Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 54
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
FRÉTTATILKYNNING
Fréttatilkynning
Minningarsjóður Margrétar Oddsdóttur
Ákveðið hefur verið að stofna Minningarsjóð
Margrétar Oddsdóttur og er ætlað að styrkja
skurðlækningar við brjóstakrabbameini við
Landspítala. Að undirbúningi stóðu fulltrúar
lækna og hjúkrunarfræðinga sem annast skurð-
meðferð brjóstakrabbameins, fulltrúar Bætum
einstök brjóst og ættingjar Margrétar. Fyrir liggur
stofnframlag ofangreindra aðila. Fjárvarsla verður
hjá Landspítala.
Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein
hafa batnað mikið síðastliðna áratugi. Vegna
þess hve lífshorfur eru góðar er vaxandi
áhersla skurðmeðferðar lögð á lífsgæði krabba-
meinsgreindra kvenna, m.a. með endursköp-
unaraðgerðum á brjóstum. Skurðmeðferð hefur
því orðið umfangsmeiri þar sem oft fer saman
aðgerð til lækningar á krabbameini og aðgerð til
að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin
veldur. Ör þróun innan þessa sviðs kallar á
meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og
meðferðaraðila. Þessu hefur víða erlendis verið
mætt með stofnun sérhæfðra brjóstamiðstöðva.
Vísir að slíkri miðstöð er á Landspítalanum.
Hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur
er að styðja við þá starfsemi sem þar fer fram.
Þeim læknum sem vilja heiðra minningu
Margétar með því að koma að stofnun sjóðsins
með stofnframlagi er bent á reikningsnúmer
0130-15-381828, kennitala sjóðsins er 700410-1610.
Undirritaður veitir frekari upplýsingar sé þess
óskað. Ennfremur er bent á vefsíðuna brjost.is, þar
sem m.a. má finna skipulagsskrá sjóðsins.
f.h. undirbúningshóps
Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur,
Þorvaldur Jónsson
skurðlækningadeild
Landspítala Hringbraut
101 Reykjavík
4 icelandic medical doctors to Greenland
The Mid-West Greenland Health Region covers 9600 inhabitants, in two maintowns Maniitsoq and Sisimiut and 6 settlements. There are larger
health centers in the towns and smaller clinics in the settlements. All clinics are linked together with a modern tele-medicin facility.
We are well equiped both with the newest technology and a good nursing staff with deferent special skills. We have 9 medical jobs, 5 of them
occupied by permanent medical doctors.
We therefore want to hire 4 icelandic colleges. Surgical experience is not needed. The monthly fee range from 75.000 DKr. to 90.000 kr. dependent
on how many days on call the doctor has. The working medical language is Danish.
If you are interested please contact me:
Chief medical officer
Ove Rosing Olsen
P.O.Box 1013
DK-3911 Sisimiut
Mail: oro@peqqik.gl
442 LÆKNAblaðið 2010/96