Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2008, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.12.2008, Qupperneq 43
I ' i Birna Jónsdóttir Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guðnason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Elínborg Bárðardóttir Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir Kristján G. Guðmundsson Sigurður Böðvarsson Valgerður Rúnarsdóttir í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. ú R UMRÆÐUR OG FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Kvenlæg gildi - áhættumeðvitund í efnahagskreppu Gylfi Zoéga hagfræðingur, sem hafði framsögu á síðasta aðalfundi LI, í kjaramálahluta fundarins, var í pallborðsumræðum á fundi viðskiptaráðs 18. nóvember sem bar yfirskriftina: „Fjármálakreppan - er lausn í sjónmáli". A þessum fundi lýsti hann framtíðarsýn á efnahagsástandið og taldi að við fengjum mjög djúpa lægð, með atvinnuleysi kringum 10% og taldi að lending okkar yrði hörð, kallaði hana „móður harðra lendinga". Eg neita því ekki að ég hrökk við í sætinu. Myndlíkingar úr gamalli sjómennsku hafa verið ákaflega vinsælar í umfjöllun um „strand þjóðarskútunnar", að „ausa bátinn", „leggjast á árarnar" hefur verið mikið notað. Minna hefur verið sótt til kvenna og því kom orðanotkun Gylfa mér á óvart. Hins vegar er nú svo komið að farið er að kalla eftir breytt- um viðhorfum til stýringar fjármálastofnunum landsins og gerast háværari þær raddir sem líta til kvenna. Það þarf að „hreinsa til". Ársgamalt fjárfestingafyrirtæki rekið af konum byggir á við- horfum sem þær kalla „áhættumeðvituð". Þær afþökkuðu gildi útrásarvíkinganna og efnahags- kerfi vafninga. Undir formerkjum kvenlægra gilda þegar áhættan er betur meðvituð er afkoman ekki eins sveiflukennd. Lítil saga úr nærumhverfi mínu hefur sótt á hugann í hremmingunum að undanförnu. Vinkona mín var að segja frá afdrifum hlutabréfa fjölskyldunnar. Þau hjónin höfðu keypt í líf- tæknifyrirtæki fyrir nokkrum árum og horfðu á eignina bólgna út. „Við vorum orðið ansi rík, á pappírunum," sagði hún, „þá hrundu bréfin". Auðvitað voru þau vonsvikin, en hún tók gleði sína eftir stutta stund. „Ég fór að hugsa um, að ef ég væri svona rík, gæti ég ekki lengur notið á sama hátt og áður þess eðliskosts sem ég hef lengi þroskað með mér og er stolt af, sem er að geta gert mikið úr litlu." Það er ef til vill ekki vísindalega sönnuð staðreynd að konur séu nægjusamari og hagsýnni en karlar. Vel má vera að það sé frekar einstaklingsbundið. Ég hef hins vegar heyrt að vísindalega hafi verið skoðað hvort kynbund- inn munur sé á því hve dýrar gjafir börnum eru gefnar. Niðurstaðan var að leikföng drengja voru dýrari á öllum æviskeiðum og urðu dýrari eftir því sem þeir eltust. Ég hlustaði á rithöfund á fundi fyrir skömmu sem sagði sögu úr sinni fjölskyldu. Hann hafði viljað kaupa sér atvinnuhúsnæði sem honum bauðst að fjármagna á hagstæðu mynt- körfuláni, en fékk ekki fyrir frúnni. Eiginkonan vildi að hann kæmi sér fyrir í bílskúrnum við skriftirnar. Samningar tókust milli þeirra um að hann leigði atvinnuhúsnæði. Eins og málin hafa þróast á lánamarkaðnum sagði hann líklegt að fjölskyldan væri flutt í skúrinn hefði hann ráðið ferðinni einn. Mórallinn í sögu hans var að þau bættu hvort annað upp. Hrun bankakerfisins skýr- ist af ofvexti í bönkunum og skulda- og eignastaða landsins var ofþanin, þessar eru helstu skýring- arnar á fyrirsjáanlegri óvenju harðri lendingu í efnahagsmálum, „móður harðra lendinga" á fslandi, ásamt lengri kreppu en í nágrannalönd- unum, eins og okkur er nú spáð. Hlutverk LÍ við þessar aðstæður er alveg ljóst. Okkar ber að standa vörð um læknisþjónustu á íslandi. Vil ég sérstaklega benda á áskorun stjórnar LÍ sem send var í lok október til íslenskra stjómvalda en þar segir meðal annars: „Ríkisstjórnin hefur í ljósi aðstæðna boðað nið- urskurð á opinberum útgjöldum. Stjóm Lækna- félagsins varar við því að útgjöld til heilbrigðismála verði lækkuð . . . Stjórn Læknafélags íslands legg- ur áherslu á að framlög til heilbrigðismála verði fremur aukin til þess að hægt verði að mæta þeim heilbrigðisvandamálum sem fylgja núverandi fjármálakreppu ... Stjórn Læknafélagsins telur að brýnt sé að halda áfram þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðismálum. Hún áréttar að nú sé enn mikilvægara en áður að hefja byggingu nýs húsnæðis undir starfsemi Landspítalans. Bygging spítala felur í sér mörg störf í byggingargeiranum á tímum þar sem atvinnuleysi verður umtalsvert . . . Þá telur stjóm Læknafélags íslands mikilvægt að stjórnvöld finni verkefni við hæfi fyrir þau sem missa atvinnuna. Brýnt er að auka aðgang að námi eða starfsmenntun þann tíma sem starfsmissir varir. Er í því sambandi minnt sérstaklega á ungt fólk, sem atvinnuleysi hefur afar slæm áhrif á." Læknar eru ábyrgir fyrir lækningum. Stjórn- málamennirnir eru ábyrgir vegna strandsins. Þeirra er að setja lögin, skipa embættismenn og halda uppi eftirlitsaðgerðum. LÆKNAblaðið 2008/94 839
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.