Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2011, Page 50

Læknablaðið - 15.01.2011, Page 50
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR RÖNTGENLÆKNAR Mannafli og framtíðarhorfur íslenskra röntgenlækna 2010 Maríanna Garðarsdóttir Röntgenlæknir maríanna@landspitali. is í Læknablaðinu var nýlega birt áhugaverð grein um menntun og framtíðarhorfur meðal íslenskra skurðlækna1 og vaknaði fljótt sú spuming hvernig þessum málum væri háttað hjá röntgenlæknum. Fróðlegt er að bera saman sérgreinar læknis- fræðinnar með tilliti til nýliðunar2 en einnig að velta fyrir sér áhrifum núverandi aðstæðna á íslandi á nýliðun í ólíkum sérgreinum og almennt á fjölda lækna á Islandi. Hópur röntgenlækna er fremur lítill og hafa formlegar upplýsingar um mannafla ekki verið tiltækar aðrar en félagaskrár Félags íslenskra röntgenlækna og munnlegar upplýsingar. Teknar voru saman tölur um alla röntgenlækna sem hafa fullgilt íslenskt lækningaleyfi og Aldursdreifing lækna í árslok 2010 ■ Erlendis ■ Hérlendis 20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri Mynd 1. Myndin sýnir nldursdreifingu félagsmanna Félags íslcnskra röntgenlækna skipt eftir aldri og búsetu. Heildarfjöldi lækna 2010-2030 65 60 55 SO 45 40 35 30 2010 2015 2020 2025 2030 Mynd 2. Myndin sýnir spá um heildarfjölda starfandi röntgenlækna hér á landi fram til ársins 2030. sérfræðiviðurkenningu (geislalækningar, geisla- greining, mynd- og geislagreining, myndgrein- ing, læknisfræðileg myndgreining) eða eru í sérnámi í greininni hérlendis eða erlendis. Upplýsingar voru fengnar úr félagaskrá Félags íslenskra röntgenlækna og úr læknaskrá land- læknis. Hópurinn var skoðaður með tilliti til aldurssamsetningar og atvinnuþátttöku og reynt að meta nýliðun í stéttiimi hér á næstu árum. Heildarfjöldi var 70 manns og má sjá aldurs- dreifingu á mynd 1. Níu læknar eru komnir á eftirlaunaaldur (70 ár). Einn þeirra er búsettur erlendis og hefur ekki starfað hér að sérnámi loknu. Tveir eru enn í hlutastarfi. Einn læknir starfar við klíníska lífeðlisfræði og er talinn til sérfræðinga hérlendis. Þrír erlendir læknar sem fengið hafa sérfræðiviðurkenningu hér á landi en aldrei unnið hér svo vitað sé, voru ekki taldir með. Starfandi erlendis töldust þeir sem starfa erlendis hálft árið eða meira, óháð búsetu, og eru ekki komnir á eftirlaunaaldur. Þetta voru alls 20 læknar. Þeir eru flestir í aldurshópnum 30-39 ára (níu) en nokkrir í hópnum 40-49 ára (fjórir) og 50-59 ára (fimm). Af 20 læknum sem starfa erlendis eru sex í sémámi. Af hinum 14 er starfa erlendis eru flestir eða fimm á aldrinum 50-59 ára og tveir yfir 60 ára. Langflestir íslenskir röntgenlæknar eru á aldrinum 50-59 ára (22) og 60-69 ára (13). Af þessum em sjö starfandi erlendis. I aldurshópnum 30-39 ára eru flestir í sérnámi og einnig flestir búsettir erlendis. Þetta er í takt við aðrar greinar þar sem flestir eru í sérnámi á þessum aldri og þá í flestum greinum erlendis lengst af. I yngsta hópnum, 20-29 ára, eru þrír læknar eða kandídatar sem hafa nýlega hafið eða eru við það að hefja sérnám í myndgreiningu hérlendis. Á næstu 20 árum hætta að minnsta kosti 35 röntgenlæknar störfum vegna aldurs. Þá er ótalið brottfall af öðrum orsökum. Líklegt má telja að fleiri muni í framtíðinni notfæra sér það að hætta störfum fyrir hefðbundinn eftirlaunaaldur eða að minnka starfshlutfall. Ef gert er ráð fyrir því að allir hætti 70 ára og einn læknir bætist við á hverju ári vegna nýliðunar í stéttinni verða 46 læknar starfandi hérlendis árið 2030 (mynd 2) samanborið við 61 í dag. Þá er gert ráð fyrir að allir sem ljúki sérnámi starfi hér á landi. Þessir 46 fullnægja þannig engan veginn þeirri mannaflaþörf sem er til staðar í dag, hvað sem verður eftir 20 ár. Með hækkandi meðalaldri eykst algengi langvarandi sjúkdóma hratt2 og kröfur 50 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.