Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 43
U M R Æ Ð A 0 G FRÉTTIR
HEIMILISLÆKNAR Á SELFOSSI
Jr
X -A
Gróðurhúsið hefurfengið
nýtt gler og vínviðurinn
dafnar.
stærstu sumarhúsabyggða landsins í Grímsnesi,
uppsveitum Árnessýslu og víðar. „Heilsugæslan
á Selfossi er virk í kennslustarfi og hingað koma
læknanemar og kandídatar og einnig höfum við
haft námslækna í heimilislækningum. Það gefur
starfinu enn meira gildi að hafa hér læknanema
eða lækna í starfsnámi. Niðurskurður vegna
efnahagsástandsins hefur þó því miður einnig
bitnað á þessum þætti starfseminnar hér sem
annars staðar á landinu. Fjármagn verður að fást
til að launa stöður námslækna, annars er hætt við
að þeir fari beint út í sérnám og komi ekki aftur,"
segir Arnar.
Þau segja að allir á svæðinu séu sammála um að
vilja sem mesta og besta þjónustu í heimahéraði.
„Hér hefur verið byggð upp mikil og góð þekking
og teljum við að þjónustan sé mjög góð/' segir
Arnar. „Skilaboð ráðamanna hafa verið mjög
misvísandi, einn heilbrigðisráðherra vill efla
þjónustu í heimabyggð og síðan \'ill sá næsti
draga úr henni," segir Jórunn og hristir höfuðið.
„Spurningin snýst um á hvaða stigi þjónustan hér
á að vera. Vissulega er ekki mikil vegalengd til
Reykjavíkur en þó geta skapast aðstæður þar sem
ekki er alveg einboðið að komast á milli. Okkur
þykir slæmt að hafa misst vakt skurðlæknis
og svæfingalæknis sem lögð var niður um
síðustu áramót vegna niðurskurðar. Þetta þýðir
meðal annars að bruna þarf með fæðandi
konur til Reykjavíkur ef fæðing kallar á slíka
sérfræðinga," segir Jórunn. Arnar bætir því við
að þeim hafi ekki þótt útreikningar sérfræðinga
heilbrigðisráðuneytisins um samanburð á hag-
kvæmni Landspítala og kragasjúkrahúsanna vera
alveg sanngjarnir. „Það má reikna þetta á ýmsa
vegu og fá ýmsar niðurstöður. Hvers vegna ekki
að snúa dæminu við og sjá hvernig það kæmi
út að senda sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu á
kragasj úkrahúsin?"
Jarðskjálftinn gerði usla
Ekki verður skilist svo við læknishjónin Arnar
og Jórunni að líta ekki til þeirra á óðalsjörðina
á bökkum Ölfusár. Húsið er sérstakt útlits,
teiknað af Jóni Haraldssyni arkitekt sem teiknaði
á sínum tíma ekki ófáar heilsugæslustöðvar og
skóla á landsbyggðinni. Byggingarstíll hússins
minnir á slíkt og á það vel við í þessu tilfelli.
„Þetta er í grunninn vel byggt hús enda var
það steypustöðvarstjórinn, Ólafur Jónsson á
Selfossi, sem byggði það á 8. áratug síðustu
aldar. Hann og eiginkona hans, Hugborg, voru
miklir skógræktarfrumkvöðlar og er lóðin sem
er einn hektari mikið til vaxin trjám og njótum
við afraksturs þeirrar vinnu í dag. Hér höfum
við einnig gróðurhús en það fór heldur illa í
jarðskjálftanum fyrir tveimur árum. Mest allt
glerið í því brotnaði og við erum eiginlega fyrst nú
að klára að koma því í lag aftur."
Ibúðarhúsið fór heldur ekki varhluta af
skjálftanum, veggir sprungu, leki og aðrar
skemmdir komu fram og fleiri skemmdir eiga
vafalaust eftir að koma í ljós. „Það hefði sjálfsagt
farið enn verr ef það hefði ekki verið svo
sterklega byggt. Það tók síðan langan tíma að fá
skemmdirnar metnar sem hefur tafið lagfæringar
og endurbætur. Það er talsvert sem þarf að laga og
mikil vinna í kringum það. Framhaldið lofar hins
vegar góðu," segja þau og hlakka til sumarsins í
skjóli trjánna á Ölfusárbökkum.
LÆKNAblaðiö 2010/96 431