Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 50
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
SVEFNRANNSÓKNIR
R
Nýjung á sviði svefnrannsókna
„Við vissum að mikil stígandi var í svefnrannsóknum á börnum en
rétta tækjabúnaðinn vantaði," segir Kormákur Hermannsson, mark-
aðsstjóri og hönnuður Noxmedical, fyrirtækis sem hefur sérhæft sig í
hönnun nýs tækja- og hugbúnaðar til svefnrannsókna á börnum. Nú
hefur Noxmedical þróað og hannað nýtt svefnmælitæki, NOX-T3,
sem vakið hefur mikla athygli fyrir þá nýju möguleika til svefnrann-
sókna sem það býður uppá.
„Tækin sem fyrir voru á markaðnum eru óhentug,
þau eru fyrirferðarmikil og flókin, með margar
leiðslur eða þau eru of einföld, og rannsóknargildi
þeirra því takmarkað. Við vildum búa til þráðlaust
tæki, sem hefði nægilega margar rásir til að skila ít-
arlegum rannsóknarupplýsingum en væri um leið
bæði einfalt og þægilegt í notkun." Noxmedical
er ekki gamalt fyrirtæki, var stofnað fyrir tveimur
árum með styrk frá Tækniþróunarsjóði til þess
að vinna að vélbúnaði til svefngreininga barna.
Fyrirtækið sameinaðist hugbúnaðarfyrirtæki í
sama geira í upphafi þessa árs og við það varð til
fyrirtæki sem að ræður yfir þekkingu til þess að
skapa heildarlausnir fyrir svefnrannsóknir. "Við
vorum búnir að sjá hagræðið við samruna fyr-
irtækjanna talsvert löngu fyrr og vorum í rauninni
farnir að starfa sem eitt fyrirtæki fyrir tveimur
árum þó formlegur samruni yrði ekki fyrr en í
janúar á þessu ári," segir Guðmundur Sævarsson.
Hávar
Sigurjónsson
Þóttum ekki góðir í bissness
Það sem vekur athygli blaðamanns er hversu lítið
er lagt upp úr yfirbyggingu fyrirtækisins, hún
Kynslóðaskipti í svefnmælitækjum með NOX-T3.
er bókstaflega engin, og allir starfsmennirnir sjö
eru greinilega gagnteknir af starfi sínu, láta ytri
aðstæður lítt á sig fá. Þeir hafa greinilega ekki látið
glepjast af góðærinu svokallaða sem ríkti um skeið
til skamms tíma.
Þau sem starfa hjá Noxmedical eru Sveinbjöm
Höskuldsson, Guðmundur Sævarsson, Ómar
Hilmarsson, Kolbrún Eydís Ottósdóttir, Björgvin
Guðmundsson, Hjörtur Arnarson og Kormákur
H. Hermannsson.
„Við vorum nú hreinlega álitin hálfgerðir asnar
að taka ekki erlend lán og fjármagna laun okkar
og framleiðslu upp í topp með þeim hætti. Við
gerðum okkur grein fyrir að eina leiðin til að þetta
gengi upp væri að standa undir þessu sjálfir og
greiddum okkur því lágmarks laun á meðan við
værum að koma þessu af stað. Það þótti náttúrlega
mjög skrýtið að menn með tölvu- og verkfræði-
menntun væru á lágmarkslaunum þegar hægt var
að ganga inn í næsta banka og þiggja góð laun við
að sýsla með hlutabréf. Við höfðum bara engan
áhuga á því og héldum því bara áfram að þróa
okkar hluti," segja þeir og standa nú með pálmann
í höndunum. Fyrirtækið skuldlaust með nýtt tæki
að detta inn á markað sem bíður óþreyjufullur
eftir því. „Þetta lítur vel út," segja þeir en vilja þó
ekki upplýsa nákvæmlega hversu margar pant-
anir liggja fyrir.„Við höfum farið með prótótýp-
una á sýningar og fengið gríðarlega góð viðbrögð.
Það lofar góðu. Dreifing tækisins mun fara fram
í gegnum fyrirtækið CardinalHealth sem sér um
markaðsetningu og sölumálin. Við fengum síðan
kínverskan undirverktaka til að sjá um framleiðsl-
una og höfum verið með annan fótinn í Kína und-
anfarið vegna þess. Þetta er allt núna á lokastigi og
fyrsta sending af nýja mælitækinu kemur á mark-
að í Evrópu um miðjan janúar," segja þeir.
Svefngreining hefur verið vaxandi rannsókn-
argrein og má segja að Islendingar hafi náð nokk-
urri forystu í þeim rannsóknum snemma á tíunda
áratug síðustu aldar undir handleiðslu Þórarins
Gíslasonar og Helga heitins Kristbjarnarsonar sem
ásamt samstarfsmönnum sínum hönnuðu fyrstu
stafrænu svefnmælitækin. Helgi stofnaði fyrirtæk-
ið Flögu í kringum hönnun sína og óx fyrirtækið til
þess að verða að alþjóðlegu almenningshlutafélagi
skráðu í Kauphöllinni. Starfsemi Flögu á Islandi
var hins vegar flutt til Bandaríkjanna og Kanada
árið 2006. Um aðdraganda þess að þannig fór um
starfsemi Flögu segja þeir: „Þetta er flókin saga og
á köflum ekki skemmtileg og óþarfi að rifja hana
846 LÆKNAblaðið 2008/94