Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 33
Ragnar Victor Gunnarsson heimilislæknir Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Hveragerði ragnar<Shsu.is Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Valgerður Rúnarsdóttir, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritarí Ágúst örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Valentínus Þór Valdimarsson [ pistlunum Úrpenna stjórnarmanna U birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Ú R P Sól tér sortna? Af heilbrigðiskerfi í Blikur eru á lofti í heilbrigðismálum þjóðar. Fjárlög verða væntanlega afgreidd skömmu fyrir jól og þegar þetta er ritað treysta eflaust fáir sér til þess að spá um lokaniðurstöðu í þeim efnum. Upprunaleg áætlun í fjárlagafrumvarpi hljómar svo nöturlega að það vekur mesta umrót í heilbrigðisþjónustu hérlendis fyrr og síðar. Víða hafa komið fram hörð mótmæli og hneykslan fólks og upplifa margir tillögurnar sem árás á grunnstoðir samfélagsins. Frá fyrstu kynningu fjárlagafrumvarps í októberbyrjun hafa ráðamenn hins vegar með ýmsum hætti slegið af yfirlýstum kröfum um sparnað og raddir hafa heyrst um að eigi megi skera svo mikið niður hér og því síður þar vegna bágborins atvinnuástands og þar með eru ráðherrar og þingmenn farnir að víkja frá faglegum ástæðum skipulagsbreytinga heilbrigðisþjónustu og láta veraldleg sjónarmið ráða. Þó hafa þessar yfirlýsingar flestar verið í skötulíki og almennt ekkert til að hengja hatt sinn á. Meginhluti skipulagsbreytinga er fólginn í því að minnka verulega sjúkrahúsþjónustu eða jafnvel að loka sjúkrahúsum alveg víða um land. Á sama tíma eiga Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri að mæta þjónustuskerðingu með því að sinna þeim sem ella legðust irtn á minni og stærri sjúkrahús á landsvísu. Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytis mælir reyndar með því að umdæmissjúkrahús landsins verði gerð starfhæfari og ber að fagna því. Ekki á að auka fjárframlag til spítalanna til að mæta þessu aukna álagi. Þvert á móti er þar sem fyrr niðurskurður á dagskrá. Þessar hugmyndir eru því óskiljanlegar. Miðað við þessar forsendur áætlar heilbrigðis- ráðuneyti að nokkrum tugum lækna verði sagt upp, flestum á landsbyggðinni. Slíkt er afleitt, ekki síst í ljósi þess að þegar hafa vel á annað hundrað læknar flust af landi brott til starfa erlendis á allra síðustu árum, og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Á sama tíma skila ungir sérfræðingar sér ekki heim eftir sérnám, meðal annars vegna mun lakari kjara hérlendis en ekki síður vegna þeirrar ólgu og þess óstöðugleika sem ríkir í heilbrigðismálum. Viðvarandi fækkun lækna á Islandi gæti orðið grafalvarlegt mál og ráðamenn hljóta að leita úrræða til að sporna gegn því. Þeir geta það með ýmsu móti, meðal annars með því að leita í ríkari mæli samráðs við Læknafélag íslands ____UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR ENNA STJÓRNARMANNA LÍ hættu og stjórnendur heilbrigðisstofnana, ekki síst varð- andi skipulagsbreytingar í heilbrigðismálum. Stjórnendur Landspítala geta lagt sig betur fram um að hlúa að þeim læknum sem þar vinna og forðast einhliða eða umdeildar ákvarðanir sem valda reiði og óánægju lækna. Auk þess þarf Landspítali að leggja ofurkapp á að missa ekki fleiri sérfræðinga af landi brott en raun ber vitni. Stjórnendur heilbrigðismála og ráðamenn þjóðfélagsins almennt hafa margt þarfara að gera en að ýta undir ferðahug og útþrá yngri og eldri lækna á íslandi. Ástæða er þó til að hrósa heilbrigðisyfirvöldum fyrir áform um að efla heilsugæslu í landinu, enda flestir sammála um að vönduð grunn- heilbrigðisþjónusta í þéttbýli sem dreifbýli sé nauðsynleg, en hætt er við því að hinn almenni niðurskurður sem til stendur hafi neikvæð áhrif á heilsugæslu. Auk þess stendur ekki til að styðja með beinum hætti við bakið á hinni sífækkandi stétt heimilislækna. Fjölgun námslækna í heimilis- lækningum er þarft verk en skilar sér ekki nærri því strax inn í þjónustuna. Nú vill svo til að kjarasamningur ríkisins við Læknafélag íslands er laus. Læknum er ljóst að erfitt er krefjast mikilla launahækkana í miðju efnahagshruni. Flins vegar munu þeir fylgjast mjög náið með því hvort samninganefnd ríkisins, fyrir hönd fjármálaráðherra, komi til móts við þá varðandi ýmislegt í kjarasamningi sem ekki hefur beint með prósentuhækkanir að gera. Auðvitað verða læknar að fá einhverja launahækkun en umfram allt þarf að taka tillit til sjónarmiða þeirra um ýmislegt er varðar vinnutilhögun þeirra, og leysa verður í eitt skipti fyrir öll gömul ágreiningsmál eins og túlkun á hvíldartíma og frítökurétti. Nú er að sjá hvort fjármálaráðherra komi til móts við lækna og vinni gegn enn frekari fækkun þeirra á Fróni. Við skulum vona að yfirvöld hverfi frá áformum um byltingu í heilbrigðismálum og uppsögn hundruða einstaklinga. Eftir efnahagshrun kemur ekki á óvart að yfirvöld vilji skera niður en áætlun þessi gengur allt of langt. Hvort sem ráðamenn sækja sér fjármagn með tafarlausri skattlagningu viðbótarlífeyrissparnaðar eða finna önnur úrræði, er að minnsta kosti ljóst að hrun í heilbrigðisþjónustu má ekki eiga sér stað. LÆKNAblaðið 2010/96 769
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.