Læknablaðið - 15.12.2010, Side 45
U M R Æ Ð A
Jóladagur á Central Middlesex Hospital.
Minnisstæður lærifaðir
Richard Asher MD, FRCP 1912-1969
Haustið 1963 kom ég til Lundúna til að hefja
framhaldsnám, ókunnugur og talandi skólaensku.
Fljótlega sótti ég um „húskarlsstöðu" (House
Physician) hjá dr. Asher á Central Middlesex
spítalanum. Þeir sem til þekktu vissu að þetta var
vonlítið og brostu vorkunnsamir. En Asher var
ólíkindatól og sagði aðstoðarlækninum sínum að
hann gæti ómögulega látið á móti sér
að heyra ekki næstu mánuðina þessa
fomaldarensku sem Islendingurinn
talaði. Ensk tunga átti hug hans,
auk tónlistar og lyflæknisfræði með
blóð- og efnaskiptasjúkdóma sem
undirgreinar.
Sjúkradeildin okkar var 25 rúma
salur, hár til lofts og víður til veggja.
Þeir sem gátu voru á róli eða sátu í
stól því að Asher hafði skrifað grein
í Lancet 1947 um hættur sem fylgdu
rúmlegu, The Dangers of Going to
Bed: „We should think twice before
ordering our patients to bed and realise that
beneath the comfort of the blanket there lurks a
host of formidable dangers." Þama var hann langt
á undan samtíð sinni.
Þá var hann ótrúlega fljótur að finna ef eitthvað
var óvenjulegt í sjúkrasögu eða skoðun sjúklinga.
Eitt sirtn kom á vakt hjá mér bandarískur læknir
með svæsna kviðverki, flókna sjúkrasögu og
þurfti mikla verkjastillingu. Á stofugangi um
morguninn hóf ég að þylja upp þrautasögu þessa
kollega en komst ekki langt. Asher sagði snöggt
við sjúklinginn: „Hvenær varðst þú lyfjafíkill?"
Auk lyfjadeildarinnar stýrði Asher bráða-
móttöku geðveikra (Mental Observation Ward)
þar sem var öryggisklefi með
leðurklæddum, mjúkum veggjum
og gólfi (padded cell). Þangað var
á vöktum stungið inn órólegum
sjúklingum. Á stofugangi gekk Asher,
sem var lágvaxinn og grannur, ætíð
í fararbroddi, hiklaus og settist á
gólfið. „Your fly is open!" (Þú ert
með opna buxnaklauf) sagði hann
eitt sinn við öskrandi risa sem varð
svo hvumsa að æðið rann af honum.
I annað skipti var hann ekki lengi að
átta sig á að kolruglaður sjúklingur
var aðeins skelfingu lostinn pólskur
sjómaður sem Asher róaði með nokkrum orðum
á pólsku og sendi síðan vaktmann með hann
niður að höfn um borð í sitt skip. Lögreglan kom
með ungan, snyrtilegan mann sem hafði kvartað
undan því við frúna sem leigði honum herbergi
að krókódílar syntu í klósettinu. Asher sendi hann
heim með ströngu loforði um að hartn mætti aldrei
Richard Asher.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Stjórn
Öldungadeildar
Sigurður E. Þorvaldsson
formaður
Jón Hilmar Alfreðsson
ritari
Tryggvi Ásmundsson
gjaldkeri
Guðmundur Oddsson
Óli Björn Hannesson
Öldungaráð
Hörður Þorleifsson
Höskuldur Baldursson
Kristín Guttormsson
Leifur Jónsson
Páll Ásmundsson
Vigfús Magnússon
Vefsíða Öldungadeildar
finnst meðal annarra
vefsíðna sérfélaga á
síðu LÍ.
Árni Kristinsson
LÆKNAblaðið 2010/96 781