Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 34
15. Ráðstefna um rannsóknir í
líf- og heilbrigðisvísindum f Háskóla íslands
5. og 6. jjanúar 2011
Ráðstefnan er haldin á vegum læknadeildar, tannlæknadeildar, lyfjafræðideildar, hjúkrunarfræðideildar, matvæla- og
næringarfræðideildar og sálfræðideildar, námsbrautar í sjúkraþjálfun, námsbrautar í geisla- og lífeindafræði, Miðstöðvar í
lýðheilsuvísindum, og Tilraunastöðvar Háskóla íslands að Keldum. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar og
fulltrúar annarra deilda, námsbrauta og stofnana innan heilbrigðisvísindasviðs Háskóla íslands.
Staðsetning og tími: Háskólatorgi dagana 5. og 6. janúar 2011.
Þátttakendur: Kennarar og starfsmenn ofangreindra deilda og stofnana. Þau sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsfólk deilda og
námsbrauta eru jafnframt velkomin, sama gildir um kennara og starfsmenn annarra deilda Háskóla íslands.
Þátttökugjald: Almennt gjald 13.000 kr., en 4000 kr. fyrir háskólastúdenta.
Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/MasterCard.
Beiðni um greiðslu fyrir þátttakendur af hálfu stofnunar, deildar eða fyrirtækis þarf að berast skriflega til framkvæmdastjóra ráðstefnunnar.
Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir stuttum erindum (10 mínútur hvert, sjö mínútur í kynningu og þrjár í umræðu) og spjaldakynningu
(stærð spjalda 90 (breidd) x 120 (hæð) cm).
Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að halda erindi eða sýna veggspjald en Vísindanefnd áskilur sér rétt til að ákveða hvort ágrip verði
kynnt sem erindi eða veggspjald til þess að hægt verði að finna öllu stað.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins. Ágripi skal skilað sem Word skjali á rafrænu formi til
framkvæmdastjóra ráðstefnunnar.
Leiðbeiningar fyrir ágrip:
Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar (characters with spaces), talið án nafna höfunda og stofnana. Ágrip skulu vera skrifuð á
íslensku, flutningur erinda eða kynning veggspjalda má vera á ensku.
Eftirtalin atriði komi fram í ágripi:
1) Titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda/kynnis feitletrað, vinnustaðir með tilvísun til höfunda, í þessari röð.
2) Ágripið skiptist í kaflana: Inngangur, Efniviður og aðferðir, Niðurstöður, Ályktanir.
3) Ekki er tekið við töfium eða myndum.
4) í titli eiga ekki að vera skammstafanir. í texta skulu skammstafanir skýrðar með fullum texta og síðan skammstöfun I sviga á eftir.
5) Efnisflokkar eru allar greinar læknisfræði, tannlæknisfræði, hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfunar, lyfjafræði, sálfræði, sem og lífefnafræði,
lífeðlisfræði, faraldsfræði, frumulíffræði, erfðafræði, ónæmisfræði, örverufræði, matvæla og næringarfræði og heilsufélagsvísinda, og skulu
höfundar tilgreina efnisflokk. Efnið er miðað við reynslu undanfarinna ára, en möguleiki er að bæta við flokkum.
6) Tilgreina skal hvort flytjandi/kynnir ágrips er doktors- eða meistaranemi.
Athugið: Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum sem ekki fjalla um rannsókn, ekki er vandað til, uppfylla ekki ofangreind
skilyrði eða kröfur um vísindalegt innihald.
Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 31. október 2010.
Skráning og framkvæmdastjórn: Menningarfylgd Birnu ehf., Birna Þórðardóttir birna@birna.is Sími: 862 8031
Vísindanefnd læknadeildar og fulltrúar deilda, námsbrauta og stofnana
Alfons Ramel
Bergljót Magnadóttir
Hekla Sigmundsdóttir
Erla Kolbrún Svavarsdóttir
Jörgen Pind
Kristín Ólafsdóttir
Sighvatur Sævar Árnason
Svend Richter
Unnur Anna Valdimarsdóttir
Vilhjálmur Rafnsson, formaður
Magnús Gottfreðsson
María Þorsteinsdóttir
Már Másson
Sigurbergur Kárason
422 LÆKNAblaðið 2010/96