Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2011, Side 17

Læknablaðið - 15.09.2011, Side 17
Y F I R L I T Áverkaómun Hjalti Már Björnsson' læknir, Hilmar Kjartansson1 læknir ÁGRIP Á síðustu árum hefur ómskoðun verið æ meira notuð við bráðalækningar. Tilkoma ódýrra og handhægra ómtækja hefur gert læknum kleift að afla mun nákvæmari upplýsinga um ástand slasaðra og bráðveikra en fæst með hefðbundinni líkamsskoðun eingöngu. Hér er fjallað um staðlaða bráðaómskoðun vegna áverka, hvernig hún er framkvæmd og nákvæmni ýmissa þátta skoðunarinnar. Kynntir verða aðrir þættir sem hægt er að bæta við hina stöðluðu áverkaómun til frekari greiningar. Að mati höfunda er fjárfesting í tækjabúnaði og þjálfun lækna til áverkaómunar líklega hagkvæm leið til að bæta þjónustu við slasaða á fslandi. ’Bráðadeild Landspítala Fyrirspurnir: Hjalti Már Björnsson hjaltimb@gmail.com Guðjóni Birgissyni skurðlækni eru færðar þakkir fyrir yfirlestur greinarinnar. Barst: 19. janúar 2011, - samþykkt til birtingar: 6. júní 2011. Höfundar tiltaka hvorki styrki né hagsmunatengsl. Inngangur Frá upphafi vega hafa læknar skoðað sjúklinga við rúmstokk þeirra til að greina sjúkdóma. A síðustu öld komu til sögunnar frekari ítarlegar rannsóknir sem hægt er að gera á sjúklingum, en ákvörðunin um hvenær og hvernig þeim er beitt er alltaf tekin á grundvelli upplýsinga sem fást með upphaflegri sögutöku og skoðun. Líkamsskoðun getur því miður verið frekar ónákvæm, þrátt fyrir að hún sé byggð á reynslu fjölmargra kynslóða, enda takmörkum háð hversu mikilla upplýsinga verður aflað með því einu að horfa, hlusta og þreifa. Á síðustu árum hefur ör þróun ómskoðunartækja gert læknum mögulegt að nota einföld ómtæki til að afla mun meiri upplýsinga um ástand sjúklinga en hægt er með hefðbundinni líkamsskoðun. Til aðgreiningar frá hefðbundnum ómskoðunum hefur verið talað um „point of care ultrasound" eða „bedside ultrasound". Einnig hefur þróast undirsérgrein innan bráðalækninga varðandi notkun ómskoðunar sem nefnd hefur verið bráðaómun (Emergency Ultmsound). Er heitið bráðaómun notað sem samheiti yfir þessa tegund ómskoðunar hér á eftir. Nákvæmni bráðaómunar er yfirleitt minni en form- legra myndgreiningarrannsókna. Ólíkt annarri mynd- greiningu er bráðaómun yfirleitt hugsuð sem fram- lenging á líkamsskoðun en ekki ætlað að veita endanlega greiningu. Þegar meta skal gagnsemi af bráðaómunum þarf því frekar að bera nákvæmni bráðaómunar saman við hefðbundna líkamsskoðun, en ekki nákvæmni ómskoðunar í höndum röntgen- eða hjartalæknis með fullkomið ómtæki við bestu aðstæður. Gott dæmi um þetta er rannsókn þar sem læknanemar sem fengið höfðu stutt námskeið í hjartaómskoðunum reyndust umtalsvert nákvæmari við mat á hjartasjúklingum en reyndir hjartalæknar sem notuðust eingöngu við hefðbundna líkamsskoðun og hlustunarpípu.1 Svipaðar niðurstöður hafa fengist í rannsóknum þar sem hefðbundin líkamsskoðun gefur mun óáreiðanlegri upplýsingar en ómskoðun við mat á blæðingu í kviðar- eða brjósthol, loftbrjóst, segamyndim í djúpum bláæðum, gallblöðrubólgu og ósæðargúl til að nefna nokkur dæmi.2- 3-6 Bráðaómun er venjulega notuð til að svara ákveðnum einföldum spurningum, svo sem hvort einstaklingur sé með ósæðargúl, gallsteina, loftbrjóst eða vatnsnýra. Til dæmis má nefna að með bráðaóm- skoðun af hjarta er venjulega eingöngu metið hvort vökvi sé í gollurshúsi og hvort samdráttargeta hjartans sé eðlileg, skert eða mjög léleg. Við endurlífgun gagnast enn einfaldari bráðaómskoðun til að vita hvort rafvirkni fylgi einhver samdráttur í hjartanu. Þó þetta séu einfaldar upplýsingar geta þær verið mjög dýrmætar við bráðar aðstæður. Nánari greining á hjartavöðva, hjartalokum og starfsemi hjartans er látin hjartalæknum eftir. Ef þörf er á og tími vinnst til er venjulega gert ráð fyrir nákvæmari myndgreiningarrannsókn til staðfestingar á því sem finnst við bráðaómskoðun og nánara mati. í mörgum læknaskólum er farið að kenna notkun ómskoðunar við líkamsmat og hafa bráðalæknar víða verið í fararbroddi þeirrar þróunar.7'9 Hefur jafnvel nokkurra klukkustunda kennsla reynst skila gagnlegri þekkingu læknanema og verið mjög vinsæl meðal þeirra.10 Innan bráðalækninga hefur kennsla í bráðaómskoðunum verið fastur hluti þjálfunar náms- lækna síðan fyrstu leiðbeiningarnar um ómskoðanir voru gefnar út árið 2001 í Bandaríkjunum, en þær voru uppfærðar árið 2008.11 Þar er nú gert ráð fyrir að bráðalæknar hafi þjálfun í alla vega sjö mismunandi ómskoðunum og hafi að lágmarki skilað ekki færri en 175 rannsóknum undir eftirliti reyndari lækna, þótt flestir námslæknar framkvæmi mun fleiri ómskoðanir LÆKNAblaðið 2011/97 469

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.