Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2011, Page 39

Læknablaðið - 15.01.2011, Page 39
I U M R Æ Ð U R O G F R É T T I R H Ú Ð F L Ú R Jón Þrándur Steinsson sérfræðingur í húðsjúk- dómum og einn af eigendum Húðlæknastöðv- arinnar, svaraði fyrirspurn Læknablaðsins um hvort þeir fjarlægðu húðflúr með leisergeislum með þeim orðum að tæki til þess væri ekki til á íslandi. „Við erum vel búnir leiserum á Húðlæknastöðinni en við meðhöndlun ekki húðflúr. Við erum ekki með nógu góðan leiser í það og svoleiðis tæki er ekki til á íslandi. Það þarf þá að kaupa sérstakan leiser fyrir það en við höfum metið það svo að hann myndi tæplega standa undir sér, því svona tæki eru rándýr bæði í innkaupum og rekstri. Við höfum þó oft íhugað það." Svar Jóns Þrándar bendir til þess að nokkur eftirspum sé eftir því að fá húðflúr fjarlægð. Útkoman veldur oft vonbrigðum Til að ná varanlegri litun undir húð er litarefni sprautað með nál í átfrumur leðurhúðarinnar. Þegar fjarlægja á húðflúr með leisergeisla er geislanum beint að frumunum með litnum, bylgjulengdin stillt miðað við litinn og frumunum sundrað þannig að heilbrigðar frumur myndist í staðinn. Rafn Ragnarsson lýtalæknir segir að það sé algengur misskilningur að halda að hægt sé að fjarlægja húðflúr með auðveldum og einföldum hætti. „Það er algerlega ábyrgðarlaus staðhæf- ing. Þrátt fyrir miklar framfarir í leisertækni og lýtalækningum almennt þá er mjög erfitt að fjar- lægja húðflúr svo vel sé og árangurinn er sjaldnast nógu góður. Eftir standa ör og húðbreytingar sem einstaklingurinn er yfirleitt ekki sáttur við þó segja megi að búið sé að fjarlægja húðflúrið sjálft. Væntingar fólks til þessarar tækni eru yfirleitt ekki í neinu samræmi við raunveruleikann, út- koman veldur oft vonbrigðum og það er því mjög mikilvægt að gera fólki, sérstaklega ungu fólki, skýra grein fyrir því að húðflúrun er varanleg aðgerð." Rafn rifjar upp atvik þar sem til hans hafi komið maður í örvinglan og sagst vera að ganga upp að altarinu með sinni heittelskuðu og húð- flúrið með nafni gömlu kærustunnar yrði bara að hverfa. „Og brúðkaupið var daginn eftir! Þetta er reyndar ekki eina dæmið um að fólk hafi séð eftir því að láta húðflúra sig og lent í vandræðum síðar á lífsleiðinni útaf óviðeigandi húðflúri." Asa Atladóttir deildarstjóri hjá landlækni segir að eflaust skorti talsvert á að ungu fólki sé gerð nægilega góð grein fyrir því að erfitt sé að fjar- lægja húðflúr og að smithætta sé alltaf fyrir hendi. „Það liggja heldur ekki fyrir neinar rannsóknir á því hvort litarefnin sem notuð eru við húð- flúr séu algerlega skaðlaus en ofnæmisvið- brögð við ákveðnum litum eru þekkt. Á veg- um Evrópusambandsins var sett á laggirnar rannsóknarnefnd árið 2003 sem átti að kanna þetta mál en mér vitanlega hefur hún ekki skilað nein- um niðurstöðum. Persónulega finnst mér und- arlegt að fólk vilji láta sprauta litarefnum undir húð sína án þess að hafa í höndunum fullkomnar upplýsingar um efnin," segir Ása. Þrntt fyrir miklar framfarir í leisertækni og lýtalækningum almennt er mjög erfitt aðfjarlægja húðflúr svo vel sé og árangurinn er sjaldnast ásættanlegur, segir Rafn Ragnarsson lýtálæknir. LÆKNAblaðið 2011/97 39

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.