Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 67

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 67
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI MYND MÁNAÐARIN '< / / /fremri röð á myndinni eru Stefán Guðnason, Níels Dungal og Jón Karlsson en íþeirri aftari Bragi Ólafsson, Gísli Fr. Petersen, Sigurður Sigurðsson, Karl Jónasson, Þórður Þórðarson, Jón Steffensen og Ólafur Einarsson. Þýskalandsferð læknanema 1929 Páll Ásmundsson í desember 1928 sigldu níu læknanemar á síðasta ári náms síns áleiðis til Þýskalands. Fararstjóri þeirra var Níels Dungal dósent. Hópurinn kom til Hamborgar 4. janúar. Þar tók á móti þeim m.a. Brauer nokkur prófessor og dr. Dannmeyer, þekktur vísindamaður og íslandsvinur. Greiddu þessir tveir mjög götu íslendinganna. Hópurinn ferðaðist víða um Þýskaland, skoðaði fjölda heil- brigðisstofnana og hlýddi á fyrirlestra frægra lækna. Meðal þeirra má nefna hinn fræga prófess- or Sauerbruch sem næstum braut sig sjálfur er hann ætlaði að sýna við hvaða aðstæður menn hlytu handleggsbrot. Meðal borga sem þeir félagar heimsóttu má nefna Berlín, Halle, Jena, Núrnberg, Wiesbaden, Dusseldorf og Dortmund að ógleymdri Hamborg en þar dvöldu þeir í þrjár vikur. Á heimleið með Esju voru þeir fjóra daga að komast gegnum ís á Eyrarsundi. Níels Dungal ritaði ferðasögu hópsins og birt- ist hún í Jjeknablaðinu, 15. árgangi (1929) á bls. 48. Konunglegur hirðljósmyndari, Ólafur Magnússon, tók myndina sem er í einkaeign. LÆKNAblaðið 2008/94 863

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.