Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2011, Page 18

Læknablaðið - 15.09.2011, Page 18
Y F I R L I T Mynd 1. Staðsetmng og stefna á ómhaus við áverkaómskoðun. A. Undirflagbrjóski, stefnt á vinstri öxl og merki á ómhaus beint til hægri. B. Hægri síða, merki á ómhaus í átt að höfði. C. Vinstri síða, merki á ómhaus í átt að höfði. D. Yfir lífbeini, merki á ómhaus í átt að höfði eða til hægri. E. Framanverður brjóstkassi beggja vegna, í línu á við miðju viðbeins, merki á ómhaus í átt að höfði. Gen THI • _ Crd P21 Lifur Vökvi í gollurshúsi ‘ Ml — 0.8 TIS 0 7 Hæ slegill * 108 Vi slegill 21 Mynd 2. Vökvasöfnun ígoUurshúsi. en nákvæmni áverkaómunar virðist hins vegar lítið aukast eftir fyrstu 10 ómanirnar.15'17 Eins og við allar ómskoðanir er mikilvægt að nota nægilega mikið hlaup til að hljóðbylgjur berist greiðlega inn í líkamann og endurvarpið til baka inn í ómhausinn. Einnig fæst betri sýn með því að dimma Ijósin í rýminu þar sem skoðað er. Best er að nota breiðan og kúptan ómhaus af lágri tíðni (2 til 4 MHz) til þess að ná nægilegri dýpt. Ómtækið er sett á stillingu til kviðarholsskoðunar og fást venjulega nægilega skýrar myndir af hjarta án þess að skipt sé yfir á sértækar stillingar eða ómhaus til hjartaómskoðunar. Sjúklingurinn liggur yfirleitt á bakinu við áverkaómun. en það. Svipaðar kröfur eru gerðar við framhaldsnám bráðalækna í Evrópu og Eyjaálfu. Hvað er áverkaómun - FAST? Ein algengasta notkun ómskoðunar í bráðalækningum er svokölluð FAST-skoðun vegna áverka. FAST er skammstöfun sem stendur fyrir Focused Assessment with Sonography in Trauma og fól upphaflega í sér skimun fyrir vökva í gollurshúsi og fríum vökva í kvið. Á síðari árum hefur orðið þróun í því hvaða áverkum er skimað fyrir með ómun. Flestir leita nú einnig að loftbrjósti og blæðingu í brjósthol og hefur slík ómskoðun verið nefnd E-FAST (Extended). Til einföldunar er öllum skammstöfunum sleppt við íslenskun þessara hugtaka og hér eingöngu notað heitið áverkaómun. Hvernig á að gera áverkaómun? Hér verður kynnt hvernig áverkaómun er framkvæmd og hvernig túlka skuli niðurstöður. Höfundar leggja áherslu á að læknar þurfa að fá formlega þjálfun til þess að geta framkvæmt áverkaómanir sjálfstætt og í fyrstu þurfa ómanir að vera gerðar undir handleiðslu reyndari læknis. Eins dags námskeið hefur reynst nægja til að kenna læknum fræðilega hluta áverkaómunar.12-14 Reynsla í ómun hefur áhrif á nákvæmni áverkaómunar og er almennt ráðlagt að læknir hafi gert að minnsta kosti 25 rannsóknir undir handleiðslu, Skimun fyrir vökva í gollurshúsi Þessi þáttur er vanalega gerður fyrst til þess að útiloka strax hjartaþröng {pericardial tamponade). Merkið á ómhausnum er látið snúa til hægri og hausnum beint undir flagbrjósk í átt að vinstri öxl sjúklings (mynd 1). Þéttan þrýsting getur þurft til að ýta lofti í maga eða þörmum frá og betri sýn getur fengist með því að biðja sjúkling að anda djúpt að sér og halda niðri í sér andanum meðan ómað er. Leitað er að ómsnauðri rönd milli hjartans og gollurshússins (mynd 2). Þunn vökvarönd allt að fimm millimetrar sem er sjáanleg í slagbili getur verið eðlileg. Lega sjúklings getur haft áhrif á það hvar vökvinn safnast fyrir í gollurshúsinu. Heldur meiri þjálfun þarf til að greina hjartaþröng, en við það ástand má sjá samfall á hægri slegli í lagbili (diastolu) sem aftur leiðir til skertrar fyllingar á hægri slegli og losts. Misjafnt er hversu mikið magn af vökva í gollurshúsi þarf til að valda hjartaþröng og fer það mjög eftir því hversu hratt vökvinn safnaðist þar fyrir. Ekki er alltaf hægt að ná fullnægjandi sýn af hjarta með ómun undir flagbrjóski og þarf þá að reyna að óma milli rifja við vinstri brún bringubeins. Kviðarómun Við áverkaómun af kvið er skimað fyrir fríum vökva í kviðarholi. Ómskoðun greinir ekki á milli blæðingar í kviðarhol eða 470 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.