Læknablaðið - 15.12.2010, Page 33
Ragnar Victor
Gunnarsson
heimilislæknir
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands í Hveragerði
ragnar<Shsu.is
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Valgerður Rúnarsdóttir,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir
ritarí
Ágúst örn Sverrisson
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri Þór Ormarsson
Ragnar Victor Gunnarsson
Valentínus Þór
Valdimarsson
[ pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna U birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Ú R P
Sól tér sortna?
Af heilbrigðiskerfi í
Blikur eru á lofti í heilbrigðismálum þjóðar.
Fjárlög verða væntanlega afgreidd skömmu
fyrir jól og þegar þetta er ritað treysta eflaust
fáir sér til þess að spá um lokaniðurstöðu í þeim
efnum. Upprunaleg áætlun í fjárlagafrumvarpi
hljómar svo nöturlega að það vekur mesta umrót
í heilbrigðisþjónustu hérlendis fyrr og síðar. Víða
hafa komið fram hörð mótmæli og hneykslan
fólks og upplifa margir tillögurnar sem árás á
grunnstoðir samfélagsins.
Frá fyrstu kynningu fjárlagafrumvarps í
októberbyrjun hafa ráðamenn hins vegar með
ýmsum hætti slegið af yfirlýstum kröfum um
sparnað og raddir hafa heyrst um að eigi megi
skera svo mikið niður hér og því síður þar
vegna bágborins atvinnuástands og þar með eru
ráðherrar og þingmenn farnir að víkja frá faglegum
ástæðum skipulagsbreytinga heilbrigðisþjónustu
og láta veraldleg sjónarmið ráða. Þó hafa þessar
yfirlýsingar flestar verið í skötulíki og almennt
ekkert til að hengja hatt sinn á.
Meginhluti skipulagsbreytinga er fólginn í því
að minnka verulega sjúkrahúsþjónustu eða jafnvel
að loka sjúkrahúsum alveg víða um land. Á sama
tíma eiga Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri
að mæta þjónustuskerðingu með því að sinna þeim
sem ella legðust irtn á minni og stærri sjúkrahús
á landsvísu. Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytis
mælir reyndar með því að umdæmissjúkrahús
landsins verði gerð starfhæfari og ber að fagna
því. Ekki á að auka fjárframlag til spítalanna til að
mæta þessu aukna álagi. Þvert á móti er þar sem
fyrr niðurskurður á dagskrá. Þessar hugmyndir
eru því óskiljanlegar.
Miðað við þessar forsendur áætlar heilbrigðis-
ráðuneyti að nokkrum tugum lækna verði sagt
upp, flestum á landsbyggðinni. Slíkt er afleitt, ekki
síst í ljósi þess að þegar hafa vel á annað hundrað
læknar flust af landi brott til starfa erlendis á allra
síðustu árum, og sér ekki fyrir endann á þeirri
þróun. Á sama tíma skila ungir sérfræðingar
sér ekki heim eftir sérnám, meðal annars vegna
mun lakari kjara hérlendis en ekki síður vegna
þeirrar ólgu og þess óstöðugleika sem ríkir í
heilbrigðismálum. Viðvarandi fækkun lækna á
Islandi gæti orðið grafalvarlegt mál og ráðamenn
hljóta að leita úrræða til að sporna gegn því. Þeir
geta það með ýmsu móti, meðal annars með því að
leita í ríkari mæli samráðs við Læknafélag íslands
____UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR
ENNA STJÓRNARMANNA LÍ
hættu
og stjórnendur heilbrigðisstofnana, ekki síst varð-
andi skipulagsbreytingar í heilbrigðismálum.
Stjórnendur Landspítala geta lagt sig betur fram
um að hlúa að þeim læknum sem þar vinna
og forðast einhliða eða umdeildar ákvarðanir
sem valda reiði og óánægju lækna. Auk þess
þarf Landspítali að leggja ofurkapp á að missa
ekki fleiri sérfræðinga af landi brott en raun ber
vitni. Stjórnendur heilbrigðismála og ráðamenn
þjóðfélagsins almennt hafa margt þarfara að gera
en að ýta undir ferðahug og útþrá yngri og eldri
lækna á íslandi.
Ástæða er þó til að hrósa heilbrigðisyfirvöldum
fyrir áform um að efla heilsugæslu í landinu,
enda flestir sammála um að vönduð grunn-
heilbrigðisþjónusta í þéttbýli sem dreifbýli sé
nauðsynleg, en hætt er við því að hinn almenni
niðurskurður sem til stendur hafi neikvæð áhrif
á heilsugæslu. Auk þess stendur ekki til að styðja
með beinum hætti við bakið á hinni sífækkandi
stétt heimilislækna. Fjölgun námslækna í heimilis-
lækningum er þarft verk en skilar sér ekki nærri
því strax inn í þjónustuna.
Nú vill svo til að kjarasamningur ríkisins við
Læknafélag íslands er laus. Læknum er ljóst að
erfitt er krefjast mikilla launahækkana í miðju
efnahagshruni. Flins vegar munu þeir fylgjast
mjög náið með því hvort samninganefnd ríkisins,
fyrir hönd fjármálaráðherra, komi til móts við þá
varðandi ýmislegt í kjarasamningi sem ekki hefur
beint með prósentuhækkanir að gera. Auðvitað
verða læknar að fá einhverja launahækkun en
umfram allt þarf að taka tillit til sjónarmiða
þeirra um ýmislegt er varðar vinnutilhögun
þeirra, og leysa verður í eitt skipti fyrir öll gömul
ágreiningsmál eins og túlkun á hvíldartíma og
frítökurétti. Nú er að sjá hvort fjármálaráðherra
komi til móts við lækna og vinni gegn enn frekari
fækkun þeirra á Fróni.
Við skulum vona að yfirvöld hverfi frá áformum
um byltingu í heilbrigðismálum og uppsögn
hundruða einstaklinga. Eftir efnahagshrun kemur
ekki á óvart að yfirvöld vilji skera niður en
áætlun þessi gengur allt of langt. Hvort sem
ráðamenn sækja sér fjármagn með tafarlausri
skattlagningu viðbótarlífeyrissparnaðar eða finna
önnur úrræði, er að minnsta kosti ljóst að hrun í
heilbrigðisþjónustu má ekki eiga sér stað.
LÆKNAblaðið 2010/96 769