Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 37
Ú R _____UMRÆÐA O G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Hafa skal það er sannara reynist Birna Jónsdóttir röntgenlæknir birna@Hs.is í hreinskilni sagt hef ég ekki lesið rannsóknaskýrslu alþingis þó ég sem kjörinn trúnaðarmaður félaga- samtaka sé embættismaður í skilningi íslensku orðabókarinnar. Tvær merkingar eru reyndar í heitinu embættismaður, hin er „starfsmaður ríkis eða bæjarfélags, skipaður til ákveðinnar trúnaðarstöðu með formlegum hætti og tilteknum skilyrðum." Þessir hinir embættismemi fá víða í skýrslunni ábendingar um hvað betur mátti fara í embættisfærslum þeirra í hrun-dansinum. Af hliðarlínunni virðist oft sem embættismenn hafi hugsað um að þóknast og hugnast kjörnum fulltrúum frekar en bregðast við á faglegum forsendum með hagsmuni fólksins í landinu í huga, þó með heiðarlegri undantekningu. Það er siðferðileg skylda Læknafélags íslands að upplýsa almenning jafnt sem ráðamenn, hvort heldur þeir eru kjörnir fulltrúar fólksins eða embættismenn, um þá staðreynd að læknum, sem starfa fyrir þegnana í landinu fækkar hraðar en sem nemur fólksfækkun. Læknum fækkar fyrst og fremst vegna þess að ungir læknar sem lokið hafa sémámi sínu erlendis snúa ekki til baka í þeim takti sem eðlilegt væri. Einnig hafa ungir sérfræðingar, sem eru nýfluttir heim eftir margra ára sémám erlendis, ákveðið að flytja aftur út, til lengri eða skemmri tíma, þar sem lífskjör og laun eru betri, Ráðherra hefur sagt að það sé í lagi að læknar dvelji lengur erlendis, þeir muni ná sér í betri menntun og reynslu. Er hins vegar hægt að gefa sér að eftir árið 2013 þegar á að fara að byggja upp heilbrigðisþjónustu á ný að þá muni þeir allir koma aftur? í góðærinu skiluðu milli 80-90% lækna sér heim að sérnámi loknu. Eins og við vitum eru íslenskir læknar eftirsóttir í nágrannalöndunum. Við því má búast að því lengur sem læknir dvelur erlendis og verður sérhæfðari er erfiðara fyrir hann að finna starf við sitt hæfi hér heima. Fækkun lækna er áhyggjuefni og mikilvægt að ráðherra og embættismenn horfist í augu við hana og reyni að finna viðunandi lausn. Heilbrigðisráðherra hefur talað mjög frjálslega í fjölmiðlum um það að laun lækna séu allt of há og gefið það í skyn að laun lækna séu á bilinu 2-3 milljónir kr. á mánuði. Staðreyndin er hins vegar sú að meðalheildarlaun lækna í 100% starfi hjá ríkinu eruí kringum 1 milljón króna. í mars 2009 voru þau 983.918 kr. og 952.267 kr. í mars 2010 (heimild úr skilagreinum ríkissjóðs sem berast LÍ í hverjum mánuði). 10% lækna var með hærri tekjur en 1,5 milljón kr. á mánuði og rúmur tugur lækna með hærri tekjur en 2 milljónir. Til að eiga möguleika á slíkum tekjum þarf læknir hins vegar að skila af sér óheyrilega mikilli vinnu og í mörgum tilfellum að vera bundinn ákveðnu landssvæði svo mánuðum skipti. Þessi mikla vinna laðar ekki marga lækna til starfa. Það er áhyggjuefni hvers konar þjónusta verður þar sem alltof fáir læknar hafa unnið myrkranna á milli til lengri tíma. Hættan er sú að við missum þann góða árangur sem verið hefur í heilbrigðisþjónustunni og svokallaður tímabundinn niðurskurður verði dýru verði keyptur. Stjórn LÍ Bima Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guðnason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Kristján G. Guðmundsson Ragnar Victor Gunnarsson Sigurður Böðvarsson Valentínus Þór Valdimarsson Valgerður Rúnarsdóttir í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Fjöldi lækna sem starfa í a.m.k. 10% starshlutfalli hjá ríkinu 25-29 30-39 40-49 Aldur 50-59 60+ *Heimilct: Skilagreinar frá Fjársýslu ríkisins. Unnið afSólveigu jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra LÍ. Mynd. Fjöldi lækna í að minnsta kosti 10% starfi hjá ríkinu, í mars 2009 og í mars 2010.* LÆKNAblaðið 2010/96 425
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.