Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 67
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
MYND MÁNAÐARIN
'< / /
/fremri röð á myndinni eru Stefán Guðnason, Níels Dungal og Jón Karlsson en íþeirri aftari Bragi Ólafsson, Gísli Fr. Petersen, Sigurður Sigurðsson, Karl
Jónasson, Þórður Þórðarson, Jón Steffensen og Ólafur Einarsson.
Þýskalandsferð læknanema 1929
Páll
Ásmundsson
í desember 1928 sigldu níu læknanemar á síðasta
ári náms síns áleiðis til Þýskalands. Fararstjóri
þeirra var Níels Dungal dósent. Hópurinn kom
til Hamborgar 4. janúar. Þar tók á móti þeim
m.a. Brauer nokkur prófessor og dr. Dannmeyer,
þekktur vísindamaður og íslandsvinur. Greiddu
þessir tveir mjög götu íslendinganna. Hópurinn
ferðaðist víða um Þýskaland, skoðaði fjölda heil-
brigðisstofnana og hlýddi á fyrirlestra frægra
lækna. Meðal þeirra má nefna hinn fræga prófess-
or Sauerbruch sem næstum braut sig sjálfur er
hann ætlaði að sýna við hvaða aðstæður menn
hlytu handleggsbrot. Meðal borga sem þeir
félagar heimsóttu má nefna Berlín, Halle, Jena,
Núrnberg, Wiesbaden, Dusseldorf og Dortmund
að ógleymdri Hamborg en þar dvöldu þeir í þrjár
vikur. Á heimleið með Esju voru þeir fjóra daga að
komast gegnum ís á Eyrarsundi.
Níels Dungal ritaði ferðasögu hópsins og birt-
ist hún í Jjeknablaðinu, 15. árgangi (1929) á bls. 48.
Konunglegur hirðljósmyndari, Ólafur Magnússon,
tók myndina sem er í einkaeign.
LÆKNAblaðið 2008/94 863