Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 42
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
FRUMKVÖÐLASETUR
R
Trú á framtíðina
Hávar
Sigurjónsson
[Hugmyndin að baki KÍM-Medical Park
er að stofna setur fyrirtækja sem öll starfa
að heilsutengdum verkefnum," segir
Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri
um tilgang frumkvöðlasetursins Kím sem
staðsett er í Vatnagörðum í Reykjavík.
Kím er eitt af átta frumkvöðlasetrum sem
Nýsköpunarmiðstöð Islands stendur að. Hús-
næðið í Vatnagörðum er 1300 fermetrar að
stærð með skrifstofuaðstöðu og fullbúnum
rannsóknarstofum. Þar er aðstaða fyrir allt að 20
sprotafyrirtæki og 60 starfsmenn. Að Kími stendur
Nýsköpunarmiðstöð Islands í samstarfi við
iðnaðarráðuneytið, Háskóla íslands, Háskólann í
Reykjavík og Summit ehf.
Sigríður segir ástæðuna fyrir því að Kím
var sett á laggirnar vera þá að í húskynnum
Nýsköpunarmiðstöðvar íslands við Keldnaholt
hafi verið starfandi nokkur fyrirtæki í
heilsutengdum verkefnum og fleiri fyrirtæki og
frumkvöðlar hafi sótt um að fá að koma inn á
frumkvöðlasetur Nýsköpunarmiðstöðvar. „Okkur
langaði því að koma þessum fyrirtækjum undir
sama þak, þannig að þau gætu nýtt tengslanet,
tæki og tól og náð fram ýmsum samlegðaráhrifum.
Þetta er að skila góðum árangri hér á Kíminu.
Fyrirtækin njóta nálægðarinnar við hvert annað
á mjög margvíslegan hátt; fá upplýsingar um
framleiðendur og birgja, styrkjamöguleika til
rannsókna og ýmislegt fleira sem að gagni getur
komið," segir Sigríður.
Fyrirtækin sem nú eru í Kím setrinu eru
Genís, SagaMedica, Nox Medical, ValaMed,
Medical Algorithms, Signal One, íslensk fjallagrös,
Prokazyme, Arkea, Prókatín, Algilding, Líf-
Hlaup og Björkin, auk nokkurra frumkvöðla sem
eru að vinna að sínum viðskiptahugmyndum en
hafa ekki enn stofnað formleg fyrirtæki í kringum
starfsemina.
Það vekur athygli að nokkur fyrirtæki á setrinu
eru að einbeita sér að því að finna lækningamátt
og heilsubætandi áhrif íslenskra náttúruafurða
á ýmsan máta, bæði úr jurta- og dýrarikinu.
íslensk fjallagrös, hvönn og kítin úr rækjuskel
eru meðal þess sem unnið er með í ýmsum
læknisfræðilegum og heilsutengdum tilgangi,
en einnig er unnið að þróun hátæknibúnaðar til
lækninga og rannsókna í heilbrigðisgeiranum,
svo sem á sviði svefnmælinga, heilaskönnunar og
stýringar lyfjagjafar.
Mjög sérhæfðar hugmyndir
Aðspurð segir Sigríður að starfsmenn fyrir-
tækjanna njóti nálægðarinnar á formlegan jafnt
sem óformlegan hátt. „Alls kyns upplýsingar
fara á milli fólks þar sem það nýtir sameiginlega
aðstöðu, en við stöndum einnig fyrir
formlegum kynningum og fræðslufundum um
ýmislegt sem snýr að hinu ytra umhverfi. Við
skipuleggjum formlega fræðsludagskrá fyrir öll
frumkvöðlasetrin og reynum eftir föngum að
sérhæfa efnið að hverju setri fyrir sig, en einnig
er ýmis fræðsla sem nýtist öllum setrunum jafnt;
má þar nefna fræðslu um fjármálalíkön og gerð
fjárhagsáætlana, tryggingu einkaleyfa og margs
annars. Einnig er unnið með fyrirtækjunum að
gerð styrkjaumsókna, því þrátt fyrir að fyrirtækin
í hverju setri eigi margt sameiginlegt þá eru þau
einnig mjög sérhæfð. Fyrirtækin verða strax að
huga að möguleikum sínum á alþjóðamarkaði
þar sem íslenskur markaður er einfaldlega
of lítill til að geta borið uppi svo sérhæfðar
hugmyndir. Það er rík áhersla á að þau séu það
sem kallað er „born global" þar sem ísland getur
aldrei orðið heimamarkaður fyrir slík fyrirtæki,
en er nauðsynlegur fyrsti markaður til prufu á
viðkomandi vörum og þjónustu ."
Sigríður segir að óformleg samskipti milli
starfsmanna fyrirtækjanna séu ekki síður
mikilvæg, en fólk miðlar fúslega af reynslu
sinni, fagnar saman þegar árangur næst og veitir
stuðning þegar á móti blæs. „Auðvitað gerist
margt yfir kaffibolla enda eru allir að vinna á
tengdum sviðum. Fólk skilur hvað félagarnir eru
að ganga í gegnum."
Auk þess sem að ofan er talið þá njóta fyrirtækin
á setrunum sameiginlegra rannsóknarstofa,
mötuneytis, símaþjónustu, fundaaðstöðu og þrifa.
„Við leggjum þetta til svo frumkvöðlarnir geti
einbeitt sér að því sem þeir eru bestir í, " segir
Sigríður. Þá rekur Nýsköpunarmiðstöð öflugar
tæknideildir og rannsóknarstofu sem fyrirtækin
á setrunum hafa aðgang að og geta nýtt sér gegn
sanngjörnu gjaldi. Varla þarf að taka fram að
forsendan fyrir því að fá inni á frumkvöðlasetri
er að fyrirtækið fáist við nýsköpun. „Með því
móti skekkjum við ekki samkeppnisaðstöðu þó
fyrirtækin hér inni njóti ýmiss konar fyrirgreiðslu
sem ekki býðst annars staðar."
778 LÆKNAblaðið 2010/96