Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 48
Hópurinn á toppi Herðubreiöar í nokkurra stiga frosti og kvöldsðl. Aftari röðfrá vinstri: Engilbert Sigurðsson, IngaLára Ingvarsdóttir, Tónias Guðbjartsson, Ólafur Már Björnsson, Birgir Már Arnórsson, Martin Johannsson, Jón Trausti Sigurðsson. Fremri röðfrá vinstri: Örlygur Steinn Sigurjónsson, Þóra Þórisdóttir, Sólveig Helgadóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Anna Björk Magnúsdóttir. Á myndina vantar Dagnýju Heiðdal. Myndir Ólafur Már Björnsson Haustferð FÍFL á Herðubreið Á leiðinni niður varfarið að rökkva en allir komust klakklaust niður snæviþakta hlíðina. Helgina 17.-19. september stóð Félags íslenskra fjallalækna (FÍFL) fyrir árlegri haustferð. Að þessu sinni var boðið upp á krefjandi jeppaferð um hálendið, auk þess sem leggja átti að velli sjálfa Drottningu Fjallanna, Herðubreið (1682 m). Alls tóku 13 FÍFL þátt í ferðinni og var haldið síðdegis á föstudegi á þremur jeppum norður Sprengisandsleið. Fyrsta kvöldið var gist í Nýjadal og þar haldin vegleg grillveisla. Næsta dag var ekið inn á Gæsavatnaleið á vit ævintýranna. Tóku þar við torfærur hinar mestu og snjóskaflar sem ekki voru auðveldir yfirferðar. Ekin var Dyngjufallaleið yfir Ódáðahraun rétt sunnan Dyngjufjalla og komið í Drekagil rétt eftir hádegi. Braust þá sólin fram og Herðubreið blasti við í öllu sínu veldi, þakin snjó eins og flórsykurskreytt kaka. Var því áætlun breytt skyndilega og ákveðið að ganga samdægurs á fjallið. Utsýni af toppnum var ólýsanlegt, enda frábært skyggni í nokkurra stiga frosti og kvöldsól. Ekki skemmdi sólarlagið fyrir á niðurleiðinni, sem sveipaði fjallið ævintýraljóma en allir náðu niður heilu og höldnu fyrir myrkur eftir tæplega fimm klukkustunda göngu. Gist var í Drekagili og daginn eftir ekið í gegnum Herðubreiðarlindir til Mývatns. Þar voru Jarðböðin heimsótt og þaðan haldið áfram til Reykjavíkur. Þegar er farið að leggja drög að vorferðum FÍFL og verða þær auglýstar betur síðar. Reynt verður að bjóða upp á bæði léttari og meira krefjandi ferðir. Einnig er áhugi fyrir gönguskíðaferð um hálendið. í tengslum við Læknadaga verður FÍFL, eins og svo oft áður, með fyrirlestur tengdan fjallgöngum og hefur heimsfrægum fyrirlesara verið boðið til landsins. Ennfremur er stefnt að því að skrá meðlimi félagsins og útbúa skírteini sem veita félagsmönnum afslátt hjá fyrirtækjum sem selja útivistarfatnað og gönguferðir. Nýlega tókst að endurheimta lénið www.fifl.is og stendur yfir vinna við gerð nýrrar heimasíðu félagsins. Afram verður þó hægt að nálgast fréttir af félaginu og sjá myndir úr ferðum á opinni síðu FIFL á www. facebook.com 784 LÆKNAblaðið 2010/96 Ólafur Már Björnsson Tómas Guðbjartsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.