Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2013, Page 7

Læknablaðið - 15.01.2013, Page 7
RITSTJÓRNARGREIN Vörn og sókn fyrir heilbrigðisvísindi á íslandi Inga Þórsdóttir prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla íslands ingathor@hi.is Heilbrigðisvísindasvið Háskóla íslands byggist á 6 deildum sem menntað hafa meira en 95% af faglærðu heilbrigðisstarfsfólki í landinu. Menntun og rannsóknir heilbrigð- isgreina fela óhjákvæmilega í sér þátttöku í heilbrigðisþjónustu og starfsnám er mikil- vægur hluti námsins. Deildir sviðsins eru læknadeild, þar sem kennd er læknisfræði, sjúkraþjálfun, geislafræði og lífeindafræði, hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, mat- væla- og næringarfræðideild, sálfræðideild og tannlæknadeild. Ekki er hægt að kenna læknisfræði eða aðrar greinar heilbrigðis- vísinda án þess að leiðbeina nemanda sem æfir sig og kenna í raunverulegu klínísku umhverfi. Innan sviðsins starfar þess vegna fólk sem þjónustar almenning þegar mest á reynir í lífinu, þegar barn fæðist, þegar slys verða og þegar veikindi steðja að. Miðað við mikilvægi þessarar menntunar kann mörgum að finnast sérkennilegt að fjórar af 6 deildum sviðsins hafi verið reknar með tapi undanfarin ár þar sem fjárfram- lög til þeirra eru of lág. Léleg fjárhagsleg staða er einnig ótrúleg þegar horft er til þess að heilbrigðisvísindasvið er það svið Háskólans sem tengist flestum sprotafyrir- tækjum, en nýsköpun á öllum sviðum sem varða heilsu er ein öflugasta vaxtargrein þekkingariðnaðarins. Sprotafyrirtæki sem hafa þróast og orðið til innan heilbrigðis- vísindasviðs eru meðal annars á sviði læknisfræði, lyfjafræði og sjúkraþjálfunar. Þýðing matvæla- og lyfjaiðnaðar er mikil í útflutningi okkar og þjóðartekjum. Lyfja- iðnaður er til dæmis stærri hluti af hagkerfi íslendinga en tíðkast í flestum löndum og skilar lyfjaútflutningur um það bil 3-4% af útflutningstekjum okkar. Starfið innan heilbrigðisvísindasviðs er atvinnulíf sem felst í kennslu, rannsóknum og nýsköpun heilbrigðisvísinda og er þess vegna órjúf- aplegur hluti af íslensku atvinnulífi. Fjármögnun allra deilda Háskóla ís- lands er byggð á mati á árangri í kennslu og rannsóknum. Kennsluárangur miðast við fjölda stúdenta sem þreyta próf og ár- angur í rannsóknum er metinn eftir fjölda birtra greina og tilvitnana í þær, eftir þeim styrkjum sem fást úr samkeppnissjóðum, og eftir því hversu margir meistara- og doktorsnemar ljúka námi. Sé horft til þessa fjármögnunarlíkans er vandi heilbrigðis- vísindasviðs aðallega tvenns konar. í fyrsta lagi getum við ekki fjölgað nemendum sem þreyta próf á sama hátt og margar aðrar greinar sem ekki fela í sér klínískt nám eða mikið verklegt nám. Kennsluárangur okk- ar er því nokkuð stöðugur en heildarfjöldi nema í Háskóla íslands vex stöðugt. Fjöldi nemenda við Háskóla íslands er umfram það sem greitt er fyrir af stjórnvöldum, sem leiðir til þess að greiðsla vegna kennsluár- angurs er of lág. Með því að hækka reikni- flokka fyrir heilbrigðisvísindasvið mætti leiðrétta þetta og þá væri unnt að mæta hækkuðum kostnaði vegna viðhalds og uppbyggingar innviða fyrir kennslu og rannsóknir. 1 öðru lagi er ósamræmi milli þess hve öflugt rannsókna- og vísindastarf er unnið innan heilbrigðisvísindasviðs, og þess að styrkir til rannsóknanna sem berast inn í skólann eru tiltölulega lágir. Þetta skapar þyngra rannsóknarumhverfi, og erfiðleika við að halda við aðstöðu og tækjum og við að sinna langtímarann- sóknum. Helsta ástæða þessa er verulegur skortur á hérlendu styrkjafé fyrir heil- brigðisvísindi. Rúmlega helmingur rann- sóknasjóðs RANNÍS er ætlaður tækni-, verk- og náttúrufræðirannsóknum svo og allmargir, og þar á meðal langstærstu, sér- sjóðir hér á landi. Staða íslenskra heilbrigð- isvísinda virðist mun verri. Fyrirkomulag samkeppnissjóða í landinu er nú þannig að opinbert fjármagn samkeppnissjóða til rannsókna á sviði heilbrigðisvísinda er sem svarar um fjórðungi eða fimmtungi þess sem veitt er til rannsókna á ofannefndum sviðum. Nauðsynlegt er að til verði sjóður fyrir rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda. Mikilvægi rannsókna er ótvírætt skilyrði gagnreyndrar þekkingar á sviði velferðar- og heilbrigðismála. Það er einnig augljóst að heilbrigðis- vísindi við Háskóla Islands þurfa sam- eiginlegt húsnæði. Starfsemi sviðsins er nú mjög dreifð, sem er talið kosta landsmenn háar upphæðir vegna hærri rekstrarkostn- aðar og ekki síður vegna allra þeirra tæki- færa sem ætla má að glatist vegna dreifing- arinnar. Það eru tækifæri til þverfaglegrar kennslu, sameiginlegra alþjóðlegra verk- efna og rannsókna, nýsköpunar og nýrra leiða við forvarnir, meðferð og umönnun. Það er því hagur allra landsmanna að bætt verði úr þessu hið fyrsta eins og áformað er með nýjum Landspítala. Heilbrigðisvís- indasvið háskóla um allan heim eru tengd sjúkrahúsum og það er báðum aðilum nauðsynlegt. Þessi landfræðilega nálægð er hagur allra sem þiggja heilbrigðisþjón- ustu. Hún eykur líkur á bestu mögulegu þjónustu spítalans, þjónar nemendum, og þar með framtíðarheilbrigðisþjónustu, og er að auki þjóðfélaginu hagkvæm. Til að leysa fjárhagsvanda heilbrigðis- vísindasviðs þarf að tvinna saman margar leiðir. Allt starf sviðsins byggist á góðu samstarfi við heilbrigðisvísinda- stéttir í landinu. Þverfaglegt samstarf innan sem utan háskólans og samstarf við Landspítala, auk Heilsugæslunnar, Hjarta- verndar, Embættis landlæknis, DeCode, Krabbameinsfélagsins, Matís og fleiri aðila, er meðal annars lykillinn. Gleðilegt ár Defence and progress for health sciences in lceland Inga Þórsdóttir, Dean of the School of Health Sciences, University of lceland LÆKNAblaðið 2013/99 7

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.