Læknablaðið - 15.12.2010, Page 38
UMRÆÐUR O G
FRUMHERJI í
F R É T T I R
BARNALÆKNINGUM
sem heimilislæknir úti í bæ hafði lagt inn bam
vegna samvaxinna hausamóta og yfirlæknir á
bamadeildinni sendi barnið heim aftur með þeim
orðum að það væri ekkert að krakkanum. Eg
frétti svo af þessu og lét leggja krakkann inn aftur
og gerði aðgerðina. Það var svo sem ýmislegt
fleira sem ég fékkst við og hafði ekki verið gert
hér áður. Sumt flokkaðist nú undir lyflækningar
fremur en handlækningar. Wilms tumor er
meðfæddur illkynja æxlissjúkdómur í nýrum
sem krefst aðgerðar og lyfjameðferðar. Lyfið til að
meðhöndla þetta var ekki til í landinu þegar ég
fékk fyrsta tilfellið og það varð að panta það frá
útlöndum.
Ég kynnti líka nýjungar í eftirmeðferð og lagði
mikla áherslu á gjörgæslu fyrir aðgerðabömin og
að hjúkrunarfólkið yrði þjálfað í gjörgæslumeðferð
bama. Nýburar eftir aðgerðir þurfa mjög sérstaka
og nákvæma meðferð sem ekki var til staðar þegar
ég kom á Landspítalann. í dag er þetta í mjög góðu
horfi og allir vita hvað þeir em að gera en því
miður var það ekki þannig þegar ég kom til starfa
á Landspítalann árið 1967."
Þegar ég bið Guðmund að lokum að segja
mér hvað það sé við barnaskurðlækningamar
sem hafi heillað hann í upphafi, þá svarar hann
einfaldlega. „Bömin em einstaklingar sem eiga
framtíðina fyrir sér. Það er útaf fyrir sig ágætt að
gera við áttræðan karl eins og mig en maður lengir
ekki líf hans um mörg ár. Hann hefur lokið sínu
ævistarfi. Það er annað mál að skera upp nýbura
með banvænt mein og fleyta honum með því fram
til þess að verða áttræður. Það er ánægjulegt. Ein
stúlka sem ekki var hugað líf á sínum tíma var að
útskrifast sem lögfræðingur í haust með hæstu
einkunn. Það er árangur sem yljar manni."
í-kl 0 3
Living and working in Gotland Læknadagar
Are you a specialist in general 2011
medicine and want to work on Gotland,an Island in the Baltic Sea? á Hilton Nordica dagana 24.-28. janúar
For more information please contact: Maria Skráning hefst 7. desember
Ahlmark, e-mail maria.ahlmark@gotland.se á heimasíðu LÍ www.lis.is
or Eva Jetsell,e-mail eva.jetsell@gotland.se Dagskrá verður einnig
We lookforward to hearing from you! birt á á heimasíðunni.
Þátttökugjald: Dagpassi - kr. 6.000
Vikupassi - netskráning kr. 12.000
Vikupassi - greitt á staðnum kr. 14.000
Read more on our website: www.gotland.se/jobbahososs KOMMUN
774 LÆKNAblaðið 2010/96