Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2011, Qupperneq 37

Læknablaðið - 15.01.2011, Qupperneq 37
________UMRÆÐA O G FRÉTTIR Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Heilsugæsla í kreppu Anna Kristín Jóhannsdóttir annakrisjo@gmail. com Höfundur er heilsugæslulæknir á Seltjarnarnesi Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Valgerður Á Rúnarsdóttir, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Ágúst Örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Þórey Steinarsdóttir í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Li birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Undanfarirtrt áratug hefur verið stöðug krafa um sparnað í heilbrigðiskerfinu, ekki síður fyrir hrun. Heilbrigðiskerfið var alltaf of dýrt, best í heimi en samt of dýrt. Eftir hrun hefur spamaðarkrafan aukist enn meira. Laun hafa verið lækkuð, starfsfólki fækkað, vinnuálagið aukið. Erum við komin að sársaukamörkunum? Frekari sparnaður þýðir minnkun á þjónustu. Hvaða þjónustu á að minnka? Undanfarin ár hefur hver einasti heilbrigðis- ráðherra talað um að styrkja heilsugæsluna. Heilsugæslan hefur lítið orðið vör við þá styrk- ingu. Þar hefur líka verið sparað, laun lækkuð, yfirvinna tekin af, ekki ráðið í stöður sem losna. Það hefur þýtt minna tímaframboð svo aðgengi sjúklinga hefur skerst. Pappírsvinna hefur marg- faldast, meðal annars vegna vottorðaskrifa, svo sem vegna umsókna um lyfjaskírteini, sem er liður í að ná niður lyfjaverði. Fyrir vikið er enn minni tími fyrir sjúklinginn. Ein sparnaðarhugmynd heilbrigðisyfirvalda er að koma á tilvísanakerfi. Það tókst ekki síðast þegar það var reynt fyrir 15-20 árum. Nú er sú lest farin. Eins og staðan er í dag leyfir mönnunin ekki tilvísanakerfi. Farið er að bera á erfiðleikum við að koma sjúklingum til lækna í sumum sérgreinum. Þörf er á að finna nýjar boðleiðir og gera aðgengi greiðara. A félagsfundi LR fyrir stuttu voru aðgengismál til umræðu. Var mikill samhugur á fundinum og komu fram ýmsar tillögur. Þegar eru skipulagðar greiðar boðleiðir, til dæmis fyrir fólk með hnút í lunga. Meðal annars kom fram sú hugmynd að setja í hendur sérgreinalæknahóps í tiltekinni sérgrein að skipuleggja greiðara aðgengi. LR og LI hafa sameiginlega skipað í starfshóp til að vinna áfram að þeim hugmyndum sem fram komu á fundinum. Með bættum boðleiðum milli heilsugæslu, stofulækna og sjúkrahúsa væri minni þörf á tilvísanakerfi. Hægt að koma í veg fyrir tvíverknað, til dæmis við rannsóknir. Sjúklingar fengju hraðar viðeigandi meðferð. Það myndi spara talsvert. Læknum hefur fækkað á íslandi um meira en 100 síðustu tvö árin. Heimilislæknum hefur fækkað eins og öðrum læknum. Stéttin er að eldast, um eða yfir helmingur heimilislækna fer á eftirlaun næstu 10-15 árin. Fækkun heimilislækna þýðir að sífellt færri eru til að sinna sjúklingum, en þeim fækkar ekki sem þurfa á þjónustunni að halda. Svarið verður að auka hraðann, en við það verður minni tími fyrir hvem sjúkling og meiri hætta á útbruna hjá lækninum. Því miður virðist ráðuneytið aðallega telja afköst heimilislækna í fjölda samskipta en ekki innihaldi. Hefur verið ýjað að leti ef samskiptin eru of fá að mati ráðuneytis. Einnig hefur heimilislæknum verið legið á hálsi fyrir að ýta vinnunni yfir á síðdegismóttökur heilsugæslustöðvanna eða á Læknavaktina, af fjárhagsástæðum. Staðreyndin er hins vegar sú að allir tímar að deginum eru fullbókaðir, ofan á fullbókaða móttöku bætast síðan við bráðaerindi, símtöl og lyfjaendurnýjanir, svo vinnan er unnin undir stöðugri tímapressu, sem er mjög slítandi til lengdar. Hugsjón flestra heimilislækna er að geta sinnt sjúklingum sínum sem best og sem fyrst, en í manneklu dagsins er sú hugsjón fjarlæg. Til að heilsugæslan geti sirrnt sínu hlutverki er brýn þörf á að fjölga námsstöðum. Hugmyndir hafa komið fram um að endurskipuleggja námið svo hægt sé að taka inn fleiri sémámslækna fyrir svipað fjármagn. Þarfnast þær nánari skoðunar. Það er einnig brýnt að gera starfsaðstæður meira aðlaðandi, minnka streituna og álagið, bæta aðstöðu til rannsókna og gæðaþróunar. Gerðar hafa verið breytingar á vinnuumhverfi lækna í heilsugæslunni, oftast án samráðs, en ef það hefur verið haft hefur ýmsum þótt það fremur til málamynda. Hefur þetta skapað óánægju, sem hefur hvatt enn meira til landflótta. Frekari hugmyndir eru uppi um breytt vinnuskipulag, meðal annars breytingar á síðdegisvöktum heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Mikil hætta er á að ef slíkar hugmyndir verða keyrðar í gegn, án samvinnu við þá sem vinnunni sinna, muni enn fleiri greiða atkvæði með fótunum og flytja til útlanda. Hugmyndir hafa komið fram um leiðir til að lokka unga lækna heim úr sérnámi, til dæmis aðstoð með húsnæði, heimfararstyrk, skattaívilnanir. En það eina sem myndi lokka þá heim væri að læknar sem vinna á landinu væru ánægðir. Þar skipta tölur á launaseðlinum ekki bara máli heldur líka starfsaðstæður, að læknum sé treyst til að vinna starf sitt af alúð og fagmennsku og fái frið til að sinna sinni vinnu. Ég hvet heilbrigðisyfirvöld til að fara raunverulega að efla heilsugæsluna. Við heimilislæknar erum tilbúin í samvinnu við það. LÆKNAblaðíð 2011/97 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.