Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 51

Læknablaðið - 15.01.2009, Page 51
U M R Æ Ð U R F É L A G 0 G FRÉTTIR UNGLÆKNA mikinn metnað til þess að vera gott foreldri. Ég vil hafa tíma og aðstöðu til að gegna báðum hlutverk- unum mjög vel. Ég vil reyndar taka það fram að ég tel að yngri læknar af karlkyni geri einnig þessar kröfur til samþættingar fjölskyldu- og einkalífs og vinnu enda er föðurhlutverkið að breytast. Möguleikar yngri lækna til að aðlaga starfið að fjölskylduaðstæðum þyrftu að að vera mun meiri en þeir eru í dag. Fjölskyldusjónarmið þurfa að fá meira vægi og við þurfum að gera okkur skýra grein fyrir því að vinnufyrirkomulag innan ákveð- inna spítalasérgreina kalla á lífsstíl sem æ færri eru tilbúnir að gangast inn á." Hjördís segir að áherslan í starfi FUL á næst- unni verði á þessi mál. „Þó má alls ekki sofna á verðinum varðandi kjaramál og nauðsynlegt er að halda áfram að vinna undirbúningsvinnu, svo sem PR-vinnu og fleira. Við munum líka gæta þess vel að ekki sé verið að brjóta kjarasamninga á félagsmönnum okkar og skiptir þá engu hvort kreppa ríkir eða ekki. Við þekkjum mörg dæmi þess að vinnuálagið sé svo mikið að fólk sé að sinna skýrslugerð og frágangi í sínum eigin tíma og það er auðvitað ekki viðunandi." Hjördís Þórey nefnir að lokum ábyrgð lækna í samfélagslegri umræðu og hvernig lýðheilsa í sínu stærsta sam- hengi grundvallist á samfélagslegum og pólitísk- um þáttum. „Ég tel að læknar ættu í auknum mæli að láta til sín taka í þjóðfélagsumræðu því gott heilbrigðiskerfi byggist á sömu gildum og gott þjóðfélag. Ég tel jafnvel að líta megi svo á að það sé hluti af því að rækja skyldur sínar við sjúklinga því það er til einskis fyrir sjúkling að læknir hans hafi gríðargóða fagþekkingu ef kerfið gerir honum ekki kleift að nýta hana í þágu sjúklingsins. Eins og aðrir hafa nefnt hefur heilbrigðiskerfið á und- anfömum ámm verið mótað og því stýrt af öðrum fagstéttum en læknum; lögfræðingum, hagfræð- ingum og stjórnmálafræðingum og sérþekking lækna á málaflokknum hefur á stundum verið fyrir borð borin. Hana mætti nýta miklu betur. Lýðræði, fagleg vinnubrögð stjórnvalda, heið- arleiki og sanngirni eru þau grunngildi þjóðfélags- ins sem læknar geti óhikað staðið vörð um, hvar í flokk sem þeir vilja annars skipa sér." HANDBÓK HJARTAVERNDAR LÆKNAR og HEILBRIGÐIS- STARFSFÓLK Kynnið ykkur helstu niðurstöður Rannsókna Hjartaverndar sl. 40 ár í netútgáfu af Handbók Hjartaverndar á hjarta.is. Þar eru aðgengileg meira en 100 myndir, línurit og töflur um faraldsfræði hjarta- og æðasjúkdóma á íslandi og helstu áhættuþætti þeirra sem nýtast vel til kennslu og fræðslu almennings og heilbrigðisstétta. HJARTAVERND LÆKNAblaðið 2009/95 51

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.