Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 56
■ UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR L Y F S A L A Góð og gegn lyf hverfa fyrirvaralaust I Læknablaðið hefur haft af því spumir að talsverðrar ónægju gætti I meðal lækna Læknavaktarinnar og skjólstæðinga hennar um tak- I markaðan afgreiðslutíma lyfjabúða á Reykjavíkursvæðinu. Einnig að I framboð ýmissa algengra lyfja sé stopult og þau hverfi fyrirvaralaust I af markaði eða önnur lyf komi í staðinn án þess að læknarnir fái upp- I lýsingar þar að lútandi fyrr en seint og um síðir. Vissulega eru aðrar lausnir til staðar ef ein- hver er svo bráðveikur að næturlagi að ekki getur beðið. Þá höfum við annars vegar lyfjakassann okkar til að grípa til og hins vegar getum við sent sjúklinginn á bráðamóttöku sjúkrahúsanna." Þórður Ólafsson læknir á Heilsugæslustöð Efra- Breiðholts og yfirlæknir Læknavaktarinnar varð fyrir svörum um þessi mál. „Það voru gerðar breytingar fyrir um 10 árum á lögum og reglugerð um afgreiðslutíma lyfjabúða þar sem lögð var niður næturvarsla apótekanna eins og tíðkast hafði um árabil. I framhaldi af þessu var gert samkomulag við Læknavaktina um afhendingu lyfjaskammta í neyð að næturlagi. Hugmyndin var í upphafi að lyfjabúðir vaktsvæð- isins tækju sig saman og gerðu samkomulag við okkur en það gekk aldrei upp og á endanum tók Lyfja á Smáratorgi þetta að sér árið 2001 og hefur síðan séð um næturlyfjakassa með algengustu lyfjum sem við læknarnir ákveðum hver eigi að vera. Þetta hefur alltaf átt að vera neyðarúrræði enda hefur Læknavaktin ekkert svigrúm til að reka næturapótek. Það stóð aldrei til, heldur að við gætum afgreitt fólk í neyð með lítinn lyfjaskammt sem dygði yfir nóttina. Þetta á sérstaklega við for- eldra með lítil börn. Þetta eru bara örfá lyf sem við getum nýtt okkur og það má gjarnan koma fram að þessir lyfjaskammtar eru gefnir af apótekinu." Þórður segir að vissulega skapist óþægindi af því að fólk hafi ekki aðgang að lyfjabúð að næt- urlagi og það bitni helst á foreldrum ungra barna. „Við vitum fullvel að fólk hefur verið óánægt með að hafa ekki aðgang að lyfjabúðum á nóttunni þó lyfjabúðirnar hafi sýnt fram á að nánast engin eftirspurn væri eftir lyfjum á tímanum 24-8 á nótt- unni. Þau sögðu að það svaraði alls ekki kostnaði að hafa lyfjafræðing á næturvakt." Læknablaðið fékk þetta staðfest hjá Lyíjastofnun og að engar kvartanir hefðu borist stofnuninni í þau tíu ár sem liðin eru frá því þetta var ákveðið. „Eflaust er það rétt en þeir sem finna hvað mest fyrir þessu er foreldrar með ungbörn sem hringja í okkur á Læknavaktina seint að kvöldi eða næturlagi og fá þær ráðleggingar að gefa barninu hitalækkandi lyf en uppgötva þá að ekk- ert slíkt er til á heimilinu og öll apótekin lokuð Hávar næstu átta klukkustundirnar. Það getur verið mjög Sigurjónsson óþægiiegt. Algeng lyf horfin af markaði „Við höfum haft áhyggjur af því að ýmis algeng lyf hafa verið ófáanleg oft á tíðum á síðustu mánuðum og einnig hafa ýmis algeng og góð lyf verið tekin fyrirvaralaust af markaði án þess að við læknarnir vitum af því. Þetta er ekki sérstakt áhyggjuefni okkar á Læknavaktinni heldur snertir lækna heilsugæslunnar almennt. Það sem vekur undrun okkar er einnig að ýmis ódýr og góð lyf hafa dottið af skrá undanfarið og við vitum ekkert af hverju," segir Þórður. Aðspurður nefnir hann ýmis lyf sem ýmist hafi ekki fengist tímabundið eða horfið alveg af markaði. „Caps amoxicillin, algengt sýklalyf, fékkst ekki um tíma og ekki heldur T Ibufen en þau komu nú aftur. Thyroxin hvarf fyrir nokkrum árum og menn voru hræddir um að ekkert kæmi í staðinn en því var reddað minnir mig á síðasta snúningi. Nitrofurantoin, sem er sýklalyf við þvag- færasýkingum, ódýrt og töluvert notað lyf, hvarf allt í einu. Löngu seinna kom það inn aftur sem Furadantin. Þvagsýrugigtarlyfið Apurin var tekið af skrá en svo kom í staðinn lyf sem heitir Hexanurat og enn þurfum við alltaf að gera undanþáguseðil fyrir því lyfi þó algengt sé. Við stöndum uppi með að hafa mjög lítið úrval dropa í eyru, til dæmis er Locacorten vioform farið og allir deyfidropar í eyru eru hættir að fást, svo sem Audax og Ciloprin c anesthetico. Augn- og eyrnadroparnir Hydrocortison terramycin og polymyxin B fengust ekki um tíma. Topisin og Tópkorton voru mikið notuð smyrsli en hurfu allt í einu af markaði. Hydramil virðist farið af skrá, sem er algengt blóðþrýstingslyf en hefur ekki verið kynnt frekar en annað. í staðinn er hægt að fá Sparkal. Gigtarlyfið Arthrotec hætti allt í einu að fást í haust. Úrlausnin fyrir þá sem ekki gátu notað annað var að kaupa Voltaren og Cytotec hvort í sínu lagi sem er miklu dýrara. Erythromycin mixtúra var allt í einu tekin af skrá (sýklalyf) og nú þarf að nota í staðinn dýrara lyf, til dæmis Klacid. 852 LÆKNAblaðið 2008/94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.