Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2010, Qupperneq 3

Læknablaðið - 15.12.2010, Qupperneq 3
Á myndinni eru frá vinstri: Öivind Lnrsen, Óttar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Vilhjálmur Árnason og Guðmundur Þorgeirsson. Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL www. laeknabladid. is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Jóhannes Björnsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Bryndís Benediktsdóttir Engilbert Sigurðsson Gunnar Guðmundsson Inga S. Þráinsdóttir Tómas Guðbjartsson Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Egils Snorrasonar fyrirlestur um lækningasögu Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og læknadeild Háskóla íslands stóðu fyrir sam- eiginlegum fundi í tilefni af 100 ára afmæli læknadeildar á næsta ári. Gestur fundarins var norski lækningasöguprófessorinn Öivind Larsen sem hélt hinn árlega Egils Snorrasonar fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Óttar Guðmundsson formaður Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar setti fundinn og Guðmundur Þorgeirsson deildarforseti læknadeildar flutti ávarp. Larsen fjallaði um rannsóknir á norskri samtímalækningasögu, viðfangsefni, aðferðir og niður- stöður. Rakti hann hvernig staðið hefði verið að skráningu norskrar lækningasögu, einstakir viðburðir skráðir með viðtölum og hópfundum þar sem farið var yfir reynslu lykilfólks af ákvarð- anatöku um mikilvæga atburði í norskri heilbrigðissögu 20. aldar. Enn væru margir á lífi sem átt hefðu beinan þátt í atburðarásinni og mikilvægt að skrásetja persónulega reynslu þeirra. Sigurður Guðmundsson forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla íslands flutti erindi er hann nefndi Kreppur og heilsa. Þar fór hann yfir helstu tölfræðilegar upplýsingar sem þegar liggja fyrir um áhrif kreppunnar á heilsu fólks. Dagskrá fundarins lauk með erindi Vilhjálms Árnasonar prófessors í heimspeki er hann nefndi Siðfræðilegar afleiðingar hrunsins. ■^^■B LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS ■■■■■■■ Á sýningu sinni I Gallerí Ágúst í Þingholtunum fyrr á árinu sýndi listakonan Marta María Jónsdóttir (f. 1974) málverk sem hún vann ýmist á pappír eða á striga. Verkin sjálf eru án titils en sýningin kallaðist Augnlokin svigna. Það sem sjá má á forsíðu Læknablaðsins er málað á litla pappírsörk (án titils, 2010, 28 x 38 cm) og var það sett fram í þyrpingu annarra mynda af svipaðri stærð sem ýmist voru pinnaðar upp beint á vegg eða rammaðar inn. Einnig voru málverk á stiga þeirra á meðal og öll verkin unnin með akrýllit. Með framsetningunni má segja að Marta María hafi dregið fram einkenni sem finna má í hverju verki fyrir sig, einnig því sem hér um ræðir. Hún byggir verkið í kring um miðjuna svo úr verður eins konar stjarna. Svörtum lit er þrykkt í ferning sem snýst um miðjuás og þar í kring og út frá miðjunni eru dregnar taktfastar línur. Marta María vinnur gegnsætt og lagskipt, þannig að yfirborð og áferð skiþta máli og það undirstrikaði hún með því að setja verkin fram ýmist undir gleri eða án þess. Óreiðan í upphenginu togaðist síðan á við síendurtekið ferhyrnt form málverkaflatarins rétt eins og að í hverju verki má sjá reglulega pensildrætti takast á við ósjálfráða. Þess háttar samspil andstæðna má víða greina í verkunum, í lit, formi og uppbyggingu. Verkin eru öll abstrakt, þó sum kunni að minna á regluleg náttúruform eins og kristalbyggingu eða einhvers konar lifrænan strúktúr. Marta María lærði myndlist I málunardeild Listaháskóla íslands, fór í framhaldsnám í Goldsmiths College í Lundúnum og hefur sýnt verk sín víða í Evróþu. Hún hefur einnig fengist við teiknimyndir og hreyfimyndagerð og þar má ef til vill finna mótvægi hins lífræna handverks sem hún byggir á í málverkum sínum. Þau sjálfsþrottnu form, litasamsetningar og línur sem þar er að finna flæða hispuslaust um myndflötinn en einhvers staðar má alltaf greina löngun til að stýra ferlinu. Jafnvægið þar á milli er undirstaða þeirrar spennu sem verkin búa yfir. Markús Þór Andrésson Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Soffía Dröfn Halldórsdóttir soffia@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 9.500,- m. vsk. Lausasala 950,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík # © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að bírta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2010/96 739

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.