Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 30

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 30
FRÆÐIGREIN YFIRLITSGR A R E I N Meðferðarúrræði við gaumstoli Vegna þess hve margbreytileg gaumstolseinkenni geta verið hafa mörg meðferðarúrræði verið þróuð við trufluninni. Árangur af notkun þeirra er misgóður og hafa þau í mörgum tilfellum einungis áhrif á tiltekin einkenni. Þessi flóra mismunandi úrræða skýrist einnig að nokkru leyti af takmörk- uðum skilningi á eðli gaumstols þar sem kenn- ingar um gaumstol hafa ekki alltaf verið hafðar til hliðsjónar við þróun meðferðarúrræða. Þær meðferðir sem hér verður fjallað um hafa gefið hvað bestan árangur. Þær eiga það sameiginlegt að skila mestum árangri sé þeim beitt endurtekið. Jafnframt er samhliða beiting mismunandi úrræða talin geta aukið árangur meðferðar enn frekar.6 Meðferð gaumstols er oft og tíðum krefjandi vegna takmarkaðs innsæis sjúklinga í eigin vanda. Þess vegna getur reynst nauðsynlegt að reyna að opna augu sjúklings á eigin vanda áður en með- ferð hefst. Þetta má til dæmis gera með því að gefa sjúklingi dæmi um athyglisvanda hans í daglegu lífi.56 Slíkt eykur jafnframt líkur á að meðferðin skili árangri, sér í lagi þegar um meðferð er að ræða þar sem samvinna við sjúkling er nauðsyn- leg forsenda. Strendings-aðlögun (e. prism adaptation)57 hefur vakið meiri athygli og vonir um áhrifaríka með- ferð en líklega nokkurt annað úrræði.6'21- 58‘66 Einn af helstu kostum aðferðarinnar er að hún er ein- föld, ódýr og fljótleg í framkvæmd.22 Rannsóknir hafa sýnt að strendings-aðlögun getur haft jákvæð áhrif á líkamstöðu, sjónræna ímyndun, augn- hreyfingar, sjónleit og fleiri gaumstolseinkenni.67'72 Dæmigerð strendings-aðlögunarmeðferð felst í að sjúklingur setur upp gleraugu með strendingi sem beinir sjónum þeirra 10° til hægri. Hann er svo beðinn um að benda endurtekið með vísifingri hægri handar á tiltekið áreiti fyrir framan sig sem er hægara sagt en gert því gleraugun valda viki frá áreitunum. Þegar sjúklingurinn sér frávikin aðlagast bendingar hans smám saman að staðsetn- ingu áreitisins, og við lok meðferðar getur hann að jafnaði bent á áreitið án skekkju, vegna breytinga á samspili sjónkerfis og hreyfikerfis. Þegar strend- ings-gleraugun eru svo fjarlægð beinist sjón- og hreyfiskyn sjúklinga því lengra til vinstri en áður og felast meðferðaráhrifin í því. Áhrif strendings- aðlögunar hafa reynst vara lengur en áhrif margra annarra þekktra meðferðarúrræða við gaumstoli, allt frá tveimur klukkustundum58 til nokkurra daga66 eftir staka meðferðarlotu og endurteknar meðferðarlotur hafa skilað enn betri árangri.65 Redding og Wallace73 halda því fram að meðferð- aráhrif strendings-aðlögunar felist í því að viðmið- unarrammi sjúklinga fyrir eigin skynjun og hreyf- ingu færist nær eðlilegu horfi sem leiðir til þess að minnsta kosti hluti vinstra skynsviðsins færist inn í verk-vinnslurými (e. task-work space). Takið einnig eftir því að kenning Karnaths um gaumstol gerir ráð fyrir að miðlína skynsviðs gaumstols- sjúklinga færist til hægri, og ef það er rétt má vera að strendingsaðlögun hafi bein áhrif á afstöðu miðlínunnar. Lífeðlisfræðilegar rannsóknir hafa svo leitt í ljós að virkni á svæðum sem tengjast gaumstoli breytist eftir strendingsaðlögun74 sem rennir frekari stoðum undir þessa meðferð. Sjónsviðsleppun (e. hemifield-patching) felst í að hægra auga sjúklings eða hægra sjónsvið beggja augna er hulið með lepp í nokkra daga. Þessi tækni þvingar fram sjónskönnun sjúklings til vinstri í hans daglega umhverfi. Nokkrar rannsóknir hafa leitt í ljós umtalsverðan bata í að minnsta kosti nokkrar klukkustundir til þriggja mánaða þegar sjónsviðsleppun er beitt endurtekið á nokkurra daga tímabili.75-76 Hugarmyndarþjálfun (e. mental imagary train- ing) byggir á hugarmyndarkenningu Bisiachs um gaumstol. Reynt er með kerfisbundinni sjón- og hreyfiímyndunarþjálfun að styrkja vitund sjúk- lings um vinstri hluta umhverfis síns. Endurtekin þjálfun getur leitt til þess að mörg einkenni gaum- stols minnki og hafa áhrifin þegar best lætur varað allt að hálfu ári.77-78 Sjónræn skönnunarþjálfun (e. visual scanning training) er að líkindum algengasta meðferðin við gaumstoli.79 Reynt er á kerfisbundinn hátt að kenna sjúklingum að beina athyglinni í auknum mæli til vinstri.80'82 Dæmi um slíkt eru ábendingar meðferðaraðila þegar sjúklingur les ekki vinstri hluta setningar eða þegar honum er bent á að finna tiltekið áreiti (eins og til dæmis rauða lóðrétta línu sem má nota í þessu skyni) lengst til vinstri við lestur. Þessi meðferð hefur reynst auðvelda sjúklingum lestur, skrif og að staðsetja hluti.82- 83 Helsti ókosturinn er að yfirfærsla þjálfunar á nýjar aðstæður virðist vera lítil og að meðferðin er tímafrek - endurtekin þjálfun er nauðsynleg til að árangur náist.84 I hálstitrun (e. neck muscle vibration) er púði sem titrar (e. vibration module) festur á ákveðinn stað á hálsi sjúklingsins. Púðinn er látinn titra áður en og/eða á meðan sjúklingar framkvæma tiltekið gaumstolspróf eins og til dæmis sjónleitarverk- efni. Hjöðnun gaumstolseinkenna í kjölfar með- ferðar85 má að líkindum rekja til endurstillingar skynjunar sjúklinga á eigin líkamsmiðju vegna eft- iráhrifa titrunar á innra eyra (e. vestibule) eða vegna raunverulegra skynbreytinga á stöðu höfuðs á búk. Meðferðin hefur reynst bæta árangur gaum- stolssjúklinga á ýmsum taugasálfræðilegum próf- um. Áhrifin eru þó oftast skammvinn eftir staka meðferðarlotu.86'88 Endurtekin meðferð hefur hins 30 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.