Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Siðblinda
Nanna Briem
geðlæknir
nannabri@landspitali. is
Höfundur starfar á geðsviði
Landspítala Kleppi,
104 Reykjavík.
Siðblindir einstaklingar hafa alltaf verið
til. Siðblinda er persónuleikaröskun, ein sú
alvarlegasta, og er tíðni hennar talin vera um
0,5-1%.1 Siðblindir upplifa síður djúpstæðar
tilfinningar eins og ást, sorg eða tryggð og eru illa
færir um eðlilegt og náið tilfinningalegt samband
við aðra manneskju. Þeir eru kaldlyndir, eiga
erfitt með að setja sig í spor annarra og sjá ekki
annað fólk sem hugsandi tilfinningaverur. Þetta
eru oft sjálfumglaðir og hrokafullir einstaklingar
sem hunsa reglur samfélagsins til þess að
fullnægja eigin þörfum, sama hvað það kostar,
án sektarkenndar eða eftirsjár. Margir siðblindir
eru hvatvísir og hafa litla sjálfsstjórn. Ógnandi
hegðun og ofbeldi eru hluti af vopnabúri þeirra
til að ná markmiðum sínum. Þeir hafa yfirleitt
fá eða engin langtímamarkmið heldur lifa fyrir
daginn í dag og þeim fer fljótt að leiðast ef ekkert
er um að vera til að svala spennufíkninni. Aðrir
siðblindir eru minna bráðir og nota persónutöfra,
lymskulega stjórnsemi, lygar, svik og blekkingar í
samskiptum við aðra. Siðblindir þekkja almennt
muninn á réttu og röngu, eru meðvitaðir um
afleiðingar gjörða sinna, en þeir taka enga ábyrgð
á þeim.1- 2 Sterk tengsl eru milli siðblindu og
beitingar ofbeldis. Um 20% fanga eru siðblindir
og þessir einstaklingar tilheyra hópi erfiðustu og
hættulegustu afbrotamannanna.2 Það eru meiri
líkur á því að siðblindur afbrotamaður brjóti af sér
aftur en sá sem er ekki siðblindur, og sýni af sér
meira og verra ofbeldi.2 En siðblindir finnast ekki
bara bak við lás og slá. Meirihluti þeirra er utan
fangelsismúranna. Þættir eins og greind, góður
fjölskyldubakgrunnur og félagslegir hæfileikar
geta stuðlað að því að framhliðin líti „eðlilega"
út lengi vel. En þetta eru ekki hlýir ástvinir eða
tryggir vinir og kollegar. Þetta eru einstaklingar
sem valda öðrum miklum þjáningum bæði
tilfinningalega og fjárhagslega. Þeir notfæra
sér gjafmildi og trúgirni fólks, misnota traust
og stuðning fjölskyldu og vina ef þeirra eigin
hagsmunir eru í húfi.1
Það kom mönnum á óvart þegar í ljós kom
að siðblindir geta þrifist vel innan fyrirtækja og
í viðskiptalífinu.3 Sálfræðingarnir Robert Hare
og Paul Babiak hafa haldið því fram að tíðni
siðblindu sé ekki bara hærri þar, heldur einnig að
það sé líklegra að finna siðblindan einstakling í
stjórnunarstöðu en í almennu þýði.3 I bók þeirra
„Snakes in suits" reyna þeir að skýra hvernig á
þessu stendur. Fyrirtækin eru kannski að leita að
einstaklingi sem þorir að taka áhættu (spennufíkn),
getur tekið erfiðar ákvarðanir (kaldlyndi, lítil eða
engin samhygð) án þess að samviskan flækist
of mikið fyrir (skortur á sektarkennd og eftirsjá)
og getur fengið fólk í lið með sér og stjórnað því
(stjórnsemi, lygar, blekkingar). Stundum eru þessi
einkenni talin vitna um stjórnunarhæfileika, en
stundum er jafnvel meðvitað leitað að þessum
einkennum siðblindu, því þau eru talin geta
nýst fyrirtækinu. Önnur áhugaverð skýring
er að breytt viðskiptalíf og fyrirtækjamenning
gerir fyrirtækin, ekki síst fjármálafyrirtækin,
eftirsóknarverð fyrir siðblinda. Fyrirtæki sem
voru áður fremur þunglamaleg með mikið
regluverk og eftirlit til að viðhalda gæðum og
framleiðni breyttust vegna harðnandi samkeppni
og urðu einfaldari að uppbyggingu til að auðvelda
skjóta ákvarðanatöku. Breytilegt áhættusamt
umhverfi með fáum reglum til að hefta spennu-,
valda- eða gróðafíkn siðblindra er nokkuð sem
þeir laðast að. Hröð framganga innan fyrirtækis,
há laun og bónusar freista þeirra þar sem þeir
sækjast gjarnan eftir peningum og völdum.
Sérstaklega aðlaðandi fyrir þá er umhverfi þar
sem þeir sem auka gróða fyrirtækisins eru settir
á stall, þótt aðferðirnar hafi verið vafasamar og
jafnvel siðlausar. Hafa verður í huga að siðblindir
hafa enga tryggð við fyrirtækið, bara við sjálfa sig,
og siðblindur einstaklingur getur auðveldlega
skaðað fyrirtækið alvarlega eða jafnvel eyðilagt
það. Vel þekkt dæmi er fyrirtækið Enron og fall
þess.
Robert Hare hefur bent á að í ráðningarferli
ýmissa starfsstétta sé lagt mat á persónuleikann
með ýmsum mælitækjum, til dæmis hjá lög-
reglunni og flugmönnum. Væri ekki þarft og rétt
að gera hið sama við ráðningu þeirra sem eiga
eftir að höndla með milljarða?4
Heimildir
1. Hare RD. Without conscience. The Guilford Press, New York
1999.
2. Hervé H, Yuille JC, editors. The Psychopath: Theory
Research, and Practice. Lawrence Erlbaum Associates,
London 2007.
3. Babiak P, Hare RD. Snakes in suits, when psychopaths go to
work. Collins 2007
4. Deutschman A. Is your boss a psychopath? Fast Company
2005: 96.
LÆKNAblaðið 2010/96 395