint og síðar meir,
þegar erfiðara er að ráða við hann. Því er mik-
ilvægt á tímum kreppu og atvinnuleysis að hafa
sem minnstar aðgangshindranir að grunnþjónust-
unni. Vissulega eru þjónustugjöld hér lág og flest-
um ekki ofviða, en þetta kann að breytast þegar
fólk hefur minna á milli handanna. Undirrituðum
er þegar kunnugt um einstaklinga sem hafa
frestað því að leysa út lyf og frestað tímum hjá
sjúkraþjálfara þar sem fólk hefur ekki talið sig hafa
efni á þjónustunni eins og stendur.
Þegar þetta er ritað er enn óljóst um lán frá
Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Lánum þeirrar stofn-
unar fylgja gjarnan kröfur um samdrátt í ríkisút-
gjöldum. Kostnaður hins opinbera við heilbrigð-
isþjónustuna hér á landi nemur um 20% af ríkisút-
gjöldum. Líklegt má telja að krafist verði sparn-
aðar í heilbrigðiskerfinu ekki síður en á öðrum
sviðum. Landlæknisembættið hefur lagt áherslu
á að sá sparnaður komi ekki þar sem ætla má að
helst verði aukning þegar áhrifa kreppunnar fer að
gæta í meira mæli og að sem minnst verði skorið
niður í almennri heilsugæslu og á geðsviði.
LÆKNAblaðið 2008/94 805