Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 49
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LÍFFÆR AFRÆÐI GRAYS isins. „Kertnsla í líffærafræði í grunnnámi lækn- isfræði hefur á seinni árum færst sífellt meira yfir í vinnu með myndir, tölvuforrit og líkön og því er mjög mikilvægt að slíkt sé fagmannlega og nákvæmlega unnið. Ekki hefur verið kennd líffærafræði með krufningum hér á íslandi síðan 1980 en það sumar var síðasta krufningaferð íslenskra læknanema á erlenda grund. Það er yfirleitt ekki fyrr en komið er í sémám í einstökum greinum skurðlækninga sem notast er við lík til kennslu og æfinga. Áherslan sem ég lagði efn- islega á ritstjórn kaflans er í sem stystu máli sú að hann gagnist læknum og læknanemum sem best í klínískri vinnu; bókinni er ætlað það hlutverk að veita klíníska nálgun á námi í líffærafræði og hefur áherslan frá einni útgáfu til annarrar stöðugt færst meira í þá átt," segir Hannes. Gray's Anatomy hefur komið út í fimm millj- ónum eintaka frá upphafi og er gefin út bæði í Englandi og Bandaríkjunum og hefur það tíðkast frá því í byrjun síðustu aldar. Ekki er mikið vitað um höfundinn Henry Gray, en hann lést aðeins 34 ára gamall úr bólusótt (smallpox), þremur árum eftir útkomu bókarinnar og var hann þá þegar nær búinn að ganga frá endurskoðuðum texta næstu útgáfu, en sá texti hefur aldrei fundist. Engar dag- bækur eru til eftir Gray og persónulegt líf hans því að miklu leyti á huldu. „Eins og í nýjustu útgáf- unni fólust gæði fyrstu útgáfu bókarinnar ekki að- eins í textanum heldur einnig í frábærum mynd- um sem annar læknir, Henry Vandyke Carter, teiknaði og voru þær myndir notaðar lengi síðan. Þeir Henryarnir þekktust vitaskuld vel og má í dagbókarfærslum Carters lesa um samskipi þeirra og þaðan höfum við upplýsingar um persónu þessa merkilega manns." í afmælisútgáfunni er útgáfusaga verksins rakin, dregið er saman stutt æviágrip þeirra beggja, Henry Grays og Henry Vandyke Carters, og fleiri sem komið hafa að útgáfunni í þau 150 ár sem liðin eru frá því frumútgáfan leit dagsins ljós. Það er svo deginum ljósara að aldrei hefur titill bókarinnar verið jafntamur jafnmörgum eftir að ein vinsælasta læknasápan í alþjóðlegu sjónvarpi var nefnd Grey's Anatomy, þótt spuming sé eftir hvaða greyi hún er nefnd. Hannes Petersen er ritstjóri kaflans um eyrað í afmælis- útgáfu Gray's Anatomy. LÆKNAblaðið 2008/94 845
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.