Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 12
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN voru notaðar til að ákvarða algengi astma á fyrsta ári. Spurt var hvort læknir hefði á síðustu 12 mánuðum greint astma hjá barninu. Einnig var spurt hvort barnið hefði haft hvæsandi öndun eða píphljóð í brjósti, hvort komið hefði hvæsandi hljóð úr brjóstkassa við eða eftir áreynslu og hvort bamið hefði verið með þurran hósta um nætur án þess að hafa kvef eða sýkingu í brjóstholi. Einnig var spurt um notkun berkjuvíkkandi lyfja og inn- öndunarstera. Við rannsóknina störfuðu barnalæknir sem er sérfræðingur í ofnæmislækningum og hjúkrunar- fræðingur og sáu þau alfarið um allar skoðanir og ofnæmispróf. Ef barn var með ofnæmisexem var notað SCORAD-kerfið (Scoring Atopic Dermatitis) til að ákvarða alvarleika. í ofnæmishúðprófi var prófað fyrir mjólk, eggj- um, hveiti, soja, fiski og jarðhnetum og auk þess hundum, köttum og grasi. Þvermál bjúgbletts sem var stærra eða jafnt og þrír millimetrar sagði til um jákvætt próf. Heilblóð (4-5 ml) var tekið úr börnum með einkenni fæðuofnæmis og viðmiðunarbömum til mælingar á sértæku IgE fyrir eggjum, mjólk, jarð- hnetum, soja, hveiti og fiski. Prófið var jákvætt ef svarið var >0,35 kUA/1. Ef grunur var um ofnæmi fyrir annarri fæðutegund en prófað var fyrir var mælt IgE og gert húðpróf sérstaklega fyrir þá fæðutegund. Tafla II. Fjöldi barna með fæðuofnæmi eftir tegund ofnæmisprófs og ofnæmisvaldi. Ofnæmisvaldur Grunur um fæðuofnæmi3 Jákvætt ofnæmis- húðpróf Jákvætt IgE í sermi Næm börnb Jákvætt tvíblint þolpróf0 Grunur á móti greindud Egg 7 (0,52%)e 17(1,27%) 29(2,16%) 32 (2,38%) 19(1,42%) 4/4 Mjólk 56 (4,18%) 10(0,75%) 23 (1,72%) 24 (1,79%) 7 (0,52%) 23/7 Jarðhnetur 3 (0,22%) 9 (0,67%) 9 (0,67%) 2(0,15%) Fiskur 5 (0,37%) 1 (0,07%) 2(0,15%) 2(0,15%) 3 (0,22%) o/o' Hveiti 7 (0,52%) 0 8(0,16%) 8 (0,60%) 2(0,15%) o/o' Soja 2(0,15%) 0 4 (0,30%) 4 (0,30%) 1 (0,07%) 1/0 Rækjur 1 (0,07%) Trönuber 1 (0,07%) Kartöflur 2(0,15%) Ananas 1 (0,07%) Möndlur 1 (0,07%) 1 (0,07%) 1 (0,07%) Nutramigen 1 (0,07%) Grænar baunir 1 (0,07%)9 1 (0,07%) a Hugsanlegt fæðuofnæmi að áliti foreldra en engin ofnæmispróf liggja að baki. b Börn með annaðhvort jákvætt IgE I sermi eða jákvætt ofnæmishúðpróf. 0 í tvíblint þolpróf fóru 50 börn (3,73%), þar af voru 11 með neikvæð húðpróf og IgE i sermi en höfðu eindregið verið talin vera með fæðuofnæmi. d Börn sem höfðu hugsanlega fæðuofnæmi að áliti foreldra og fóru í tvíblint þolpróf / jákvætt tvíblint þolpróf. a Fjöldi barna (n) og algengi (n/1341). Ekkert þeirra barna sem foreldrar töldu að væru með fæðuofnæmi stóðust kröfur fyrir tvíblint þolpróf. 9 Eitt barn fór í ofnæmishúðpróf fyrir grænum baunum hjá öðrum ofnæmislækni og þvi var mælt sértækt IgE í sermi fyrir grænum baunum hjá því barni. Tafla I. Ástæða komu barns til rannsóknarlæknis. Ástæða komu til læknisa Fjöldi barna n % (n/1341)° Exem 124 9,25% Grunur um fæðuofnæmi 74 5,52% Einkenni frá meltingarvegi 43 3,21 % Ofsakláði 23 1,72% Einkenni frá öndunarvegi 7 0,52% Viðmiðunarbörn 61 4,55% aÁstæðurnar gátu verið fleiri en ein hjá hverju barni. bMiðað við fjölda þátttakenda. óvænt viðbrögð við mat og/eða einkenni sem bent gætu til ofnæmis, eins og exem eða útbrot á húð, einkenni frá augum, eyrum, nefi, hálsi, öndunarvegi, meltingarvegi eða almenn einkenni. Flestir foreldrar létu vita um ofnæmiseinkenni í tölvupósti eða síma. Ef grunur var um fæðuof- næmi kom barnið í skoðun til rannsóknarlæknis sem skráði sjúkrasögu, framkvæmdi skoðun, ofnæmishúðpróf og tók blóð til rannsóknar. Öll börn með exem voru fengin í skoðun og ofnæmis- greiningu. Hringt var í þátttakendur 12 mánuðum eftir fæðingu og lagður fyrir staðlaður spurninga- listi. Ef foreldrar svöruðu jákvætt spurningum um einkenni um mögulegt fæðuofnæmi eða exem var barn kallað til skoðunar. Spurningar um astma 12 LÆKNAblaöið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.