Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2010, Side 40

Læknablaðið - 15.12.2010, Side 40
U M R Æ Ð U R FÉLAG ALM O G FRÉTTIR ENNRA LÆKNA Læknaskortur er staðreynd I Eyjólfur Þorkelsson er formaður Félags almennra lækna en á síðasta I aðalfundi var nafni félagsins breytt úr Félagi ungra lækna. Eyjólfur segir I nafnbreytinguna hafa verið tímabæra og nauðsynlega þar sem oft hafi I verið uppi misskilningur um hvað „unglæknir" þýddi; ekki hafi allir gert I sér grein fyrir því að unglæknir væri útskrifaður læknir með almennt I lækningaleyfi en án sérfræðimenntunar. „Læknanemi, læknakandídat og unglæknir, þessu var iðulega ruglað saman. Hins vegar fer ekkert á milli mála hvað almennur læknir stendur fyrir: Það er læknir með almennt lækningaleyfi. Aldur almennra lækna er eðli málsins samkvæmt yfirleitt í lægri kantinum en þó eru dæmi um vel fullorðna lækna með almennt lækningaleyfi sem hafa ekki lagt fyrir sig sérgrein." Eyjólfur lýsir almennum læknum sem framvarðasveit spítalans. „Við gegnum stöðum aðstoðar- og deildarlækna, við höldum utan um deildavinnuna og stöndum bundnar vaktir með miklum samskiptum við sjúklinga og aðstandendur. Okkur finnst vinnuframlag okkar sjaldan metið að verðleikum og lítið tillit tekið til þess vinnuálags sem almennir læknar starfa undir, sérstaklega á síðustu misserum þegar almennum læknum hefur markvisst verið fækkað á stofnuninni. Til marks um álagið má nefna að það er nánast regla fremur en undantekning að almennir læknar þurfi að vinna áfram eftir að hefðbundnum vinnudegi er lokið, við frágang dagvinnunnar eða undirbúning innlagna, án þess að fá nokkra yfirvinnu greidda. Auk þess er vinnustundafjöldi almennra lækna á viku yfirleitt fimm til tíu stundum yfir skilgreindum hámarks- vinnutíma. Þetta eru eingöngu tímar samkvæmt vinnuskýrslu svo yfirvinnan sem ég nefndi áðan er ekki inni í þessum tölum. Hversu mikil þessi ólaunaða yfirvinna er í raun, veit enginn fyrir víst en hún á að vera til í gögnum spítalans þar sem við Hávar Stimplum okkur inn í upphafi dags og út þegar við Sigurjónsson förum heim. Það hefur hins vegar reynst þrautin þyngri að fá aðgang að þessum gögnum og verður líklega ekki hægt nema fyrir atbeina dómstóla." Deilt um vaktaskipuiag Almennir læknar stóðu í vor í deilu við stjórn Landspítala um breytingar á vaktakerfi sem hefði að sögn Eyjólfs þýtt styttingu vakta úr 16 stundum í 13, en í staðinn fleiri nætur unnar í röð. „Við mótmæltum þessu með þeim rökum að þetta þýddi minni hvíld fyrir okkur og væri því öryggismál bæði fyrir okkur læknana og sjúklingana. Okkur mislíkaði einnig að okkur var ekki boðið upp á neinar viðræður um þetta, heldur einungis tilkynnt að þetta hefði verið ákveðið. Við mótmæltum því og bentum á að ekki væri löglega að þessari breytingu staðið og hugðumst leggja fram stjórnsýslukæru. Auk þess bentum við á að með þessu ykist vinnuskylda úr því að vera tæplega lögleg í það að vera kolólögleg. Á þeim grundvelli kom Læknafélag Islands til sögunnar sem okkar stéttarfélag og lögfræðingur félagsins var fyllilega sammála okkar túlkun. Að endingu gengu um 70 almennir læknar út, sem hafði mikil og víðtæk áhrif. Á fimmta degi kom spítalinn til móts við óskir okkar og báðir aðilar náðu samkomulagi. í því fólst meðal annars að skipuð var nefnd þar sem áttu sæti fjórir fulltrúar Landspítala og þrír frá Félagi almennra lækna og þeim falið að semja tillögur að nýju vaktakerfi fyrir öll svið spítalans þar sem tekið væri tillit til mismunandi þarfa sviðanna. Starfið í nefndinni hefur gengið mjög vel, þótt nokkrar tafir hafi 776 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.