Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 21
F R
ÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
mg/L í 12 mg/L á tveim vikum. Þrem mánuðum
síðar fór sjúklingur aftur að fá versnandi gama-
stífluköst. í byrjun janúar 2008 var því gerð aðgerð
svipuð þeirri sem lýst er í fyrra tilfellinu. Eftir það
linnti verkjum og sjúklingur fór að nærast. Hann
var settur á tamoxífen 20 mg á dag og haldið var
áfram að lækka prednisólónskammtinn. Tveimur
mánuðum eftir aðgerð fékk sjúklingur nýragræð-
ling frá móður sinni.
Yfirlit
Tíðni
Arið 1980 greindist umlykjandi lífhimnuhersli
í fyrsta sinn hjá kviðskilunarsjúklingi.10 Tafla II
sýnir niðurstöður stærstu faraldsfræðilegra rann-
sókna sem gerðar hafa verið á sjúkdómnum.11-14 í
framskyggnri japanskri rannsókn var nýgengið 0%
eftir 3 ár í kviðskilun, 0,7% eftir 5 ár, 5,9% eftir 10
ár og 17,2 % eftir meira en 15 ár.11 í ástralskri rann-
sókn var árlegt nýgengi 0,19% á árunum 1980-1989
og 0,44% á árunum 1990-1994.13 Nýgengið jókst
með meðferðarlengd og var þannig 6,4% eftir 5 ár
og 19,4% eftir 8 ár.13 Rannsóknir gefa þannig skýra
mynd af nýgengi sem eykst með tímanum í tvenn-
um skilningi, það er að segja frá ári til árs og með
meðferðarlengd.15
Umlykjandi lífhimnuhersli greinist oft mánuð-
um og jafnvel árum eftir að kviðskilun er hætt og
þá oftast hjá nýraþegum. í mörgum greinum er
ekki minnst á hlut nýraþega en í japönsku rann-
sókninni voru þeir meirihluti tilfella.11
Orsnkir
Umlykjandi lífhimnuhersli kemur fyrir hjá öðrum
en kviðskilunarsjúklingum og stundum finnst
engin orsök.16 f gagnasöfnum er umfjöllun um
slík tilfelli hverfandi miðað við þau sem tengjast
kviðskilun. í árdaga kviðskilunar með pokaskipt-
um mátti rekja flest tilfellin til asetats í skilvökva
og/eða klórhexídíns í sótthreinsunarvökva.17'18 Á
níunda áratugnum var notkun þessara efna bönn-
uð á kviðskilunardeildum og skýrir því ekki þau
tilfelli sem greinst hafa síðustu 15-20 árin. Ekki er
loku fyrir það skotið að einhver þeirra efna sem nú
er stundum bætt í skilvökva (til dæmis sýklalyf og
heparín) geti haft skaðvænleg áhrif á lífhimnuna.
Aldur, kyn og grunnsjúkdómur í nýrum virðast
ekki hafa þýðingu.11
Kviðskilun sem slík veldur breytingum á líf-
himnu sem leiða til aukins gegndræpis eins og fyrr
greinir.19 Mikill meirihluti sjúklinga með umlykj-
andi lífhimnuhersli hefur haft mjög gegndræpa líf-
himnu fyrir greiningu.20 Tími í kviðskilun er besti
forspárþáttur umlykjandi lífhimnuherslis.21 Þessi
atriði styðja þá kenningu að myndun umlykjandi
Mynd 1. Myndin sýnir þykka lífhimnu sem myndar hjúp utan um garnirnar.
lífhimnuherslis sé í raun fyrirsjáanleg þróun hjá
sjúklingi í kviðskilun til langs tíma. Svonefnd
second /)/f-kenning gerir hins vegar ráð fyrir að ein-
hver annar þáttur en áfallalaus kviðskilun útleysi
sjúkdóminn eða flýti fyrir þróun hans og er þar
helst litið til lífhimnubólgu og nýraígræðslu.15,22/23
I framskyggnu japönsku rannsókninni greind-
ist umlykjandi lífhimnuhersli í kjölfar lífhimnu-
bólgu hjá 25% sjúklinga en í áströlsku rannsókn-
inni hjá 40%.n'13 Margir sjúklingar mynda ekki
umlykjandi lífhimnuhersli þrátt fyrir cndurtekna
lífhimnubólgu og margir með þekkt umlykjandi
lífhimnuhersli hafa aldrei fengið lífhimnubólgu.21
Þannig virðist lífhimnubólga skipta máli fyrir
þróun umlykjandi lífhimnuherslis hjá hluta
Mynd 2. Á myndinni sést
lífhimnusýni. lðraþekjan
er horfin en eftir stendur
þykkt,frumufátækt band-
vefslag.
LÆKNAblaðið 2008/94 817