Læknablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 39
MINNINGARORÐ
Hrafnkell Helgason 1928-2010
Kynni okkar Hrafnkels hófust skömmu fyrir 1970
og þannig að ég þurfti að hafa tal af vini mínum,
Hrafnkeli Stefánssyni, síðar lyfsala, er í hjáverkum
vann við að koma upp lyfjabúri á Vífilsstöðum.
Símavörðurinn þekkti að vonum ekki annan
Hrafnkel en Hrafnkel Helgason yfirlækni og hann
kom í símann. Ég vissi þá lítil deili á Hrafnkeli
önnur en þau að hann væri bróðir Sigurðar,
skólabróður míns og samstúdents. Síðar áttum við
Hrafnkell eftir að hafa ýmislegt saman að sælda.
Hrafnkell gerðist prófdómari í munnlegum
prófum í lyfjafræði og eiturefnafræði og skilaði
því með miklum ágætum, enda var honum fremur
mörgum öðrum gefið að greina á milli meginatriða
og minni atriða. Eftir að próf urðu skrifleg naut ég
þess um tíma að hann færi yfir prófúrlausnir með
mér, meðan það verklag var enn viðhaft. Er mér
þökk í huga fyrir hjálpsemi hans í þessu efni.
Við ræddum fyrr á árum oft um, hve vegur
læknadeildar væri í raun lítill innan Háskóla
Islands og hve stjómsýsla væri þar ófullveðja og
ómarkviss. Við lögðum því tíl við læknadeild,
ásamt kollega okkar, að Háskóla íslands yrði
skipt upp í sjálfstæða skóla, Heilbrigðisháskóla
og fleiri skóla, sem þó mættu vera undir einum
hattí ef betra þætti. Þetta náði ekki fram að ganga.
Nokkurt spor hefur þó verið stígið í þessa átt með
sviðaskiptingu Háskóla íslands. Verður þessi
skipun vonandi til bóta.
Hrafnkell hafði vakandi áhuga á landi Vífils-
staða og vemdun þess. Fór ég af þeim sökum
með honum og öðmm margar gönguferðir um
landið og á landamerki jarðarinnar. Við höfðum
veitt því athygli að hvorki er Vífilsstaðasels getíð í
Jarðabók Áma Magnússonar og Páls Vídalín, né í
grundvallarriti um sel á íslandi eftir þýskan mann
(Egon Hitzler) frá árinu 1979. Enda þótt selið væri
merkt á fáein kort, virtist lega þess óviss og fáir
eða nær engir virtust þekkja það. Hrafnkell „fann"
svo selið skömmu eftir 1980. í framhaldi af því
röktum við svo selgötuna í átt að Vífilsstaðavatni
vestanvert í Grunnavatnsskarði. Þessi ganga,
í fögru veðri að sumarlagi og með fjölskyldu
Hrafnkels, er mér enn í dag lifandi í minningunni
og er vissulega nátengd persónu hans.
Hrafnkell hafði ungur að árum verið hesta-
sveinn föður síns, héraðslæknis í víðlendu læknis-
héraði, og hafði fengið nóg af hestum, já, meira
en nóg af hestum! í samtölum við hestamenn
lét hann þess ósjaldan getið að hross væru best
Hrafnkell Helgasoti á heimili sínu í Garðabæ árið 2005.
komin söltuð í tunnu og þannig ætluð tíl átu.
Hrelldi hann með þessu óneitanlega margan
saklausan hestamann. Engu að síður lét hann
Magnús Kristjánsson ráðsmann hressa upp á
gömlu hestagirðinguna á Vífilsstöðum, svo ég
gætí haft þar mína hesta í vorbeit og haustbeit.
Hélst svo um mörg ár eða þar til ég líkt og fleiri
varð undir við útrás golfvíkinga. Fékk ég þá enn
beit annars staðar á Vífilsstöðum og hélst svo fram
yfir aldamót, að mig þraut kraft og þrek tíl þess að
stunda sjálfstæða hestamennsku. Fyrir þetta verð
ég Hrafnkeli ævinlega þakklátur.
Síðast talaði ég við Hrafnkel í síma stuttu fyrir
andlátíð. Hann hafði þá verið mikið veikur, en
leið betur í svip. Hann dró ekki dul á að stutt væri
eftír að endalokum og ég vissi að það væri satt.
Eg hafði skömmu áður heimsótt Vífilsstaðaspítala
í tílefni 100 ára afmælisins. Mér hafði þá runnið
til rifja að sjá þetta ágæta hús autt og tómt og
þá hrörnun sem þegar er sýnileg í húsakosti á
staðnum. Ég heyrði það á Hrafnkeli að hann
hefði ekki treyst sér til að heimsækja Vífilsstaði
- ekki vegna veikinda, heldur vegna tómsins og
hirðuleysisins á staðnum.
Ég kveð góðan dreng og góðan lækni með
trega í huga og færi góðri eiginkonu hans, bömum
og skyldfólki innilegar samúðarkveðjur.
Þorkell Jóhannesson
LÆKNAblaðið 2010/96 775
Ljósm: Védís Skarphéðinsdóttir.