Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 43
I ' i
Birna Jónsdóttir
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Þórarinn Guðnason,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
ritari
Elínborg Bárðardóttir
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
Kristján G. Guðmundsson
Sigurður Böðvarsson
Valgerður Rúnarsdóttir
í pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
ú R
UMRÆÐUR OG FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Kvenlæg gildi - áhættumeðvitund
í efnahagskreppu
Gylfi Zoéga hagfræðingur, sem hafði framsögu á
síðasta aðalfundi LI, í kjaramálahluta fundarins,
var í pallborðsumræðum á fundi viðskiptaráðs 18.
nóvember sem bar yfirskriftina: „Fjármálakreppan
- er lausn í sjónmáli". A þessum fundi lýsti hann
framtíðarsýn á efnahagsástandið og taldi að við
fengjum mjög djúpa lægð, með atvinnuleysi
kringum 10% og taldi að lending okkar yrði hörð,
kallaði hana „móður harðra lendinga". Eg neita
því ekki að ég hrökk við í sætinu. Myndlíkingar úr
gamalli sjómennsku hafa verið ákaflega vinsælar í
umfjöllun um „strand þjóðarskútunnar", að „ausa
bátinn", „leggjast á árarnar" hefur verið mikið
notað. Minna hefur verið sótt til kvenna og því
kom orðanotkun Gylfa mér á óvart. Hins vegar
er nú svo komið að farið er að kalla eftir breytt-
um viðhorfum til stýringar fjármálastofnunum
landsins og gerast háværari þær raddir sem líta
til kvenna. Það þarf að „hreinsa til". Ársgamalt
fjárfestingafyrirtæki rekið af konum byggir á við-
horfum sem þær kalla „áhættumeðvituð". Þær
afþökkuðu gildi útrásarvíkinganna og efnahags-
kerfi vafninga. Undir formerkjum kvenlægra gilda
þegar áhættan er betur meðvituð er afkoman ekki
eins sveiflukennd.
Lítil saga úr nærumhverfi mínu hefur sótt
á hugann í hremmingunum að undanförnu.
Vinkona mín var að segja frá afdrifum hlutabréfa
fjölskyldunnar. Þau hjónin höfðu keypt í líf-
tæknifyrirtæki fyrir nokkrum árum og horfðu á
eignina bólgna út. „Við vorum orðið ansi rík, á
pappírunum," sagði hún, „þá hrundu bréfin".
Auðvitað voru þau vonsvikin, en hún tók gleði
sína eftir stutta stund. „Ég fór að hugsa um, að
ef ég væri svona rík, gæti ég ekki lengur notið á
sama hátt og áður þess eðliskosts sem ég hef lengi
þroskað með mér og er stolt af, sem er að geta gert
mikið úr litlu." Það er ef til vill ekki vísindalega
sönnuð staðreynd að konur séu nægjusamari og
hagsýnni en karlar. Vel má vera að það sé frekar
einstaklingsbundið. Ég hef hins vegar heyrt að
vísindalega hafi verið skoðað hvort kynbund-
inn munur sé á því hve dýrar gjafir börnum eru
gefnar. Niðurstaðan var að leikföng drengja voru
dýrari á öllum æviskeiðum og urðu dýrari eftir
því sem þeir eltust. Ég hlustaði á rithöfund á fundi
fyrir skömmu sem sagði sögu úr sinni fjölskyldu.
Hann hafði viljað kaupa sér atvinnuhúsnæði sem
honum bauðst að fjármagna á hagstæðu mynt-
körfuláni, en fékk ekki fyrir frúnni. Eiginkonan
vildi að hann kæmi sér fyrir í bílskúrnum við
skriftirnar. Samningar tókust milli þeirra um að
hann leigði atvinnuhúsnæði. Eins og málin hafa
þróast á lánamarkaðnum sagði hann líklegt að
fjölskyldan væri flutt í skúrinn hefði hann ráðið
ferðinni einn. Mórallinn í sögu hans var að þau
bættu hvort annað upp. Hrun bankakerfisins skýr-
ist af ofvexti í bönkunum og skulda- og eignastaða
landsins var ofþanin, þessar eru helstu skýring-
arnar á fyrirsjáanlegri óvenju harðri lendingu
í efnahagsmálum, „móður harðra lendinga" á
fslandi, ásamt lengri kreppu en í nágrannalönd-
unum, eins og okkur er nú spáð.
Hlutverk LÍ við þessar aðstæður er alveg ljóst.
Okkar ber að standa vörð um læknisþjónustu
á íslandi. Vil ég sérstaklega benda á áskorun
stjórnar LÍ sem send var í lok október til íslenskra
stjómvalda en þar segir meðal annars:
„Ríkisstjórnin hefur í ljósi aðstæðna boðað nið-
urskurð á opinberum útgjöldum. Stjóm Lækna-
félagsins varar við því að útgjöld til heilbrigðismála
verði lækkuð . . . Stjórn Læknafélags íslands legg-
ur áherslu á að framlög til heilbrigðismála verði
fremur aukin til þess að hægt verði að mæta þeim
heilbrigðisvandamálum sem fylgja núverandi
fjármálakreppu ... Stjórn Læknafélagsins telur að
brýnt sé að halda áfram þeirri uppbyggingu sem á
sér stað í heilbrigðismálum. Hún áréttar að nú sé
enn mikilvægara en áður að hefja byggingu nýs
húsnæðis undir starfsemi Landspítalans. Bygging
spítala felur í sér mörg störf í byggingargeiranum
á tímum þar sem atvinnuleysi verður umtalsvert
. . . Þá telur stjóm Læknafélags íslands mikilvægt
að stjórnvöld finni verkefni við hæfi fyrir þau sem
missa atvinnuna. Brýnt er að auka aðgang að námi
eða starfsmenntun þann tíma sem starfsmissir
varir. Er í því sambandi minnt sérstaklega á ungt
fólk, sem atvinnuleysi hefur afar slæm áhrif á."
Læknar eru ábyrgir fyrir lækningum. Stjórn-
málamennirnir eru ábyrgir vegna strandsins.
Þeirra er að setja lögin, skipa embættismenn og
halda uppi eftirlitsaðgerðum.
LÆKNAblaðið 2008/94 839