Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2011, Síða 3

Læknablaðið - 15.10.2011, Síða 3
Myndin er tekin mánudaginn 26. september þegar fyrsta rafræna kosning á vegum læknafélaganna var í höfn. Samþykktur kjarasamningur Þau voru ánægð með niðurstöðuna úr kosningu Læknafélags íslands um nýjan kjarasamning við ríkið, Steinn Jónsson formaður LR, Sveinn Kjartansson formaður samninganefndar LÍ og Bima Jónsdóttir formaður LÍ. Samningurinn var samþykktur með 61% greiddra atkvæða. Sveinn Kjartansson kvaðst ánægður með niðurstöðu kosninganna. „Auðvitað hefðu allir viljað enn meira og sumir miklu meira, en við töldum okkur ekki fært að ná lengra að þessu sinni nema með róttækari aðferðum sem engum í samninganefnd LÍ hugnaðist. Við mæltum því eindregið með því að félagsmenn samþykktu samninginn og það hefur orðið niðurstaðan. Við það má vel una." Að sögn Margrétar Aðalsteinsdóttur á skrifstofu LÍ gekk þessi fyrsta rafræna kosning á vegum félagsins snurðulaust fyrir sig. Á kjörskrá voru 803 félagsmenn sem fengu greidd laun frá Fjársýslu ríkisins samkvæmt kjarasamningi þann 1. september síðastliðinn. Alls kusu 458 eða liðlega 57% þeirra sem atkvæðisrétt áttu. Já sögðu 281 eða 61% þeirra sem kusu. Nei sögðu 173 eða 38% þeirra sem kusu. Fjórir skiluðu auðu. Við síðustu atkvæðagreiðslu um kjarasamning LÍ við ríkið í júlí árið 2008 voru 905 manns á kjörskrá og sýnir þetta óyggjandi fækkun lækna í landinu á síðustu þremur árum. LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS Smáhlutirnir sem sjá má á forsíðu Læknablaðsins að þessu sinni eru verk Hildigunnar Birgisdóttur (f. 1980). Þeir eru kunnuglegir og framandi í senn, fundið smádót úr plasti, tekið i sundur og úr samhengi og sett saman á ný sem einstakir skúlptúrar. Ólíkum einingum úr ýmsum áttum er skeytt saman án líms eða þess háttar og tilviljun ræður því hvort og þá hvernig þær virka sem heild. Á þeim sýningum sem verkin hafa verið sett fram hefur mátt sjá fjölda þeirra saman kominn og hafa þau bæði verið sýnd sem slík en einnig skoðuð í gegnum aðra miðla eins og Ijósmynd og teikningu. Margt ímörgu, frá 2010, er tilraun til að setja óhefðbundna hluti fram innan hefðbundinna kerfa sem notuð eru til flokkunar og skilgreiningar einhvers annars. Sem dæmi studdist Hildigunnur við Dewey- flokkunarkerfið þegar hún sýndi verkin í Bókasafni Mosfellsbæjar. Fjöldaframleiðsla og handverk stangast á í þessari verkaröð sem kallar fram hugleiðingar um hvernig við höfum mótað leiðir til skilgreiningar efnisheimsins. Fjölmargt í kringum okkur hefði litla eða enga merkingu nema fyrir þær sakir að það er hluti einhvers stærra kerfis sem býr hana til. Listamaðurinn sækir í leiki og reglur, safnar, afbyggir, skrásetur, setur saman á ný, flokkar og raðar eftir eigin höfði. Hún gerir tilraun til að Ijá hinu merkingarlausa einhvers konar gildi með aðferðafræði sem hún fær að láni og aðlagar verkefninu. Verkin minna um leið á gagnrýninn hátt á offramleiðslu tilgangslausra hluta i heiminum og ^ reynir Hildigunnur að framlengja líftíma einnota plasthluta með því að gefa þeim sérstakan gaum og skoða hvaða aðra möguleika er þar að finna. [ samhengi listarinnar og þess kerfis sem snýr að henni öðlast þeir áru hins eilífa listaverks sem hefur nú tekið á sig nýja merkingu. Markús Þór Andrésson Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL www. laeknabladid. is Hlíöasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Gunnar Guðmundsson Gylfi Óskarsson Hannes Hrafnkelsson Inga S. Þráinsdóttir Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Dögg Árnadóttir dogg@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 10.500,- m. vsk. Lausasala 1050,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2011/97 515

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.