Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2011, Side 35

Læknablaðið - 15.10.2011, Side 35
OFFITA BARNA „Góður og hollur morgu nverðu rgetur nlgerlega breytt lífsstíl bamanna og reyndar fullorðinna líka," segir Tryggvi Helgason barnalæknir. að morgunverðarstundin dettur út úr rútínunni. Þegar svo börnin byrja í grunnskólanum er morgunverður ekki á dagskránni og eitthvað fljótlegt, orkuríkt og næringarlítið verður alltof oft fyrir valinu. Þetta er samfélagslegt atriði sem við getum breytt og í mörgum tilvikum getur dugað að fjölskyldan fari fyrr að sofa og vakni 15 mrnútum fyrr. Það þarf ekki meira. Annað sem víða má bæta er að venja böm á fjölbreytni í mat. Einhæfni er oft of mikil í mataræði bama og það skilar sér áfram til full- orðinsáranna. Margir em ágætlega upplýstir um hollustugildi matvæla en margir eru líka í vandræðum með að lesa úr þeim fjölmörgu og oft misvísandi skilaboðum sem dynja á okkur daginn út og inn um hvað sé gott fyrir okkur. Það fara gríðarlegir fjármunir í markaðssetningu á mat og heilsuvörum hvers konar. Það er mjög erfitt fyrir yfirvöld og heilbrigðisstarfsmenn að keppa við þennan iðnað sem leggur margfalt, margfalt meira í auglýsingar en stjómvöld víðast hvar. Þetta er alþjóðlegt vandamál." Til Tryggva sækja oftast börn á aldrinum 5-15 ára. „Það er sjaldgæft að við fáum yngri böm, en það gerist reyndar. Eldri börnin stjórna aðgangi sínum meira sjálf að alls kyns mat og drykk. Safar og gosdrykkir sem eru hlaðnir hitaeiningum og nánast næringarlausir eru stór þáttur í þessu. Sykur sem slíkur er ekki endilega rót alls ills en það er innbyggt í okkur að finnast sætur matur góður. Það er okkur eðlilegt að sækja í sætt vegna þess að það er yfirleitt líka orkuríkt. Þetta er eðlilegt ef litið er til þess að líkami okkar er hannaður til að komast af við erfiðar krefjandi aðstæður og við takmarkað fæðuframboð. Samfélagið sem við búum við í dag er hins vegar samfélag offramboðs og við þurfum ekki á endalausri orku að halda. Samfélag sem hentar líkamanum illa Matvælaframleiðendur vita að hægt er að auka neysluna með því að setja sykur og sætuefni í vömna. Við getum stýrt þessu að nokkru leyti sjálf en líkamskerfið okkar er líka að hluta til ómeðvitað þannig að það getur verið erfitt og flókið að stjóma þessu sjálfur. Sumum reynist það ofviða í þessu samfélagi allsnægta og offramboðs. Ef við horfum á hversu mikil aukning er á offitu í löndum hins vestræna heims og öðrum löndum sem hafa tileinkað sér okkar menningu er ekki hægt að segja annað en að sumt í þessu samfélagsformi henti mannslíkamanum hreinlega mjög illa." Sjúkdómar sem fylgja í kjölfar offitu eru sykursýki 2, áunnin sykursýki, og hjartasjúkdómar alls konar. Tryggvi segir að þegar afi hans var í námi í læknisfræði hafi verið sagt að sykursýki 2 væri ekki til í bömum. „Það var eflaust rétt þá en er alls ekki rétt í dag. Sífellt yngri böm greinast með sykursýki 2. í vissum þjóðfélagshópum í Bandaríkjunum er hún orðin algengari meðal bama en sykursýki 1 sem er meðfædd. Það er alvarleg þróun og við stöndum hreinlega frammi fyrir því að kynslóðin sem nú er að vaxa úr grasi mun búa við lakara heilsufar og mögulega skertar lífslíkur vegna lífsstílstengdra sjúkdóma ef ekkert er að gert. Það er auðvitað mjög alvarlegt, sérstaklega þegar við vitum af hverju þetta stafar og höfum alla möguleika til þess að snúa þessari þróun við. Til að gera það þarf að þora að taka pólitískar ákvarðanir um ýmsa samfélagslega þætti, eins og samgöngur í þéttbýli og matarverð, lýðheilsutengja ákvarðanir og auðvelda þjóðinni að stunda heilbrigða og skemmtilega hreyfingu í daglegu lífi." LÆKNAblaðið 2011/97 547

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.