Læknablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 11
RANNSÓKN
Lokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla á íslandi 2002-2006:
/
Abendingar og snemmkomnir fylgikvillar
Inga Lára Ingvarsdóttir1 læknir, Sindri Aron Viktorsson4 læknanemi, Kári Hreinsson2læknir, Martin Ingi Sigurösson1 læknir, Sólveig Helgadóttir1
læknir, Þórarinn Arnórsson1 læknir, Ragnar Danielsen34 læknir, Tómas Guðbjartsson1'4læknir
ÁGRIP
Inngangur: Ósæðarlokuskipti eru önnur algengasta hjartaaðgerðin á íslandi og er oftast gerð vegna ósæðarlokuþrengsla. Tilgangurinn var að kanna
ábendingar, snemmkomna fyigikvilla og skurðdauða eftir þessar aðgerðir hér á landi.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á sjúklingum sem gengust undir ósæðarlokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla á Landspítala 2002-2006,
samtals 156 einstaklingum. Skráðir voru fylgikvillar aðgerðanna og ein- og fjölþáttagreiningu beitt til að skilgreina áhættuþætti fylgikvilla og skurðdauða
innan 30 daga.
Niðurstöður: Meðalaldur var 71,7 ár (bil 41 -88) og voru karlar 64,7% hóþsins. Algengustu einkenni sjúklinga fyrir aðgerð voru mæði (86,9%) og hjartaöng
(52,6%). Meðalútfallsbrot hjarta (EF) var 57,2%, hámarksþrýstingsfall (AP) yfir lokuna 74,1 mmHg og EuroSCORE (st) 6,9%. Ríflega helmingur sjúklinganna
gekkst samtímis undir kransæðahjáveitu og 9 undir aðgerð á míturloku. Lífrænni loku var komið fyrir í 127 aðgerðanna (81,4%), í 102 tilvikum grindarlausri
loku, og gerviloku hjá 29 sjúklingum. Meðalstærð ígræddra loka var 25,6 mm (bil 21-29) og aðgerðartími var 282 mínútur. Algengustu fylgikvillar eftir
aðgerð voru nýtilkomið gáttatif (78,0%) og bráður nýrnaskaði (36,0%). Enduraðgerð vegna blæðingar þurfti í 17,0% tilfella og 20 sjúklingar (13,0%) fengu
fjöllíffærabiiun. Miðgildi legutíma var 13 dagar og 6,4% sjúklinga létust innan 30 daga frá aðgerð.
Ályktun: Fylgikvillar reyndust tíðir eftir þessar aðgerðir, einkum gáttatif, nýrnaskaði og blæðingar sem krefjast enduraðgerðar. Skurðdauði er helmingi tíðari
en eftir kransæðahjáveituaðgerðir, sem er í samræmi við erlendar rannsóknir.
Inngangur
'Hjarta- og
lungnaskurðdeild,
2svæfinga- og
gjörgæsludeild,
3hjartadeild,
Landspítala,
4læknadeild HÍ.
Fyrirspurnir:
Tómas Guðbjartsson
tomasgud@landspitali.is
Barst: 23. apríl 2011, -
samþykkt til birtingar:
7. júlí 2011.
Höfundar tiltaka engin
hagsmunatengsl.
Ósæðarlokuþrengsli (aortic stenosis) er algengt vandamál
á Islandi líkt og annars staðar á Vesturlöndum.1 Einkenni
eru væg í byrjun en með vaxandi þrengslum kemur fram
mæði vegna hjartabilunar, brjóstverkur og yfirlið við
áreynslu. Skyndidauði er einnig vel þekktur fylgikvilli.1
Tíðni ósæðarlokuþrengsla eykst með hækkandi aldri og
um 2% einstaklinga um sjötugt hafa sjúkdóminn og
4% þeirra sem eru komnir yfir 85 ára aldur.2 Orsakir
ósæðarlokuþrengsla eru meðal annars aldurstengdar
breytingar í lokublöðunum og aukið álag á þau eins
og sést við tvíblaða ósæðarloku. Þetta veldur íferð
bólgufrumna, lípíða, próteina og kalks í lokublöðin.3
Þrengslin gera það að verkum að tæming vinstri slegils
verður tregari, hjartavöðvinn þykknar og hann verður
síður eftirgefanlegur.
Hefðbundin meðferð við óæðarlokuþrengslum er
skurðaðgerð þar sem lokunni er skipt út en á undan-
fömum árum hefur einnig þróast aðferð þar sem
nýrri ósæðarloku er komið fyrir með hjartaþræð-
ingartækni, oftast í gegnum náraslagæð.4 Hér á landi
eru ósæðarlokuþrengsli ábending um það bil 75%
ósæðarlokuskipta,5 en meðal annarra ábendinga eru
lokuleki eftir hjartaþelsbólgu eða vegna víkkunar á
ósæðarrót.6 Helsta ábending ósæðarlokuskipta vegna
ósæðarlokuþrengsla er sjúkdómur sem veldur einkenn-
um samfara auknu meðalþrýstingsfalli (>40 mmHg) og
flæðishraða (>4 m/s) yfir ósæðarlokuna, eða skertu
flatarmáli lokunnar (<1,0 cm2). Hjá einkennalausum sjúk-
lingum getur aðgerð einnig komið til greina samhliða
annarri hjartaaðgerð eða við mikla þrengingu á lokunni.6
Þegar skipt er um ósæðarloku með skurðaðgerð er
notast við hjarta- og lungnavél. Lokunni er síðan skipt
út fyrir lífræna loku eða gerviloku úr hertu kolefni.
Lífrænu lokurnar eru oftast úr svíni eða gollurshúsi
kálfs. Þær geta verið með grind eða grindarlausar
(stentless) og er grindin oftast gerð úr plastefni eða
málmi. Sjúklingar sem fá gerviloku þurfa ævilanga
blóðþynningarmeðferð með warfaríni með tilheyrandi
blæðingarhættu.7 Gervilokur hrörna ekki með tímanum
eins og þær lífrænu en kostur við síðarnefndu lokurnar
er að sjúklingarnir sleppa við langtímablóðþynningu.8
Hægt er að skipta lífrænum lokum út að nýju en slík
aðgerð er tæknilega flóknari og skurðdauði helmingi
tíðari en við fyrstu lokuskipti.9 Lífrænar lokur henta því
síður ungu fólki og er gjaman miðað við 65 ára aldur
eða að sjúklingur sé talinn eiga 15-20 ár eftir ólifuð.8
Ósæðarlokuskipti hafa verið framkvæmd frá 1987 á
íslandi og eru næstalgengasta opna hjartaaðgerðin hér
á landi.5 Upplýsingar um árangur aðgerðanna á Islandi
hafa ekki legið fyrir. Markmið þessarar rannsóknar var
að kanna árangur þeirra á Landspítala á fimm ára
tímabili, með áherslu á snemmkomna fylgikvilla og
dánartíðni innan 30 daga frá aðgerð.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til sjúklinga sem
gengust undir ósæðarlokuskipti á Landspítala frá 1.
janúar 2002 til 31. desember 2006. Listi yfir sjúklinga
var fenginn úr tveimur aðskildum skrám, annars vegar
úr sjúklingabókhaldi Landspítala þar sem leitað var
að aðgerðanúmerum fyrir ósæðarlokuskiptaaðgerð
LÆKNAblaðið 2011/97 523