Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2011, Qupperneq 37

Læknablaðið - 15.10.2011, Qupperneq 37
NÝR DOKTOR í GEÐLÆKNINGUM „Notkun hálf-staðlaðs greiningarviðtals tryggir bæði öryggi oggæði í okkar greiningarvinnu," segir Bertrand Lauth barna- og unglingageðlæknir. ensku. Síðan ber teymi sérfræðinga frumgerðina saman við þá þýddu til að ná fram sem nákvæmastri gerð af viðtalinu á íslensku. Við þetta koma upp vandamál sem þarf að leysa þar sem merking orða og hugtaka er ekki alltaf nákvæmlega sú sama. Að þessu þarf að gæta mjög vandlega. Þetta hefur verið gert annars staðar áður og við fylgdum viðurkenndri aðferðafræði sem lögð hafði verið til grundvallar. Tækið byggir talsvert á þeirri aðferð að lýsa dæmum um hegðun í leikskóla, skóla, á heimili og með jafnöldrum. Þessi dæmi verða að vera skilmerkileg og eiga nákvæmlega við það umhverfi sem bamið lifir í." Nákvæmari og réttmætari greiningar Annar hluti rannsóknarinnar, og ekki síður mikilvægur að sögn Bertrands, er að meta réttmæti og áreiðanleika tækisins. Rannsóknin á réttmæti tækisins er í rauninni mesta nýjungin og hefur ekki verið gerð áður á sambærilegan hátt. „Niðurstaðan er ótvíræð hvað það varðar að við eigum núna tæki til greiningar sem er bæði mjög áreiðanlegt og réttmæti þess vel skilgreint. Þetta tryggir bæði öryggi og gæði í okkar greiningarvinnu. Þá hefur verið spurt á síðustu misserum hvort við séum að ofgreina börn með ADHD. Þetta tæki er öflug aðferð sem við höfum núna staðfest að er réttmæt og að greiningarnar eru bæði réttar og nákvæmar. Þetta tæki gerir okkur einnig auðveldara fyrir að greina fleiri geðraskanir hjá sama skjólstæðingi, sem stundum var erfitt áður. Það kemur til dæmis í ljós að áður en við höfðum þetta tæki í höndunum var meiri hætta á að vanmeta þunglyndi og alvarleika sjálfsvígshugsana hjá unglingum sem voru mjög veikir." Greining á samræmi og samkvæmni milli klínískra upplýsinga frá foreldrum og unglingum verður einnig nákvæmari en þar kemur til dæmis í ljós að foreldrar vanmeta oft þunglyndi og sjálfsvígshugsanir hjá unglingum sínum og alvarleika þeirra. Unglingarnir sjálfir meta ástand sitt betur hvað þetta varðar. A hinn bóginn hafa unglingar tilhneigingu til að vanmeta ADHD og hegðunarerfiðleika. Hér notum við greiningarskala þar sem leiðrétt er fyrir ýmsum þáttum í sjálfsmati skjólstæðinganna og mati foreldra þeirra. í hverju einasta tilfelli er mikilvægt að safna upplýsingum frá sem flestum aðilum í umhverfi barnsins eða unglingsins og það getur verið flókið að samræma og meta réttmæti allra þeirra upplýsinga. Greiningartækið er ómetanlegt í þeirri vinnu." Bertrand segir að mikilvægi þess fyrir geðlækningar að hafa nákvæm og áreiðanleg greiningartæki verði seint ofmetið: „Mjög miklar framfarir hafa orðið í okkar fagi sem byggja á mun betri greiningar- og matstækjum." Er ráðstefna framundan? Alhliða skipulagning ráðstefna og funda Engjateigur 5 1105 Reykjavík | 585-3900 | congress@congress.is | www.congress.is REYKJAVIK LÆKNAblaðið 2011/97 549 L
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.