Læknablaðið - 15.12.2010, Side 44
UMRÆÐUR O G
LÆKNAFÉLAG
F R É T T I R
í S L A N D S
Sigurbjörn
Sveinsson
Heilsugæslulæknir og fyrrum
formaður LÍ
sigurbjom.sveinsson@
mjodd.hg.is
Skipulag LÍ
Aðalfundur Læknafélags íslands 2009 fól stjórn
félagsins að fara yfir markmið, starfssvið og
stefnu félagsins. Markmiðið var að einfalda
uppbyggingu þess. Þá átti stjórnin að skoða kosti
þess og galla að aðskilja hlutverk félagsins sem
stéttarfélags og fagfélags. í framhaldi þess skyldi
ræða skipulagsbreytingar á Læknafélaginu og
lagðar fram tillögur þar að lútandi. Átti stjórnin
að gera komandi aðalfundi (2010) grein fyrir
niðurstöðu sinni.
Stjórn LÍ brást við þessum fyrirmælum
aðalfundar þegar í stað og skipaði starfshóp sem
fékk í megindráttum það hlutverk sem stjórninni
hafði verið falið. Starfshópurinn ákvað á fyrsta
fundi sínum að efna til viðhorfskönnunar á netinu
meðal félagsmanna, þar sem þess yrði freistað að
lesa í afstöðu félagsmanna til þeirra úrlausnarefna
sem hópnum höfðu verið falin. Svör bárust frá
470 læknum eða 45%. Sú þátttaka var samkvæmt
væntingum starfshópsins. Góður meirihluti
svarenda reyndist sáttur við skipulag Læknafélags
íslands, eða 67% þeirra sem afstöðu tóku. Óánægja
með skipulag LÍ var mest í hópi unglækna en
minnst í hópi heimilislækna. Þeir sem óánægðir
voru með LÍ vildu flestir skilja að stéttarfélags- og
fagfélagshlutann og að á aðalfundum félagsins færi
hver læknir með eitt atkvæði.
í umræðu sinni um aðföng þau sem aflað
var og viðhorfskönnunina segir starfshópurinn
í skýrslu sinni til stjórnar: „viðhorfskönnun
sú sem nefndin gekkst fyrir leiddi í ljós að
meginþorri lækna er ekki reiðubúinn til að breyta
félaginu frekar, og sérstaklega ekki þeir sem
telja má í varanlegu vistarbandi innan LI, þ.e.
læknar með sérfræðimenntun. Minnihluti lækna
er ekki sáttur við félagið og vill aðskilja faglega og
stéttarfélagslega hlutann. Er það í samræmi við þau
viðhorf sem hafa verið viðruð s.l. tvo áratugi og
endurspeglast vel í þeirri tillögu sem Félag ungra
lækna (Félag almennra lækna, FAL) bar upp á
síðasta aðalfundi LÍ (2009).
Að mati nefndarinnar krefjast grundvallar-
breytingar á LÍ frekari umræðu og afdráttarlauss
stuðnings meirihluta félagsmanna. Þegar hafa verið
gerðar ráðstafanir til að skapa minnihlutahópum
olnbogarými innan stéttarfélaga þar sem þeir telja
hag sínum best borgið. Stjórn félagsins þarf þó
alltaf að vera vakandi fyrir umræðunni í grasrótinni
og mæta henni á opinn hátt og hlúa að, þegar hún á
sér lífsvon . . . Umræðum af því tagi fylgja yfirleitt
frjóir straumar sem skapa nýjar hugmyndir þó að
ekki leiði til byltingar hverju sinni."
Því miður gafst ekki ráðrúm til þessarar
mikilvægu umræðu á liðnum aðalfundi eins og
ráð hafði verið fyrir gert. Niðurstaða starfshópsins
fylgdi með í skriflegri skýrslu stjórnarinnar til
aðalfundar, án þess að gerð væri sérstök grein fyrir
henni eða hún tekin til umræðu að frumkvæði
formannsins. Hvað sem því líður er félaginu
nauðsynlegt að gefa kost á frekari umræðu um
skipulag sitt og laða fram þá ókosti sem félagsmenn
telja fylgja fyrirkomulagi þess.
Fulltrúalýðræðið, sem er kjölfesta LI, byggir á
einsleitum læknahópum sem mynduðu sterkar
félagsheildir í vel afmörkuðum landshlutum um
miðja síðustu öld. Þessir félagar komu saman að
minnsta kosti einu sinni á ári á heimilum hvers
annars, fóru yfir fræðin og taxtana, réðu um það
hver gæti farið suður á aðalfundinn og nutu
gestrisninnar.
Fulltrúalýðræðið hefur margvíslega kosti. Það
dregur úr hættu á eyðandi sundurlyndi og ringul-
reið og að úrlausnarefnin verpist um hagsmuni
sem endurspeglast í einstökum hópum lækna. Eg
tel að fulltrúum lækna úr landshlutunum sé síður
sú hætta búin að niðurstöður þeirra í einstökum
málum litist af þröngum hagsmunum, til að mynda
sérgreina; þeir séu með öðrum orðum líklegri til að
skynja þörf læknastéttarinnar fyrir að ná víðtækri
samstöðu um málatilbúnað.
Á þessu eru þó meinbugir á síðari tímum, sem
forusta læknafélagsins verður að horfast í augu við.
Borið hefur á því að fámenn svæðafélög lækna
eigi í erfiðleikum með að rækja skyldur sínar við
LÍ. Er ég þá að vísa til þess að af einum eða öðrum
ástæðum hafa fulltrúar frá þessum félögum ekki
mætt á formannafundi eða aðalfundi. Þetta er
áhyggjuefni og kann að benda til að undirstöður LI
séu orðnar feysknar og þarfnist endurnýjunar.
í annan stað hefur skipulag heilbrigðisþjónust-
unnar í landinu tekið gríðarlegum breytingum
frá því LÍ fékk mynd sína 1952. í stað sjálfstæðra
héraðslækna sem dreifðust um landið, hafa heil-
brigðisstofnanir tekið við. Ekki er óalgengt að
starfssvæði þessara heilbrigðisstofnana afmarkist
landfræðilega á svipaðan hátt og svæðafélög lækna.
Þessar stofnanir hafa annars vegar ólýðræðislegt
hírarkí og hins vegar sitt eigið læknaráð, og innan
þeirra hlýtur að vera mótuð stefna sem læknarnir
verða að fylgja, hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Skoðun svæðafélags lækna, ef hún verður þá til,
mun óhjákvæmilega litast af þessu sambýli. Eg tel
að svæðafélögum lækna kunni víða að vera hætta
búin fyrir þær sakir.
Forustu Læknafélags íslands ber að halda
þessari umræðu vakandi.
780 LÆKNAblaðíð 2010/96