Læknablaðið - 15.01.2011, Page 27
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
sömu sjúkdómseinkennum og breytingum við
myndgreiningu og Wernicke og er þekkt í
alnæmi,74' 75 4) Afmýlandi sjúkdómar, Behgets-
sjúkdómur í miðtaugakerfi og heilabólga vegna
herpes simplex veiru (HSV) þarf að hafa
í huga í mismunagreiningu, 5) Heilakvilla
vegna lifrarsjúkdóms (hepatic encephalopathy)
getur verið mjög erfitt að greina klínískt frá
bráðum Wernicke.54 Slíkt er sérlega erfitt hjá
áfengissjúkum sem hafa áður fengið sjúkdómirtn
eða áfengistengda hrörnun í hnykli (alcoholic
cerebellar degeneration) og hafa ætíð óstöðugt
göngulag eða augnatin.
Bráðameðferð við líklegum Wernicke
Meðhöndla á alla áfengissjúka einstaklinga sem
eru líklega með bráðan Wernicke. Þannig á
að meðhöndla alla sem eru taldir hafa bráðan
Wernicke (tafla II og III), hafa alvarlegan
höfuðáverka eða aðrar ástæður sem torvelda
taugaskoðun þannig að ekki er hægt að útiloka
Wernicke með vissu.52 Einnig ættu læknar að vera
vakandi fyrir sjúkdómnum hjá áfengissjúklingum
með heilakvilla vegna lifrarsjúkdóms, jafnvel
að meðhöndla þá með þíamíni og meta klíníska
svörun.54 Aldrei ætti að gefa þíamín um munn
sem meðferð við Wernicke eða sem fyrirbyggjandi
meðferð því frásog þíamíns úr meltingarvegi er
lítið og óáreiðanlegt hjá áfengissjúkum. Einungis
á að gefa meðferð í bláæð eða vöðva.36-5276
Ráðlögð meðferð þíamíns: Ekki eru til
samanburðarrannsóknir eða aðrar áreiðanlegar
rannsóknir sem ákvarðað hafa besta skammt
þíamíns við Wernicke til að lágmarka skaða.77
Nýlegar leiðbeiningar varðandi viðeigandi
skammt þíamíns byggja á nokkrum þáttum sem
allir styðja mun stærri skammt af þíamíni en áður
tíðkaðist að gefa: 1) þekkingu á slæmum horfum
sjúklinga við gjöf minni skammta af þíamíni
Mynd 4. T2 mynd sýnir hlutfallslega smáa vörtukjarna (mynd A). Diffusion mynd (DWI)
sýnir minni diffusion sem segulskært svæði miðlægt og aftan til í thalamus báðum megin
(mynd B). Sjúkdómsgreining snemma í sjúkdómsferli Wernicke er nauðsynleg til að koma í
vegfyrir varanlegan heilaskaða. DWI er næmasta aðferðin til að sýna aukinn bjúg ífrumu.
Með DWI má lækka greiningarþröskuldJyrir Wernicke og og DWI myndröðin er því
mikilvæg við mat á sjúklingum sem eru taldir vera með sjúkdóminn.
(50-100 mg daglega) sem áður tíðkuðust, 2) betri
þekkingu á lyfjahvörfum þíamíns í einstaklingum
með þíamínskort, 3) mismun í lyfjahvörfum þía-
míns milli áfengissjúkra og annarra, 4) birtum
tilfellum og klínískri reynslu (einnig okkar reynslu
af íslenskum tilfellum sem stendur til að birta)
sem benda til minni eftirkasta við notkun stærri
skammta af þíamíni og 5) lágri tíðni alvarlegra
aukaverkana við þíamínmeðferð en bráðaofnæmi
er afar fátíð aukaverkun við gjöf þíamíns í vöðva
eða bláæð.35'39'52'78"81
Nýlega hafa verið birtar tvennar leiðbeiningar
um meðferð þíamíns við Wernicke. í öðrum þeirra
er ráðlagt að gefa þíamín hýdróklóríð 500 mg
þrisvar á dag í þrjá daga í bláæð. Ef jákvæð svörun
sést er skammtur minnkaður í 500 mg einu sinni
á dag í fimm daga til viðbótar, gefið í bláæð eða
vöðva. Ef engin svörun sést er frekari meðferð
stöðvuð eftir fyrstu þrjá dagana og annarra
skýringa leitað á einkennum sjúklings.521 hinum
er ráðlagt að gefa þíamínhýdróklóríð 200 mg
Mynd 5. Breytingar á
vörtukjörnum í Wernicke-
Korsakoff-sjúkdómi.
Vörtukjarnar sjást jafnan
best á T2 myndum (mynd
A). í bráðum Wernicke-
sjúkdómi getur sést
skuggaefnisupphleðsla í
vörtukjörnum á TI myndum
(ekki sýnt á mynd). Hjá
sjúklingum með Wernicke
sjúkdóm (eða í kjölfar
sjúkdómsins) geta sést
hlutfallslega smáir vörtukjarnar
(myndir B og C) samanborið
við eðlilega vörtukjarna hjá
heilbrigðum einstaklingi (mynd
A).
LÆKNAblaðið 2011/97 27