Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2010, Síða 42

Læknablaðið - 15.12.2010, Síða 42
UMRÆÐUR O G FRÉTTI FRUMKVÖÐLASETUR R Trú á framtíðina Hávar Sigurjónsson [Hugmyndin að baki KÍM-Medical Park er að stofna setur fyrirtækja sem öll starfa að heilsutengdum verkefnum," segir Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri um tilgang frumkvöðlasetursins Kím sem staðsett er í Vatnagörðum í Reykjavík. Kím er eitt af átta frumkvöðlasetrum sem Nýsköpunarmiðstöð Islands stendur að. Hús- næðið í Vatnagörðum er 1300 fermetrar að stærð með skrifstofuaðstöðu og fullbúnum rannsóknarstofum. Þar er aðstaða fyrir allt að 20 sprotafyrirtæki og 60 starfsmenn. Að Kími stendur Nýsköpunarmiðstöð Islands í samstarfi við iðnaðarráðuneytið, Háskóla íslands, Háskólann í Reykjavík og Summit ehf. Sigríður segir ástæðuna fyrir því að Kím var sett á laggirnar vera þá að í húskynnum Nýsköpunarmiðstöðvar íslands við Keldnaholt hafi verið starfandi nokkur fyrirtæki í heilsutengdum verkefnum og fleiri fyrirtæki og frumkvöðlar hafi sótt um að fá að koma inn á frumkvöðlasetur Nýsköpunarmiðstöðvar. „Okkur langaði því að koma þessum fyrirtækjum undir sama þak, þannig að þau gætu nýtt tengslanet, tæki og tól og náð fram ýmsum samlegðaráhrifum. Þetta er að skila góðum árangri hér á Kíminu. Fyrirtækin njóta nálægðarinnar við hvert annað á mjög margvíslegan hátt; fá upplýsingar um framleiðendur og birgja, styrkjamöguleika til rannsókna og ýmislegt fleira sem að gagni getur komið," segir Sigríður. Fyrirtækin sem nú eru í Kím setrinu eru Genís, SagaMedica, Nox Medical, ValaMed, Medical Algorithms, Signal One, íslensk fjallagrös, Prokazyme, Arkea, Prókatín, Algilding, Líf- Hlaup og Björkin, auk nokkurra frumkvöðla sem eru að vinna að sínum viðskiptahugmyndum en hafa ekki enn stofnað formleg fyrirtæki í kringum starfsemina. Það vekur athygli að nokkur fyrirtæki á setrinu eru að einbeita sér að því að finna lækningamátt og heilsubætandi áhrif íslenskra náttúruafurða á ýmsan máta, bæði úr jurta- og dýrarikinu. íslensk fjallagrös, hvönn og kítin úr rækjuskel eru meðal þess sem unnið er með í ýmsum læknisfræðilegum og heilsutengdum tilgangi, en einnig er unnið að þróun hátæknibúnaðar til lækninga og rannsókna í heilbrigðisgeiranum, svo sem á sviði svefnmælinga, heilaskönnunar og stýringar lyfjagjafar. Mjög sérhæfðar hugmyndir Aðspurð segir Sigríður að starfsmenn fyrir- tækjanna njóti nálægðarinnar á formlegan jafnt sem óformlegan hátt. „Alls kyns upplýsingar fara á milli fólks þar sem það nýtir sameiginlega aðstöðu, en við stöndum einnig fyrir formlegum kynningum og fræðslufundum um ýmislegt sem snýr að hinu ytra umhverfi. Við skipuleggjum formlega fræðsludagskrá fyrir öll frumkvöðlasetrin og reynum eftir föngum að sérhæfa efnið að hverju setri fyrir sig, en einnig er ýmis fræðsla sem nýtist öllum setrunum jafnt; má þar nefna fræðslu um fjármálalíkön og gerð fjárhagsáætlana, tryggingu einkaleyfa og margs annars. Einnig er unnið með fyrirtækjunum að gerð styrkjaumsókna, því þrátt fyrir að fyrirtækin í hverju setri eigi margt sameiginlegt þá eru þau einnig mjög sérhæfð. Fyrirtækin verða strax að huga að möguleikum sínum á alþjóðamarkaði þar sem íslenskur markaður er einfaldlega of lítill til að geta borið uppi svo sérhæfðar hugmyndir. Það er rík áhersla á að þau séu það sem kallað er „born global" þar sem ísland getur aldrei orðið heimamarkaður fyrir slík fyrirtæki, en er nauðsynlegur fyrsti markaður til prufu á viðkomandi vörum og þjónustu ." Sigríður segir að óformleg samskipti milli starfsmanna fyrirtækjanna séu ekki síður mikilvæg, en fólk miðlar fúslega af reynslu sinni, fagnar saman þegar árangur næst og veitir stuðning þegar á móti blæs. „Auðvitað gerist margt yfir kaffibolla enda eru allir að vinna á tengdum sviðum. Fólk skilur hvað félagarnir eru að ganga í gegnum." Auk þess sem að ofan er talið þá njóta fyrirtækin á setrunum sameiginlegra rannsóknarstofa, mötuneytis, símaþjónustu, fundaaðstöðu og þrifa. „Við leggjum þetta til svo frumkvöðlarnir geti einbeitt sér að því sem þeir eru bestir í, " segir Sigríður. Þá rekur Nýsköpunarmiðstöð öflugar tæknideildir og rannsóknarstofu sem fyrirtækin á setrunum hafa aðgang að og geta nýtt sér gegn sanngjörnu gjaldi. Varla þarf að taka fram að forsendan fyrir því að fá inni á frumkvöðlasetri er að fyrirtækið fáist við nýsköpun. „Með því móti skekkjum við ekki samkeppnisaðstöðu þó fyrirtækin hér inni njóti ýmiss konar fyrirgreiðslu sem ekki býðst annars staðar." 778 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.