Læknablaðið - 15.12.2010, Page 22
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
mæði og meltingartruflanir. Þá má nefna að
örvunartengd einkenni frá meltingarfærum geta
verið ógleði, magakrampar og niðurgangur.
Langvarandi streitutengd vöðvaspenna getur lýst
sér í vöðvakippum, andþyngslum og verkjum.
Heilsukvíðnir eiga oft erfitt með að trúa því að
þessi einkenni séu meinlausir fylgifiskar kvíða.20
Öryggisráðstafanir
Öryggisráðstafanir eru vamarviðbrögð sem ætlað
er að koma í veg fyrir eða draga úr líkum eða
áhrifum skynjaðrar ógnar, en geta jafnframt átt
þátt í að viðhalda óraunhæfum hugmyndum um
ógnina.12 H1 dæmis gæti manneskja sem óttast
hjartaáfall tekið púlsinn á klukkutíma fresti og
lagst niður í hvert sinn sem hún finnur fyrir
auknum hjartslætti. Þessar öryggisráðstafanir
aftra því að hún komist að því að ekkert alvarlegt
gerist þótt hún sleppi þessum ráðstöfunum, hún
sé hraust og þoli eðlilegt álag.
Ásókn í hughreystingu
Augljósasta öryggisráðstöfunin meðal heilsu-
kvíðinna er að sækja ítrekað í hughreystingu
(reassurance) en hún getur falist í að spyrja
maka eða fjölskyldumeðlimi út í einkenni eða
lýsa einkennum ítrekað fyrir öðrum. Hún getur
einnig einkennst af lestri um sjúkdóma eða
endurteknum heimsóknum til lækna og beiðni
um læknisrannsóknir. Hughreystingin felst þá
í því að utanaðkomandi aðili, oft læknir, komi
því ítrekað á framfæri að ekkert alvarlegt sé að,
oft með vísun í niðurstöður læknisskoðunar og
rannsókna.20
Það er freistandi að veita heilsukvíðnum
hughreystingu en það gerir þeim lítið gagn
og kann fremur að ýta undir heilsukvíðann
þegar til langs tíma er litið.15'20 Hughreystingin
slær í fyrstu á kvíðann en kvíðinn tekur sig
oftast upp á innan við sólarhring frá því
að hughreysting er veitt.13- 21 Hætt er við að
ásóknin í hughreystingu festist í sessi hjá þeim
heilsukvíðna, sem leið til að fást við kvíða, og
er það óheppilegt þar sem um skammvinna
lausn er að ræða sem krefst ítrekaðrar
hughreystingar. Viðkomandi getur þannig
orðið háður öðrum um hughreystingu sem ýtt
getur irndið bjargarleysi hans og ósjálfstæði.
Þá stuðla þessi viðbrögð að því að viðkomandi
verji mun meiri tíma í umræður um heilsufar
sitt, sem getur gert hann enn meðvitaðri um
þau einkenni sem hann hræðist.20 Eins er hætt
við að viðkomandi fái misvísandi upplýsingar
frá öðrum, sem grafið getur undan trausti á
aðra.15 Heilsukvíðnir þrá að komast til botns
í því hvað hrjáir þá og vilja sumir frekar fá
einhverja greiningu en að kljást við óvissuna.
Ummæli Woodys Allen í hlutverki manns með
heilsukvíða í myndinni Deconstructing Harry
lýsa þessu vel: „Fallegustu orðin í enskri tungu
eru ekki ég elska þig heldur það er góðkynja."
Líkamsskönnun
Algengt er að einstaklingar með heilsukvíða
skanni líkamann reglulega í leit að útlits-
breytingum eða líkamsósamhverfu. Algeng
er þreifing á ákveðnum stöðum eins og hálsi
eða brjóstum til að athuga hvort eitthvað
óvenjulegt finnist þar. Endurtekin þreifing
getur framkallað eymsli sem eru svo túlkuð
á versta veg. Jafnvel þótt engin eymsli
hljótdst af, viðheldur líkamsskönnunin aukinni
meðvitimd um líkamann, sem gerir það að
verkum að fólk tekur betur eftir ýmsum
eðlilegum óþægindum og túlkar þau til marks
um veikindi.15'20
Forðun
Forðun getur lýst sér með ýmsum hætti.
Hinn heilsukvíðni getur til dæmis forðast
„áhættusama hegðun" eins og að reyna á sig
líkamlega af hræðslu við að auka á einkennin
og ofgera líkamanum sem álitinn er veikur
fyrir. Þessi forðun kemur í veg fyrir að hann
komist að því að hann hafi í raun eðlilegt
úthald og að ekkert alvarlegt gerist þótt hann
reyni á sig. Hreyfingarleysið stuðlar svo smám
saman að verra líkamsformi sem gerir það að
verkum að sá sem í hlut á finnur meira fyrir
sleni, verkjum og spennu sem eru svo talin til
marks um versnandi heilsufar, og vítahringur
skapast.15
Heilsukvíðnir eiga það einnig til að forðast
aðstæður sem aukið geta á heilsukvíðann. Þeir
gætu til dæmis forðast að lesa minningargreinar
eða hlýða á sjúkrasögur annarra. Sumir forðast
læknisheimsóknir alfarið af ótta við að fá
slæmar fregnir. Þessi viðbrögð hjálpa ekki, því
þau aftra því að viðkomandi komist að því að
ekkert alvarlegt sé að. Viðbrögðin geta einnig
gert það að verkum að sá sem í hlut á komist of
seint undir læknishendur, þá sjaldan eitthvað
alvarlegt er að. Öll þessi forðunarviðbrögð
koma í veg fyrir að sá heilsukvíðni komist að
því að hann ráði við aðstæðumar.15'20
Heilsukvfði og þráhyggjuárátturöskun
Margir telja að heilsukvíði ætti frekar að flokk-
ast með kvíðaröskunum á borð við þrá-
hyggjuárátturöskun í stað líkömnunarraskana.
Margt styður að svo sé.22'26 Báðar raskanimar
758 LÆKNAblaðiö 2010/96